Fara í efni

Ungmennaráð

49. fundur
16. apríl 2026 kl. 14:00 - 16:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Þröstur Leó Sigurðsson
Valgerður Fríður Lórenz Tryggvadóttir
Bríet Þóra Karlsdóttir
Viktor Logi Hjálmarsson
María Aðalrós Sigurðardóttir
Starfsmenn
Hera Margrét Guðmundsdóttir starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Hera Margrét Guðmundsdóttir Frístundafulltrúi Dalvíkurbyggðar
Dagskrá
1.
Ungmennaþing SSNE á Húsavík
Málsnúmer 202604068
Bríet Þóra og María Aðalrós kynntu fyrir nefndarmeðlimum ferð sína á Húsavík á Ungmennaþingi SSNE 2026.Farið var yfir helstu niðurstöður þingsins, þar sem meðal annars kom fram að ungt fólk kallar eftir skýrara hlutverki ungmennaráða, auknum raunverulegum áhrifum í ákvarðanatöku sveitarfélaga og bættri eftirfylgni mála. Ungmennaráð ræddi þessi atriði og lýsti yfir áhuga á að funda oftar og taka fleiri mál til umfjöllunar.
2.
Berist til Ungmennaráðs
Málsnúmer 202602052
Ungmennaráð fagnar erindinu og hefur mikinn áhuga á að taka þátt í verkefninu þegar frekari útfærsla liggur fyrir.
3.
UNICEF á Íslandi hefur opnað fyrir umsóknir um þátttöku í verkefninu Barnvæn sveitarfélög
Málsnúmer 202509009
Ungmennaráð fagnar erindinu um þátttöku í verkefninu Barnvænt sveitarfélag og að málið hafi verið lagt fyrir ráðið. Ungmennaráð lýsir fullum stuðningi við að Dalvíkurbyggð innleiði verkefnið, hefur áhuga á að fylgjast með framhaldinu og er reiðubúið að leggja sitt af mörkum við innleiðingu þess.
4.
Hugmyndavinna á aðstöðu þar sem klifurveggur var
Málsnúmer 202603130
Ungmennaráð er fullt af góðum hugmyndum varði framtíð Dallas og þetta ónýtta rými. Fram komu hugmyndir um listasmiðju, upptöku- og myndaver, eldhús, píluaðstöðu, tölvuver fyrir rafíþróttaklúbb, rými til líkamsræktar, fablab o.fl.Ungmennaráð bendir á að rýmið gæti orðið veruleg búbót fyrir starfsemi félagsmiðstöðvarinnar Dallas. Slík framkvæmd myndi efla starfsemina og gera félagsmiðstöðinni kleift að bjóða upp á enn fjölbreyttara starf. Ráðið lýsir yfir vilja til að taka þátt í frekari mótun og þróun verkefnisins í samstarfi við viðeigandi aðila.