Umhverfisráð
372. fundur
6. maí 2022
kl.
08:15
-
11:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Júlíus Magnússon
formaður
Monika Margrét Stefánsdóttir
varaformaður
Lilja Bjarnadóttir
aðalmaður
Emil Júlíus Einarsson
aðalmaður
Þórunn Andrésdóttir
varamaður
Starfsmenn
Helga Íris Ingólfsdóttir
embættismaður
Bjarni Daníel Daníelsson
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Helga Íris Ingólfsdóttir
skipulags- og tæknifulltrúi
Dagskrá
1.
Umsókn um lóð - Hamar lóð 18
Með umsókn, dagsettri 8. apríl 2022, óskar Þórir Matthíasson eftir frístundalóð nr. 18 á Hamri.
Umhverfisráð samþykkir umsóknina og felur skipulags- og tæknifulltrúa að úthluta lóðinni.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
2.
Umsókn um lóð - Hamar lóð 8
Með umsókn, dagsettri 27. apríl 2022, óskar Christof Wenker eftir frístundalóð nr. 8 á Hamri.
Umhverfisráð samþykkir umsóknina og felur skipulags- og tæknifulltrúa að úthluta lóðinni.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
3.
Umsókn um lóð - Hringtún 10
Með umsókn, dagsettri 3. maí 2022, óskar Hafþór Helgason eftir lóðinni við Hringtún 10 á Dalvík.
Umhverfisráð samþykkir umsóknina og felur skipulags- og tæknifulltrúa að úthluta lóðinni.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
4.
Umsókn um framkvæmdaleyfi - Malartekja úr Svarfaðardalsá
Með tölvupósti, dagsettum 26. apríl 2022, óskar Karl Ingi Atlason eftir framkvæmdaleyfi vegna fyrirhugaðrar 2300 rúmmetra malartekju úr Svarfaðardalsá í landi Hóls og Búrfells. Meðfylgjandi eru gögn unnin af Erlendi Steinari Friðrikssyni sérfræðingi í búsvæðum laxfiska, sem sýna hvernig staðið verður að malartökunni og jákvæð umsögn Veiðifélags Svarfaðardalsár.
Umhverfisráð veitir umbeðið framkvæmdaleyfi með fyrirvara um samþykki Fiskistofu og eigenda Búrfells.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
5.
Umsókn um framkvæmdaleyfi til skógræktar á lögbýlinu Syðra-Holti
Fyrir fundinum lá aftur umsókn Eiríks Gunnarssonar um framkvæmdaleyfi til skógræktar í Syðra-Holti en henni hafði verið vísað til landbúnaðarráðs til umsagnar. Í umsögn landbúnaðarráðs segir: Landbúnaðarráð gerir engar athugasemdir við skógrækt á svæðinu sem afmarkast af hnitum 5 til 13. Skoða þarf vel svæðið milli hnita 4 og 5 m.t.t. snjósöfnunar við veg og vegna þess að um er að ræða ræktað land. Landbúnaðarráð leggst gegn því að skógrækt verði leyfð á svæði sem afmarkast af hnitum 1-3 neðan við veg af sömu ástæðum og telur að mikil hætta geti skapast vegna snjósöfnunar.Samþykkt samhljóða með fjórum atkvæðum.
Umhverfisráð tekur undir umsögn landbúnaðarráðs og veitir framkvæmdaleyfi til skógræktar á milli hnitpunkta 4-13 en ekki milli hnitpunkta 1-3 á uppdrætti sem er svæðið fyrir neðan veg.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
6.
Breyting á deiliskipulagi Hóla- og Túnahverfis - Hringtún 42-48
Á 368. fundi umhverfisráðs var tekin fyrir umsókn frá EGO hús ehf. um breytingu á deiliskipulagi Hóla- og Túnahverfis. Sótt var um að fjölga íbúðum á lóðinni Hringtún 42-48 úr fjórum í sex. Breytingunni var vísað í grenndarkynningu skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Á 342. fundi sínum þann 15. febrúar 2022 samþykkti Sveitarsjórn afgreiðslu umhverfisráðs með útvíkkun á grenndarkynningu þannig að hún næði til fleiri hagsmunaaðila. Grenndarkynningin var send til eigenda Hringtúns 1, 2, 17, 19, 21, 25, 30, 32, 38 og 40, Steintúns 1 og 2 og 4 og Böggvisbrautar 10. Grenndarkynningin var send út 23. mars 2022 og athugasemdafrestur var gefinn til 22. apríl 2022. Fjórar athugasemdir bárust.
Umhverfisráð hafnar umsókn EGO hús ehf. um breytingu á deiliskipulagi Hóla- og Túnahverfis að teknu tilliti til þeirra athugasemda sem bárust við grenndarkynninguna og sneru að umferðaröryggi.
Samþykkt samhljóða með fjórum atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fjórum atkvæðum.
7.
Deiliskipulag fyrir nýtt íbúðahverfi sunnan Dalvíkur
Farið yfir forsendur og helstu markmið fyrir nýtt íbúðahverfi sunnan Dalvíkur. Samkvæmt gildandi aðalskipulagi er gert ráð fyrir íbúðahverfi á þessu svæði.
Umhverfisráð leggur til að þessar forsendur verði lagðar til grundavallar við hönnun á nýju íbúðahverfi sunnan Dalvíkur og felur starfsmönnum Framkvæmdasviðs að leita tilboða skipulagsráðgjafa.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
8.
Íslandsþari - umsagnarbeiðni
Fyrir fundinum lá ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu á landvinnslu stórþara á Dalvík eða Húsavík. Niðurstaðan er að stofnunin telji að fyrirhuguð framkvæmd sé ekki líkleg til þess að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif og því skuli hún ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
Lagt fram til kynningar.
9.
Beiðni um umsögn vegna landeldis Laxós á Árskógssandi
Með bréfi, dagsettu 28. apríl 2022, óskar Andri Snær Þorsteinsson fyrir hönd Matvælastofnunar eftir umsögn Dalvíkurbyggðar um rekstrarleyfi vegna landeldis á Árskógssandi. Sótt er um eldi fyrir 400 tonna hámarkslífmassa í seiðaeldi á laxi og mun frárennsli stöðvarinnar vera út í Eyjafjörð eftir síun. Framkvæmdin er ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Í samræmi við 7. gr. laga nr. 71/2008 um fiskeldi óskar Matvælastofnun eftir umsögn sveitarfélagsins Dalvíkurbyggð vegna fyrirhugaðrar leyfisveitingar um það hvort náttúrulegar aðstæður á fyrirhuguðu starfssvæði fiskeldisstöðvarinnar eða fyrirhugaðar eldistegundir, eldisstofnar eða eldisaðferðir gefi tilefni til neikvæðra vistfræði- eða erfðafræðiáhrifa sem leitt getur af leyfisskyldri starfsemi.Athuga ber að aðeins er sótt um rekstrarleyfi fyrir áfanga 1 í tilkynningu framkvæmdaraðila sem barst Skipulagsstofnun.Umsögn óskast send Matvælastofnun fyrir 26. maí 2022.
Umhverfisráð telur sig ekki geta gefið umsögn byggða á þeim gögnum sem liggja fyrir. Óskað er eftir fresti á skilum umsagnar ásamt frekari gögnum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
10.
Stækkun á tjaldsvæði og búningsaðstöðu í Sandvíkurfjöru á Hauganesi
Með tölvupósti, dagsettum 13. apríl 2022, óskar Elvar Reykjalín, fyrir hönd Ektafisks ehf., eftir leyfi til stækkunar á tjaldsvæði á Hauganesi, leyfi til þess að slétta úr og bera mold í land ofan fjörunnar, leyfi til þess að brúa læk og leyfi til þess að stækka búningaðstöðu við pottana í Sandvíkurfjöru.
Umhverfisráð bendir umsækjanda á að búið var að taka afstöðu til umræddrar stækkunar á tjaldsvæði í deiliskipulagsferlinu fyrir Hauganes og henni hafnað. Umsækjanda er frjálst að gera athugasemd við uppfærð deiliskipulagsdrög sem nú eru í auglýsingu.
Umhverfisráð heimilar umsækjanda að brúa læk, slétta úr órækt og útbúa stíg ofan Sandvíkur enda gerir hann það á eigin kostnað.
Umhverfisráð vísar fyrirhugaðri stækkun á búningsaðstöðu við potta í Sandvíkurfjöru til afgreiðslufundar byggingafulltrúa.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Umhverfisráð heimilar umsækjanda að brúa læk, slétta úr órækt og útbúa stíg ofan Sandvíkur enda gerir hann það á eigin kostnað.
Umhverfisráð vísar fyrirhugaðri stækkun á búningsaðstöðu við potta í Sandvíkurfjöru til afgreiðslufundar byggingafulltrúa.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
11.
Svæðisskipulagsnefnd 2022
Fyrir fundinum lá fundargerð 9. fundar Svæðisskipulagsnefndar Eyjafjarðar sem haldinn var á Akureyri 3. maí 2022.
Lagt fram til kynningar.
12.
Afgreiðslufundur byggingafulltrúa - 13
Lögð fram til kynningar fundargerð 13. afgreiðslufundar byggingafulltrúa Dalvíkurbyggðar.