Fara í efni

Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar

119. fundur
24. október 2022 kl. 08:15 - 13:15
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Benedikt Snær Magnússon varaformaður
Silja Pálsdóttir aðalmaður
Monika Margrét Stefánsdóttir aðalmaður
Júlíus Magnússon varamaður
Starfsmenn
Bjarni Daníel Daníelsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Bjarni Daníel Daníelsson Sviðsstjóri Framkvæmdasviðs
Dagskrá
1.
Ósk um niðurfellingu tengigjalda fráveitu
Málsnúmer 202202116
Tekið fyrir erindi frá Árna Hjartarssyni um að fráveitan frá frístundahúsinu Sörlaskjóli í Svarfaðardal var tengd rotþró sem fyrir var og telur Árni sig þar af leiðandi ekki þurfa að borga þessi tengigjöld.Tekið fyrir á 116 og 118 fundi Veitu- og hafnaráðs sem frestaði erindinu til næsta fundar.
Veitu- og hafnaráð tekur undir sjónarmið Árna þar sem rotþróin er talin bera tvö hús.
Samþykkt samhljóða að endurgreiða gjöldin með 4 atkvæðum.
2.
Gjaldskrár 2023
Málsnúmer 202208116
Gjaldskrár- og samþykktarbreytingar Hafnasjóðs, fráveitu, hitaveitu og vatnsveitu lagðar fyrir og teknar til umræðu.
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með fjórum atkvæðum framlagðar tillögur að gjaldskrám Hafnarsjóðs, Vatnsveitu, Hitaveitu og Fráveitu Dalvíkurbyggðar 2023. Vísað til byggðaráðs.
Veitu- og hafnaráð fór yfir framlagt minnisblað Sviðsstjóra um breytingar á samþykktum um fráveitu og rotþrær í Dalvíkurbyggð og felur Sviðsstjóra að vinna að tillögum að breytingu á samþykktinni. Samþykkt samhljóða með fjórum atkvæðum.