Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar
117. fundur
27. september 2022
kl.
08:15
-
11:30
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Monika Margrét Stefánsdóttir
aðalmaður
Benedikt Snær Magnússon
varaformaður
Júlíus Magnússon
varamaður
Jolanta Krystyna Brandt
varamaður
Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson
varamaður
Starfsmenn
Bjarni Daníel Daníelsson
embættismaður
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
Sviðstjóri
Fundargerð ritaði:
Bjarni D. Daníelsson
Sviðsstjóri framkvæmdasviðs
Dagskrá
1.
Starfshópur til að skoða og gera tillögur til umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins um nýtingu vindorku.
Á Byggðaráðsfundi 1036 vísar Byggðaráð til umfjöllunar hjá Veitu- og hafnaráði, erindi frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, rafpóstur dagsettur þann 23. ágúst nk., þar sem kynntur er til sögunnar starfshópur til að skoða og gera tillögur til ráðuneytisins um nýtingu vindorku. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar kemur fram að setja skuli sérstök lög um nýtingu vindorku með það að markmið að einfalda uppbyggingu vindorkuvera til framleiðslu á grænni orku. Starfshópurinn á að vinna náið með Sambandi íslenskra sveitarfélaga við undirbúning tillagna sinna og frumvarps. Starfshópurinn hefur tekið til starfa og ákveðið að hefja samráðsferli strax. Sveitarfélögum er boðið að senda sjónarmið sín um þau atriði sem fram koma í erindinu til starfshópsins fyrir 30. september nk. Einnig er gert ráð fyrir að starfshópurinn fundi með hagaðilum síðar á þessu ári.
Veitu- og hafnaráð tekur undir þau sjónarmið sem koma fram í erindinu og vill þakka sérstaklega fyrir að hefja samráðsferlið strax.
Samþykkt samhljóða með fjórum atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fjórum atkvæðum.
2.
Svara óskað við ýmsum spuringum og athugasemdum
Í bréfi frá Jóni Þórarinssyni og Atla Þór Friðrikssyni er óskað eftir svörum frá Veitu- og hafnaráði við spurningum um vatnsöflun fram í Skíðadal og Svarfaðardal.
Veitu- og hafnaráð tók málið til umfjöllunar og vísar erindinu til frekari stefnumótandi umræðu og að það verði tekið inn í þarfagreiningu á vatnsöflun og varmaskiptum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
3.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2023 og þriggja ára áætlun 2024-2026
Starfs- og fjárhagsáætlun 2023 til kynningar.
Lagt fram til kynningar