Fara í efni

Umhverfisráð

367. fundur
13. janúar 2022 kl. 08:15 - 09:45
í fjarfundi
Nefndarmenn
Júlíus Magnússon formaður
Monika Margrét Stefánsdóttir varaformaður
Eva Björg Guðmundsdóttir aðalmaður
Lilja Bjarnadóttir aðalmaður
Snæþór Arnþórsson varamaður
Starfsmenn
Helga Íris Ingólfsdóttir embættismaður
Bjarni Daníel Daníelsson embættismaður
Katrín Sigurjónsdóttir
Fundargerð ritaði:
Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Áskorun um endurákvörðun álagningar stöðuleyfisgjalda
Málsnúmer 202103082
Með fundarboði fylgdu drög að reglum um stöðuleyfi í Dalvíkurbyggð.
Umhverfisráð samþykkir samhljóða með 4 atkvæðum framlögð drög að reglum um stöðuleyfi í Dalvíkurbyggð og vísar þeim til afgreiðslu í sveitarstjórn.
2.
Fyrirhugað seiðaeldi við Árskógssand.
Málsnúmer 201608099
Til kynningar staða á umsókn Laxóss um seiðaeldisstöð á Árskógssandi en fyrirhugað er að halda kynningarfund meðal íbúa á drögum að breytingum á aðalskipulagi og deiliskipulag vegna verkefnisins þann 19. janúar nk. Það nær til lóðar við Öldugötu á Árskógssandi vegna frumeldis og uppfyllingar austan ferjubryggju vegna áframeldis.
Umhverfisráð óskar eftir við upplýsingafulltrúa að kynningarfundurinn verði auglýstur vel á öllum miðlum sveitarfélagsins, íbúasíðum og meðal hagaðila Árskógssandshafnar, s.s. útgerðaraðila, rekstraraðila Hríseyjarferjunnar og siglingasviðs Vegagerðarinnar.
3.
Umsókn um framkvæmdaleyfi - prufugryfjur meðfram farvegi Brimnesár
Málsnúmer 202111017
Á 365. fundi umhverfisráðs þann 5. nóvember 2021 samþykkti ráðið samhljóða að veita Mannvit framkvæmdaleyfi vegna graftrar á 15 prufugryfjum meðfram Brimnesá en lagði áherslu á að jarðvegsraski yrði haldið í lágmarki og að frágangur að framkvæmd lokinni yrði þannig að sem minnst ummerki sjáist.Nú er búið er að taka prufuholur 8-15. Það er frá girðingu og niður að fyrirhuguðu stöðvarhúsi. Eftir er að taka holur 1-7 en þær eru á Upsadal á leiðinni frá stíflustæði niður að girðingu. Svæðið er frekar erfitt yfirferðar og líklegt að nauðsynlegt verði að taka sneiðing niður í einum bratta. Þetta kallar á meira rask en gert var ráð fyrir í byrjun.Mannvit óskar eftir staðfestingu umhverfisráðs á að mega ljúka við framkvæmdina. Gætt verður að því að fara að öllu eins varlega og hægt er og þannig að hægt sé að lagfæra að mestu, komi ekki til virkjunar.
Umhverfisráð samþykkir samhljóða með 4 atkvæðum að heimila Mannvit að ljúka við að taka prufuholur 1-7 og gæti eins og hægt er að jarðraski þannig að ummerkjum verði haldið í lágmarki.
4.
Moldhaugnaháls, Hörgársveit - skipulagslýsing vegna aðalskipulagsbreytingar
Málsnúmer 202112029
Tekið fyrir erindi dagsett 6. desember 2021 frá sveitarstjórn Hörgársveitar en sveitarstjórnin samþykkti á fundi sínum 30. nóvember 2021 að vísa skipulagslýsingu fyrir breytingu á Aðalskipulagi Hörgársveitar 2012-2024 í kynningarferli skv. 1. mgr. 30 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsverkefnið tekur til breytinga á skilmálum athafnasvæðis AT-1 og afþreyingar- og ferðaþjónustusvæðis AF-2 á Moldhaugnahálsi vegna áforma um aukin umsvif á svæðinu. Skipulagsverkefnið tekur til framkvæmda sem tilgreindar eru í 1. viðauka laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021 og er gerð grein fyrir fyrirhuguðu umhverfismati skipulagsáætlunarinnar í lýsingunni.Lýsingin er send umsagnaraðilum til yfirferðar skv. 30. skipulagslaga nr. 123/2010 og er óskað eftir umsögn fyrir mánudaginn 3. janúar 2022.Ef ekki berst umsögn fyrir þann tíma er litið svo á að ekki sé gerð athugasemd við lýsinguna.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemd við framlagða skipulagslýsingu.
5.
Glæsibær, 2. áfangi - skipulagslýsing vegna aðal - og deiliskipulags íbúðarbyggðar
Málsnúmer 202112085
Tekið fyrir erindi dagsett 20. desember 2021 frá sveitarstjórn Hörgársveitar en sveitarstjórnin samþykkti á fundi sínum 17. desember sl. að vísa skipulagslýsingu vegna breytingar á aðalskipulagi Hörgársveitar 2012-2024 og vegna deiliskipulags fyrir nýtt íbúðarhverfi í landi Glæsibæjar í kynningarferli skv. skv. 1. mgr. 30. gr. og 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Markmið deiliskipulagsins er að skipuleggja 13 íbúðarlóðir á svæði sem er skilgreint sem skógræktar- og landgræðslusvæði í gildandi aðalskipulagi. Með framlagningu lýsingar hefst samráð við íbúa, aðra hagsmunaaðila og umsagnaraðila um gerð deiliskipulagsins og breytingar á aðalskipulagi.Lýsingin eru send umsagnaraðilum til yfirferðar skv. 30. og 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og óskað eftir umsögn eigi síðar en miðvikudaginn 12. janúar 2022. Ef ekki berst umsögn innan þess tíma verður litið svo á að ekki sé gerð athugasemd við lýsinguna.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemd við framlagða skipulagslýsingu.
6.
Ósk um breytingu á deiliskipulagi Lokastígsreits - Lokastígur 6
Málsnúmer 202110051
Á fundi umhverfisráðs, þann 5. nóvember 2021, var tekin fyrir ósk Modulus eignarhaldsfélags ehf. um breytingu á deiliskipulagi Lokastígsreits. Umhverfisráð samþykkti erindið og lagði til að breyting á deiliskipulagi Lokastígsreits yrði auglýst skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.Með fundarboði fylgdu athugasemdir skipulagshöfundar deiliskipulags Lokastígsreits varðandi fyrirhugaðar breytingar á deiliskipulaginu og afgreiðslu umhverfisráðs á breytingartillögunni. Einnig liggja fyrir svör frá framkvæmdaaðila við umræddum athugasemdum.
Umhverfisráð stendur við fyrri bókun sína frá fundi sínum þann 5. nóvember sem var staðfest í sveitarstjórn þann 23. nóvember 2021 og felur skipulagsfulltrúa að auglýsa deiliskipulagsbreytinguna skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
7.
Deiliskipulag þjóðvegarins í gegnum Dalvík
Málsnúmer 202011010
Á fundi umhverfisráðs þann 3. desember 2021 var lögð fram deiliskipulagstillaga fyrir þjóðveginn í gegnum Dalvík. Umhverfisráð bókaði eftirfarandi:Umhverfisráð er ánægt með fyrirliggjandi deiliskipulagsdrög að undanskildum gatnamótum við Svarfaðardalsveg vestari (við Árgerði) annars vegar og Karlsrauðatorg hins vegar. Umhverfisráð telur að bráðnauðsynlegt sé að á báðum þessum gatnamótum verði sett hringtorg til að auka umferðaöryggi. Fyrir fundinum nú lá minnisblað með samanburði á hringtorgum og kross eða t-gatnamótum við Svarfaðadalsveg vestari og Karlsrauðatorg unnið af Eflu. Að mati skipulagshöfunda eru ókostir við hringtorgin mikill kostnaður og meira rask og mæla þeir með að skipulagstillagan haldi sér með fyrri tillögum að breytingum.
Umhverfisráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum fyrirliggjandi drög að deiliskipulagi og leggur til við sveitarstjórn að deiliskipulagstillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
8.
Umsókn um lóð - Sandskeið 20
Málsnúmer 202106167
Tekin fyrir beiðni frá Berki Þór Ottóssyni dagsett 17. desember 2021 þar sem hann óskar eftir að afgreiðsla frá 358. fundi umhverfisráðs sem haldinn var þann 12. júlí 2021 og á 361. fundi ráðsins þann 03. september saman ár verði tekið upp að nýju og afgreitt.Einnig fylgdi fundarboði tölvupóstur frá Berki dagsettur 11. janúar 2022 með rökum fyrir að lóðinni sé úthlutað.
Umhverfisráð ítrekar að nauðsynlegt sé að deiliskipuleggja athafnasvæðið við Sandskeið og þegar það liggur fyrir og er samþykkt þá séu nýjar lóðir auglýstar lausar til umsóknar.

Umhverfisráð leggur til að vinna verði hafin sem allra fyrst við deiliskipulagsgerðina með það að markmiði að ljúka henni á vordögum 2022.
9.
Vinnuhópur um brunamál
Málsnúmer 202110061
Lagðar fram til kynningar fundargerðir vinnuhóps um brunamál frá fjórum fundum hópsins október-desember 2021. Með fundarboði fylgdi einnig gróf kostnaðaráætlun fyrir fjóra kosti í húsnæðismálum Slökkviliðsins til framtíðar sem unnið er af Slökkviliðsstjóra. Allt gögn sem vinnuhópurinn kynnti byggðaráði á fundi ráðsins þann 6. janúar sl.
Lagt fram til kynningar.
10.
Framtíð og rekstur svæðisskipulags
Málsnúmer 202112107
Tekið fyrir erindi frá Þresti Friðfinnssyni, formanni svæðisskipulagsnefndar Eyjafjarðar, dagsett 29. desember 2021 um framtíð og rekstur svæðisskipulagsins.Eftir umræður á þingi SSNE sl. vor og á fundi nefndarinnar í desember um framtíð nefndarinnar, liggur fyrir tillaga sem óskað er eftir að verði tekin fyrir í öllum sveitarstjórnum í Eyjafirði sem fyrst á nýju ári þannig:"Starfsreglur svæðisskipulagsnefndar Eyjafjarðar verði uppfærðar þannig að í stað tveggja manna eigi hvert sveitarfélag einn mann í nefndinni. Laun formanns verði hálf laun formanns í stórri nefnd/ráði hjá Akureyrarbæ."
Umhverfisráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum fyrirliggjandi breytingartillögu að starfsreglum svæðisskipulagsnefndar Eyjafjarðar og vísar henni til afgreiðslu í sveitarstjórn.
11.
Svæðisskipulagsnefnd 2021
Málsnúmer 202105116
Til kynningar fundargerð svæðisskipulagsnefndar Eyjafjarðar frá 8. fundi nefndarinnar þann 14. desember 2021.
Lagt fram til kynningar.
12.
Afgreiðslufundur byggingafulltrúa - 10
Málsnúmer 2112009F
Lögð fram til kynningar fundargerð 10. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa Dalvíkurbyggðar.