Fara í efni

Ungmennaráð

22. fundur
9. apríl 2019 kl. 16:00 - 18:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Daníel Rosazza
Magnús Rosazza
Þröstur Ingvarsson
Þormar Ernir Guðmundsson
Rebekka Ýr Davíðsdóttir
Starfsmenn
Gísli Rúnar Gylfason starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Gísli Rúnar Gylfason Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Dalvíkurbyggðar
Dagskrá
1.
17. júní hátíðarhöld 2019
Málsnúmer 201904055
Farið var yfir dagskrá 17. júní síðustu ára.
Ungmennaráð telur dagskrána vera góða eins og hún hefur verið uppsett undanfarin ár. Ráðið leggur til að meira verði gert úr sundlaugarskemmtun seinni partinn, t.d. að keppt verði í koddaslag á slá yfir sundlauginni. Einnig leggur ráðið til að skipt verði eftir aldri í sundskemmtunina. Fyrst verði allir velkomnir í sund og um kvöldið verði eingöngu fyrir 13-18 ára.
2.
Sumarnámskeið 2019
Málsnúmer 201904056
Í sumar á að endurvekja sumarnámskeiðin sem síðast voru sumarið 2016. Farið var yfir hvað var gert 2016.
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi fékk hugmyndir frá ungmennaráði um hvað það telur hentugt á slíku námskeiði.
3.
Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslu- og menningarsviðs 2019
Málsnúmer 201806132
Farið yfir starfsáætlun fræðslu- og menningarsviðs.
Ungmennaráð fór yfir íþrótta- og æskulýðshluta starfsáætlunar og sérstaklega var rætt um starfsemi félagsmiðstöðvar. Ákveðið að ræða frekar um þá starfsemi í haust í tengslum við starfs- og fjárhagsáætlunargerð.