Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar
101. fundur
3. febrúar 2021
kl.
14:00
-
16:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Sigurður Valdimar Bragason
formaður
Monika Margrét Stefánsdóttir
varaformaður
Ásdís Svanborg Jónasdóttir
aðalmaður
Kristján Hjartarson
aðalmaður
Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson
aðalmaður
Starfsmenn
Þorsteinn K. Björnsson
sviðsstjóri
Rúnar Þór Ingvarsson
Starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Þorsteinn K. Björnsson
sviðsstjóri veitu- og hafnasviðs
Dagskrá
1.
Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2020
Fyrir fundinum voru lagðar fram eftirfarandi fundargerðir:Fundargerð 428. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands. Fundurinn var haldinn föstudaginn 13. nóvember 2020 og hófst hann kl. 11:00, um var að ræða fjarfund.Fundargerð 429. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands. Fundurinn var haldinn fimmtudaginn 26. nóvember 2020 og hófst hann kl. 15:00, um var að ræða fjarfund.Fundargerð 430. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands. Fundurinn var haldinn föstudaginn 11. desember 2020 og hófst hann kl. 11:30, um var að ræða fjarfund.
Lagðar fram til kynningar.
2.
Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2021
Fundargerð 431. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands. Fundurinn var haldinn föstudaginn 22. janúar 2021 og hófst hann kl. 11:30, um var að ræða fjarfund.
Lögð fram til kynningar.
4.
Fyrirhugað seiðaeldi við Árskógssand.
Á 347. fundi Umhverfisráðs, sem haldinn var 08.01.2021 var eftirfarandi fært til bókar:"Umhverfisráð vísar framlagðri tillögu til skoðunar hjá veitu- og hafnarráði og siglingarsviði Vegagerðarinnar."Í inngangi Umhverfisráðs með ofangreinu erindi segir:"Með innsendu erindi dags. 5. janúar 2021 óskar Guðmundur Valur Stefánsson fyrir hönd Laxóss ehf. eftir að meðfylgjandi útfærsla á landfyllingu verði tekin til efnislegrar meðferðar varðandi skipulagsbreytingu."Á fundinum var kynntur uppdráttur af umræddri landfyllingu þar sem fram kemur að viðlega skipa næst hafnarmynni Árskóssandshafnar mun þrengja verulega innsiglingu skipa til hafnarinnar. Lega þessarar landfyllingar er enn í mótun hjá framkvæmdaaðila og áhrif hennar á Árskógssandshöfn hefur ekki verið metin hjá Hafnadeild Vegagerðar og því ekki mögulegt að taka afstöðu til erindisins.
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með fimm atkvæðum að fresta afgreiðslu erindisins.
5.
Rotþrær í Dalvíkurbyggð og losun þeirra.
Á fundinum var kynnt álagning rotþróargjalds og niðurstöður tæminga á þeim á síðustu árum. Á árinu 2020 voru settar niður 7 rotþrær á eftirtöldum stöðum: Þorsteinsstaðir, Göngustaðakot, Ytra-hvarf (íbúðarhús og fjós), Álfafell, Ásgarður og Hrafnsstaðir (tvö íbúðarhús).
Veitu- og hafnaráð óskar eftir því að sviðsstjóri leggi fram lista yfir húsnæði sem ekki eru með rotþró og ekki eru tengd fráveitukerfi sveitarfélagsins á næsta fund ráðsins.
6.
Umsókn um styrk til fráveituframkvæmda.
Eftirfarandi kynnt á vef Umhverfis- og auðlindaráðuneytis. Opnað hefur verið fyrir umsóknir sveitarfélaga um styrki til fráveituframkvæmda. Umsóknarfrestur vegna styrkjanna er til 31. mars 2021. Skila skal inn umsóknum á rafrænu formi á eyðublaðavef Stjórnarráðsins.Skilyrði er að fráveituframkvæmdin sé áfangi í heildarlausn á fráveitumálum sveitarfélags í samræmi við áætlun sem hlotið hefur samþykki umhverfis- og auðlindaráðuneytisins. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er kveðið á um að gera þurfi átak í fráveitumálum í samstarfi ríkis og sveitarfélaga. Í fjárlögum ársins í ár er gert ráð fyrir að 800 m.kr. verði varið til þess að styrkja sveitarfélög vegna fráveituframkvæmda, en áður hafði verið ákveðið að 200 m.kr. yrði varið til þessa vegna framkvæmda síðasta árs. Styrkhæfar fráveituframkvæmdir eru framkvæmdir við safnkerfi fráveitna, hreinsivirki, dælustöðvar og útrásir."
Veitu- og hafnaráð felur sviðsstjóra að senda inn greinargerð og áætlun Fráveitu Dalvíkurbyggðar um heildarlausnir í fráveitumálum og umsókn um styrk vegna framkvæmda Fráveitu Dalvíkurbyggða á árinu 2020 og einnig vegna fyrirhugaðra framkvæmda á þessu ári.
7.
Framkvæmdir árið 2020
Sviðsstjóri fór yfir stöðu framkvæmda á veitu- og hafnasviði á árinu 2020.
Lagt fram til kynningar.