Fara í efni

Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar

111. fundur
14. janúar 2022 kl. 08:15 - 10:15
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Sigurður Valdimar Bragason formaður
Monika Margrét Stefánsdóttir varaformaður
Ásdís Svanborg Jónasdóttir aðalmaður
Kristján Hjartarson Aðalmaður
Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson aðalmaður
Starfsmenn
Rúnar Þór Ingvarsson Starfsmaður
Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri
Bjarni Daníel Daníelsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Fyrirhugað seiðaeldi við Árskógssand.
Málsnúmer 201608099
Á fundi starfsmanna 10. janúar 2022 með forsvarsmönnum Laxós verkefnisins voru kynnt áform um áframhald á verkefninu. Fyrir veitu- og hafnaráði liggur fyrir að taka afstöðu til veitingu á heitu og köldu vatni til verkefnisins og einnig deiliskipulags vegna verkefnisins við hafnasvæðið á Árskógssandi. Fyrirhugað er að halda íbúafund til kynningar á drögum að breytingum á aðalskipulagi og deiliskipulag vegna verkefnisins þann 19. janúar nk.
Veitu- og hafnaráð leggur til við sviðsstjóra að leitað verði til verkfræðistofu og fengið álit á möguleikum veitna til afhendingar orku fyrir verkefnið, bæði á heitu og köldu vatni.
2.
Breyting á aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 vegna deiliskipulags Hauganess
Málsnúmer 202111093
Helga Íris Ingólfsdóttir, skipulags- og tæknifulltrúi kom inn á fundinn kl. 08:48.Óskað er eftir áliti Veitu- og hafnaráðs á stækkun hafnasvæðisins á Hauganesi. Hafnarsvæði stækkar bæði til norðausturs og suðvesturs.Lóð á Aðalbraut 2 var á hafnarsvæði en er nú merkt athafna og þjónustulóð.Helga Íris vék af fundi kl. 08:56.
Veitu- og hafnaráð gerir ekki athugsemdir við framlagða tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hauganess.
3.
Umsókn um framkvæmdaleyfi - prufugryfjur meðfram farvegi Brimnesár
Málsnúmer 202111017
Þann 10. janúar 2022 var sátu sveitarstjóri og sviðsstjóri framkvæmdasviðs símafund með forsvarsmönnum Mannvits. Mannvit gerði grein fyrir því að búið er að taka prufuholur 8-15. Það er frá girðingu og niður að fyrirhuguðu stöðvarhúsi. Eftir er að taka holur 1-7 en þær eru á Ufsadal á leiðinni frá stíflustæði niður að girðingu. Svæðið er frekar erfitt yfirferðar og líklegt að nauðsynlegt verði að taka sneiðing niður í einum bratta. Þetta kallar á meira rask en gert var ráð fyrir í byrjun. Í fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir ákveðinni upphæð í þennan verklið. Nú þegar verkliðurinn er rúmlega hálfnaður er ljóst að kostnaðurinn hefur verið vanáætlaður. Óskað er eftir viðbótarfjármagni til að klára þennan verklið.
Veitu- og hafnaráð felur sviðsstjóra að afla frekari upplýsinga um áætlaðan kostnað og sækja um viðauka til byggðaráðs til að ljúka verkefninu.
4.
Myndavélakerfi á Hauganeshöfn
Málsnúmer 202201045
Hafnasvæðin á Dalvík og á Árskógssandi eru búin myndavélakerfum sem talin eru nauðsynleg til að fylgjast með starfsemi hafnasvæðanna. Ekkert myndavélakerfi er hinsvegar á Hauganesi sem hefði til dæmis komið sér vel til upplýsingaöflunar þegar sjór gekk yfir sjóvarnagarðinn í haust.
Veitu- og hafnaráð felur sviðsstjóra að kanna kostnað við uppsetningu myndavélar við Hauganesshöfn og leggja þær upplýsingar fyrir næsta fund ráðsins.
5.
Hauganeshöfn skemmdir á rafmagnskapli í flotbryggju
Málsnúmer 202201044
Á fundinum var upplýst að fyrir stuttu urðu skemmdir á rafmagnskapli sem liggur í flotbryggjuna á Hauganesi. Kapallinn var dæmdur ónýtur og nýr settur í staðinn.
Lagt fram til kynningar.
6.
Dalvíkurhöfn verði tollhöfn
Málsnúmer 202104001
Umsókn um að Dalvíkurhöfn verði tollhöfn er í lokaferli. Til að athafnasvæði tollsins fái samþykkt þarf svæðið að vera afgirt. Fyrir ráðinu liggja tvær tillögur að girðingastæðum og fer það eftir því hvaða hús verða tollgeymslur hvernig þarf að girða svæðið af.
Veitu- og hafnaráð vísar lokunum á umferðaæðum á hafnarsvæðinu til umsagnar í umhverfisráði og í kynningu meðal notenda hafnarinnar, bæði hvað varðar tillögu a og tillögu b eða aðra útfærslu, eftir því hvað verður ofan á, með staðsetningu á tollgeymslu.