Fara í efni

Ungmennaráð

30. fundur
14. febrúar 2021 kl. 15:00 - 16:30
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Daníel Rosazza aðalmaður
Magnús Rosazza formaður
Þröstur Ingvarsson varaformaður
Þormar Ernir Guðmundsson aðalmaður
Rebekka Ýr Davíðsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Gísli Rúnar Gylfason starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Gísli Rúnar Gylfason íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Dalvíkurbyggðar
Dagskrá
1.
Um hlutverk og tilgang ungmennaráðs sveitarfélaga - hvatning til sveitarfélaga
Málsnúmer 202008074
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi gerði grein fyrir fundi sem hann átti með umboðsmanni barna og fulltrúum Sambands íslenskra sveitarfélaga. Þar var rætt um stöðu ungmennaráða og var ákveðið að vinna þetta frekar saman með það að markmiði að skýra betur hlutverk ungmennaráða.
2.
Handbók starfsmanna félagsmiðstöðvar
Málsnúmer 202101131
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi gerði grein fyrir handbókinni. Henni er ætlað að leiðbeina starfsfólki við ákvörðunartöku í erfiðum aðstæðum. Þar er t.a.m. að finna verkferla vegna eineltis og ofbeldis, viðbragð við neyslu tóbaks og áfengis sem og ýmsar viðbragðsáætlanir, t.d. vegna jarðskjálfta. Þessi handbók verður yfirfarin og uppfærð á vinnufundi starfsmanna að hausti ár hvert.
Ungmennaráð fór yfir handbókina og gerir engar athugasemdir við hana.