Fara í efni

Ungmennaráð

36. fundur
4. nóvember 2022 kl. 16:00 - 17:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Íris Björk Magnúsdóttir aðalmaður
Íssól Anna Jökulsdóttir varaformaður
Fannar Nataphum Sigurbjörnsson aðalmaður
Michal Oleszko aðalmaður
Starfsmenn
Gísli Rúnar Gylfason starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Gísli Rúnar Gylfason Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Dalvíkurbyggðar
Dagskrá
1.
Ungmennaþing SSNE
Málsnúmer 202112048
Íssól Anna Jökulsdóttir og Íris Björk Magnúsdóttir tóku þátt fyrir hönd Ungmennaráðs Dalvíkurbyggðar í Ungmennaþingi SSNE sem haldið var á Dalvík 13.-14. október. Unnið er að lokaskýrslu um þingið og verður hún kynnt á næsta fundi.
2.
Verkefni Ungmennaráðs 2022
Málsnúmer 202203060
Rætt um hvaða verkefni ungmennaráð sér fyrir sér að sinna.
Ráðið óskar eftir fundi með sviðsstjórum Dalvíkurbyggðar til að kynna sínar áherslur og minna á mikilvægi ráðsins. Einnig óskar ráðið eftir því að fá að koma inn á fund Byggðaráðs við fyrsta tækifæri til að kynna áherslur og mikilvægi ráðsins.
Einnig ætlar ráðið að vera með kakó og piparkökur þegar jólasveinarnir mæta á svalirnar í kaupfélaginu í desember.