Fara í efni

Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar

109. fundur
12. nóvember 2021 kl. 08:15 - 10:45
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Sigurður Valdimar Bragason formaður
Monika Margrét Stefánsdóttir varaformaður
Ásdís Svanborg Jónasdóttir aðalmaður
Kristján Hjartarson Aðalmaður
Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson aðalmaður
Starfsmenn
Rúnar Þór Ingvarsson Starfsmaður
Bjarni Daníel Daníelsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Bjarni Daníelsson Sviðsstjóri framkvæmdasviðs
Dagskrá
1.
Dalvíkurhöfn verði tollhöfn
Málsnúmer 202104001
Til kynningar: Umsókn um Tollhöfn er komin áleiðis í ferli. Tollurinn óskaði eftir viðbótarupplýsingum í sína umsögn sem fer til ráðuneytisins. Þar mun ráðuneytið gera nauðsynlegar breytingar á reglugerð til að Dalvíkurhöfn geti talist til Tollhafnar.
Sviðsstjóri fór yfir stöðu mála.
2.
Fjárveiting til hafnaframkvæmda 2022
Málsnúmer 202110045
Tekið fyrir erindi frá Vegagerðinni dagsett 8. október 2021, tilkynning um verkefni á samgönguáætlun 2022. Gert er ráð fyrir endurbyggingu bryggju á Norðurgarði Dalvíkurhafnar (120 m, 9m dýpi). Heildarkostnaður verksins er 204 milj.króna m.vsk og er ríkishluti 75%. Heimahluti m.vsk er því 51 miljón króna og skiptist þannig:Árið 2022 8,8 milj.krÁrið 2023 25,3 milj.krÁrið 2024 16,9 milj.krÞað er ósk Vegagerðarinnar að fjallað verði um þessar framkvæmdir heima fyrir og stofnuninni sent samþykki eða athugasemdir hafnarstjórnar vegna þeirra. Einnig er óskað eftir staðfestingu á að hafnarsjóðurinn geti staðið undir heimahluta framkvæmdakostnaðar og að gert sé ráð fyrir því í fjárhagsáætlun sveitarfélagsins.
Veitu- og hafnaráð gerir ekki athugasemdir við áformaðar framkvæmdir og leggur til að gert verði ráð fyrir mótframlagi sveitarfélagsins í fjárhagsáætlun næsta árs.
Samþykkt samhljóða með 5 atkvæðum.
3.
Smávirkjanir í Dalvíkurbyggð (Brimnesárvirkjun)
Málsnúmer 201407032
Yfirferð á stöðu verkefnisins og verksamningur við Mannvit til staðfestingar ráðsins.
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum fyrir sitt leiti fyrirliggjandi drög að ráðgjafasamningi við Mannvit. Jafnframt óskar ráðið eftir að farið verði yfir og uppfærð kostnaðar- og hagkvæmniathugun virkjunarinnar.
4.
Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2021
Málsnúmer 202102001
Lögð fram til kynningar
5.
Umsókn um stækkun á bryggjutank
Málsnúmer 202111004
Olís óskar eftir því að fá að stækka hjá sér bryggjutank þar sem núverandi geymir annar ekki eftirspurn.
Veitu- og hafnaráð samþykkir með fimm atkvæðum fyrir sitt leyti að heimila stækkun á bryggjutank með fyrirvara um að framkvæmdin samræmist lögum og reglum um mengunarvarnir í höfnum.
6.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2022
Málsnúmer 202108009
Lagt er til að Framkvæmdasvið fari yfir fjárhagsáætlunina og komi með tillögur að frekari niðurskurði á rekstrar- og fjárfestingaáætlun 2022-2025.
Veitu- og hafnaráð fór yfir starfs- og fjárhagsáætlun 2022 og felur sviðsstjóra að fullvinna tillögur að hagræðingu í rekstrar- og fjárhagsáætlun 2022-2025. samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.