Umhverfisráð
365. fundur
5. nóvember 2021
kl.
08:15
-
09:30
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Júlíus Magnússon
formaður
Monika Margrét Stefánsdóttir
varaformaður
Eva Björg Guðmundsdóttir
aðalmaður
Lilja Bjarnadóttir
aðalmaður
Emil Júlíus Einarsson
aðalmaður
Starfsmenn
Helga Íris Ingólfsdóttir
embættismaður
Bjarni Daníel Daníelsson
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Helga Íris Ingólfsdóttir
skipulags- og tæknifulltrúi
Dagskrá
1.
Umsókn um lóð - Skógarhólar 12
Með umsókn dagsettri 10. október 2021 sækja þau Guðni Berg Einarsson og Daria Szok um lóðina við Skógarhóla 12 á Dalvík.
Erindi samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
2.
Umsókn um endurnýjun lóðarleigusamnings samkvæmt deiliskipulagi
Tekin fyrir umsókn dagsett 2. nóvember 2021 frá Frey Antonssyni fyrir hönd Arctic Seatours ehf þar sem óskað er eftir því að lóðin við Hafnarbraut 21B verði aðgreind frá lóðinni að Hafnarbraut 21 og fái að standa við Sandskeið skv. deiliskipulagi Dalvíkurhafnar.
Umhverfisráð samþykkir erindið og felur skipulags- og tæknifulltrúa að ganga frá nýjum lóðarleigusamningum fyrir lóðirnar við Hafnarbraut 21 og 21B í samráði við lóðarhafa beggja lóða.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
3.
Umsókn um framkvæmdaleyfi - prufugryfjur meðfram farvegi Brimnesár
Með tölvupósti, dagsettum 11. október 2021, óskar Sverrir Óskar Elefsen fyrir hönd Mannvits eftir framkvæmdaleyfi vegna graftrar á 15 prufugryfjum meðfram Brimnesá til jarðgrunnsathugunar vegna Brimnesárvirkjunar. Meðfylgjandi er verklýsing og afstöðumynd með tillögu að staðsetningu á gryfjum.
Umhverfisráð samþykkir að veita umbeðið framkvæmdaleyfi en leggur áherslu á að jarðvegsraski verði haldið í lágmarki og að frágangur að framkvæmd lokinni verði þannig að sem minnst ummerki sjáist.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
4.
Dalvíkurlína 2 - Stígur meðfram lagnaleið
Tekið fyrir erindi frá Hestamannafélaginu Hring dagsett 8. október 2021 og tölvupóstur frá Snorra Finnlaugssyni, sveitarstjóra Hörgársveitar, frá 20. október 2021. Í báðum tilfellum er bent á að fyrirhuguð lagnaleið Dalvíkurlínu 2 gæti hentað vel sem reiðstígur á milli sveitarfélaga.
Umhverfisráð vísar erindunum til endurskoðunar Aðalskipulags Dalvíkurbyggðar. Samhliða endurskoðun Aðalskipulagsins verður unnið stígaskipulag fyrir Dalvíkurbyggð.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
5.
Ósk um breytingu á deiliskipulagi Lokastígsreits - Lokastígur 6
Tekin fyrir umsókn dagsett 5. október 2021 frá Hugrúnu Þorsteinsdóttur fyrir hönd Modulus eignarhaldsfélags ehf. um breytingu á deiliskipulagi Lokastígsreits. Deiliskipulagsbreytingin felst í auknu byggingamagni og stækkun og tilfærslu á byggingarreit á lóðinni við Lokastíg 6 á Dalvík. Meðfylgjandi er afstöðumynd og uppdráttur af breytingunni auk skuggavarpsmynda.
Umhverfisráð samþykkir erindið og leggur til að breyting á deiliskipulagi Lokastígsreits verði auglýst skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
6.
Snerra - breyting á deiliskipulagi
Á 358. fundi umhverfisráðs var samþykkt að deiliskipulagsbreyting fyrir Snerru yrði auglýst skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Byggðaráð Dalvíkurbyggðar staðfesti afgreiðslu umhverfisráðs á 992. fundi sínum þann 12. júlí 2021. Deiliskipulagsbreytingin var auglýst frá 30. júlí til og með 12. september 2021. Engar athugasemdir bárust á auglýsingatímanum.
Umhverfisráð samþykkir samhljóða með fimm atkvæðum framlagða breytingu á deiliskipulagi Snerru og leggur til að hún verði afgreidd skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
7.
Tilkynning um fyrirhugaða niðurfellingu Litlu-Hámundarstaðavegar nr 8102-01 af vegaskrá
Lögð fram tilkynning frá Vegagerðinni um fyrirhugaða niðurfellingu Litlu-Hámundastaðavegar nr 8102-01 af vegaskrá vegna þess að ekki er lengur föst búseta á Litlu-Hámundarstöðum.
Lagt fram til kynningar.
8.
Skýrsla um framtíðarskipan úrgangsmála á Norðurlandi
Lögð fram skýrsla um framtíðarskipan úrgangsmála á Norðurlandi sem unnin er af verkfræðistofunni Eflu og starfshópi um úrgangsmál á Norðurlandi fyrir SSNV og Eyþing (SSNE).
Lagt fram til kynningar.
9.
Fundargerðir HNE 2021
Lögð fram fundargerð 221. fundar Heilbrigðisnefndar Norðurlandssvæðis eystra frá 6. október 2021.
Lagt fram til kynningar.
10.
Samráðsgátt - Drög að reglugerð um sjálfbæra landnýtingu
Lögð fram drög að reglugerð um sjálfbæra landnýtingu sem eru í samráðsferli í samráðsgátt stjórnvalda.
Lagt fram til kynningar.
11.
Afgreiðslufundur byggingafulltrúa - 8
Lögð fram fundargerð frá 8. afgreiðslufundi byggingafulltrúa Dalvíkurbyggðar frá 15. október 2021.
Lagt fram til kynningar.