Fara í efni

Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar

102. fundur
12. mars 2021 kl. 08:00 - 10:15
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Sigurður Valdimar Bragason formaður
Monika Margrét Stefánsdóttir varaformaður
Ásdís Svanborg Jónasdóttir aðalmaður
Kristján Hjartarson aðalmaður
Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson aðalmaður
Starfsmenn
Þorsteinn K. Björnsson sviðsstjóri
Rúnar Þór Ingvarsson Starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Þorsteinn K. Björnsson sviðsstjóri veitu- og hafnasviðs
Dagskrá
1.
Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2021
Málsnúmer 202102001
Fundargerð 432. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands. Fundurinn var haldinn föstudaginn 19. febrúar 2021 kl. 11:30 og fór hann fram í gegnum fjarfundarbúnað.
Lagt fram til kynningar.
2.
Móttaka á sorpi á hafnasvæðum
Málsnúmer 202103024
Með vísan til 4. dagskrárliðar 432. fundar Hafnasambandsins, sem er á dagskrá ráðsins hér að framan: "Samræmd móttaka á sorpi frá skipum í öllum höfnum" þar sem segir: "Lagt fram bréf Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, dags. 10. febrúar 2021, þar sem hafnasambandið er hvatt til að vinna að samræmingu á verklagi og tryggja aðstöðu í höfnum fyrir skip til að skila af sér flokkuðu sorpi. Og ennfremur að tryggja að móttökuaðilar hafna séu í stakk búnir að koma úrgangi sem kemur flokkaður að landi, til endurvinnslu"
Veitu- og hafnaráð felur sviðsstjóra að tryggja það að móttaka á endurvinnanlegum úrgangi frá skipum og bátum verði möguleg hjá höfnum Hafnasjóðs.
3.
Hafnarfundur 2021
Málsnúmer 202103025
Með rafbréfi, sem dagsett er 5.mars 2021, er boðað til hafnafundar en þar segir: "Stjórn Hafnasambands Íslands boðar hér með til 10. hafnafundar, sem haldinn verður í Hafnarfirði, föstudaginn 21. maí nk. Gert er ráð fyrir að dagskrá fundarins hefjist um kl. 10:30 og að formlegum fundahöldum ljúki um kl. 16:00 sama dag. Ef aðstæður leyfa verður í framhaldi farið í kynnisferð um Hafnarfjarðarhöfn og endað í móttöku og hátíðarkvöldverði. Nánari upplýsingar verða sendar út þegar nær dregur.
Lagt fram til kynningar.
4.
Til umsagnar frumvarp til laga um hafnalög (EES-reglur, gjaldtaka, rafræn vöktun), 509. mál.
Málsnúmer 202102157
Með rafpósti, sem dagsettur er 23.2.2021, sendir Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis til umsagnar frumvarp til laga um hafnalög (EES-reglur, gjaldtaka, rafræn vöktun), 509. mál. Einnig kemur fram að óskað sé að umsögnin berist eigi síðar en 9. mars 2021.Í 5. kafla í greinargerðinni með frumvarpinu kemur fram að sjö umsagnir bárust þar á meðal frá Hafnasambandinu.
Lagt fram til kynningar.
5.
Árskógssandshöfn, frumrannsókn vegna ókyrrðar í höfninni.
Málsnúmer 202103040
Fyrir fundinum liggur tillaga að lengingu brimvarnargarðs við Árskógssandshöfn til að auka kyrrð fyrir aust-norðaustan vindölduFram kemur í máli hönnuðar að annars vegar er garðurinn lengdur fram um 60 m með nær óbreyttri stefnu og hins vegar með breyttri stefnu sem liggur meira með landinu. Með síðari stefnunni fæst betra skjól en á hinn bóginn verður þannig minna svigrúm fyrir báta sem sinna fiskeldi innan garðs og jafnframt verður eitthvað þrengra að komast til hafnar.Einnig eru lagðar fram teikningar til frekari skýringar.
Í framhaldi af upplýsingum frá hafnardeild Vegagerðarinnar samþykkir veitu- og hafnaráð að óska eftir frekari straumfræðiathugunum í Árskógssandshöfn.
Með vísan til 4. dagskráliðar 101. fundargerðar veitu- og hafnaráðs samþykkir veitu- og hafnaráð að upplýsingum sem unnar hafa verið af hafnadeild Vegagerðarinnar verði komið til umsækjanda um landfyllingu við Árskógssandhöfn og jafnframt að notendum hafnarinnar verði kynnt fyrirhuguð framkvæmdaáform.