Fara í efni

Ungmennaráð

12. fundur
31. janúar 2017 kl. 17:30 - 19:00
í Múla á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Hera Margrét Guðmundsdóttir Aðalmaður
Patrekur Óli Gústafsson Aðalmaður
Eiður Máni Júlíusson Aðalmaður
Björgvin Páll Hauksson aðalmaður
Birna Kristín Kristbjörnsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Gísli Rúnar Gylfason starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Gísli Rúnar Gylfason Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Dalvíkurbyggðar
Dagskrá
1.
Íbúaþing ungmenna
Málsnúmer 201701136
Margrét Víkingsdóttir kom á fundinn kl. 17:30 og kynnti hugmyndir atvinnumála- og kynningarráðs um íbúaþing. Ungmennaráð tekur jákvætt í þær hugmyndir að ráðið taki að sér svipað þing eingöngu fyrir ungmenni. Stefnt er á að halda þing fyrir ungmenni fimmtudaginn 9. febrúar.
2.
Verkefni á vegum Ungmennaráðs 2017
Málsnúmer 201701137
Rætt um ýmis verkefni sem ungmennaráð getur staðið að árið 2017. Frekari umræða á næsta fundi.