Fara í efni

Umhverfisráð

361. fundur
3. september 2021 kl. 08:15 - 12:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Monika Margrét Stefánsdóttir varaformaður
Eva Björg Guðmundsdóttir aðalmaður
Lilja Bjarnadóttir aðalmaður
Emil Júlíus Einarsson aðalmaður
Friðrik Vilhelmsson varamaður
Starfsmenn
Helga Íris Ingólfsdóttir embættismaður
Bjarni Daníel Daníelsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Helga Íris Ingólfsdóttir Skipulags- og tæknifulltrúi
Dagskrá
1.
Yfirferð á framkvæmdum sumarsins 2021.
Málsnúmer 202103193
Umhverfisráð fór yfir stöðu verkefna sumarsins með deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar. Ráðið leggur til að vegna fyrirhugaðrar framkvæmdar við sjóvörn við Framnes og Sæból og þeirra þungaflutninga sem þeim fylgja, verði yfirlögn frestað til næsta árs. Umhverfisráð leggur til að þeir fjármunir verði fluttir á verkefni E2118 - Opið svæði í Hringtúni.
Framkvæmdum við skjólbelti meðfram Hauganesvegi verði frestað þangað til deiliskipulag fyrir Hauganes liggur fyrir.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
2.
Dalvíkurlína 2 - lega jarðstrengs
Málsnúmer 202108059
Með tölvupósti, dagsettum 23. ágúst 2021, óskar Kristinn Magnússon hjá Mannvit eftir umsögn um fyrstu hugmyndir um legu Dalvíkurlínu 2 (DA2) frá Hámundarstaðahálsi að tengivirki í Höfðanum. Mannvit vinnur að hönnun á DA2 fyrir Landsnet, sem er 66kV jarðstrengur milli Rangarvalla á Akureyri og tengivirkisins við Dalvík. Meðfylgjandi er loftmynd með hugmynd að legu strengsins.
Umhverfisráð fagnar lagningu jarðstrengs og gerir ekki athugasemdir við fyrirhugaða lagnaleið. Umhverfisráð leggur til að hugað verði að því að nýta tækifærið og leggja göngu- og hjólastíg samhliða framkvæmdinni.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
3.
Lóðarleigusamningar - form og ferlar
Málsnúmer 202108050
Farið yfir form lóðarleigusamninga í Dalvíkurbyggð og hvort tilefni sé til breytinga.
Umhverfisráð felur skipulags- og tæknifulltrúa að leggja drög að stefnu Dalvíkurbyggðar í gerð lóðarleigusamninga.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
4.
Ósk um endurnýjun á lóðarleigusamningi
Málsnúmer 202108037
Með umsókn frá 12. ágúst 2021 óska eigendur Bárugötu 2 og Bárugötu 4 á Dalvík eftir endurnýjun á lóðarleigusamningum sínum þannig að þeir endurspegli raunnotkun. Meðfylgjandi er samþykki allra eigenda Bárugötu 2 og 4 og teikning af breytingum á lóðastærðum.
5.
Innskil á lóð - Garðatröð 1e Hamri
Málsnúmer 202108060
Með bréfi, dagsettu 23. ágúst 2021, skilar Sigríður Hjaltadóttir inn frístundalóðinni að Garðatröð 1e á Hamri.
Umhvefisráð samþykkir erindið samhljóða með fimm atkvæðum.
6.
Innskil á lóð - Hamar, lóð 17
Málsnúmer 202109006
Með tölvupósti, frá 1. september 2021, skila þau Arnheiður Hallgrímsdóttir og Páll Jóhannesson inn lóð nr. 17 á Hamri.
Umverfisráð felur skipulags- og tæknifulltrúa að bæta lóð 17 á Hamri aftur inn á lista yfir lausar lóðir.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
7.
Umsókn um framlengingu á lóðarúthlutun við Hringtún 13-15
Málsnúmer 201803057
Með tölvupósti frá 16. ágúst 2021 óskar Björn Friðþjófsson fyrir hönd Tréverk eftir að fá frest í eitt ár til að hefja framkvæmdir á lóðinni við Hringtún 13-15 sem úthlutað var til þeirra árið 2018.
Umhverfisráð veitir Tréverk ehf. frest til 1. október 2021 til þess að sækja um byggingarleyfi á lóðinni og leggja fram teikningar af fyrirhuguðu húsi.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
8.
Umsókn um lóð - Sandskeið 20
Málsnúmer 202106167
Lögð fram að nýju umsókn Barkar Þórs Ottóssonar um lóð að Sandskeiði 20 frá 29. júní sl.
Þar sem umrædd lóð (Baldurshagalóðin) er í raun ekki til í upprunalegri mynd telur umhverfisráð að áður en farið sé í að skilgreina og úthluta nýjum lóðum við Sandskeið þurfi deiliskipulag af svæðinu að liggja fyrir. Umhverfisráð leggur til að farið sé í að deiliskipuleggja athafnasvæðið við Sandskeið sem allra fyrst.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
9.
Gunnarsbraut 8 og 10 - Ósk um breytingu á deiliskipulagi
Málsnúmer 202106086
Á 993. fundi byggðaráðs þann 19. ágúst 2021 var málinu vísað aftur til umfjöllunar í umhverfisráði.Lóðarhafi lóðanna að Gunnarsbraut 8 og 10, GS frakt ehf, sendi síðar inn umsókn um breytingu á deiliskipulagi Dalvíkurhafnar dagsetta 2. september 2021. Breytingin felst í sameiningu lóðanna við Gunnarsbraut 8 og 10 í eina lóð.
Umhverfisráð samþykkir erindið og leggur til að breyting á deiliskipulagi Dalvíkurhafnar verði auglýst skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
10.
Árgerði - landsvæði umhverfis lóð
Málsnúmer 202107075
Á síðasta fundi umhverfisráðs var skipulags- og tæknifulltrúa falið að gera drög að samningi við eigendur Árgerðis og leggja fyrir ráðið.
Umhverfisráð samþykkir framlögð drög að samningi.
Samþykkkt samhljóða með fimm atkvæðum.
11.
Efnisnámur í Dalvíkurbyggð
Málsnúmer 202109001
Farið yfir stöðu efnistökusvæða í sveitarfélaginu og þær beiðnir sem borist hafa um efnistöku.
Umhverfisráð leggur áherslu á hversu mikilvægt það er að láta kortleggja og meta efnistökusvæði í Dalvíkurbyggð. Útbúa þarf verklagsreglur vegna efnisnáms í landi Dalvíkurbyggðar og gjaldskrá. Ráðið telur að sveitarfélagið sem landeigandi eigi að sækja um starfsleyfi í sínum efnisnámum og gera tímabundna samninga við verktaka hverju sinni.
Umhverfisráð leggur til að sveitarfélagið byrji á því að sækja um starfsleyfi fyrir efnisnámu í Sauðanesi vegna fyrirhugaðra framkvæmda við sjóvarnir.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
12.
Mánaðarlegar skýrslur bókhalds 2021 vs. áætlun fyrir fagráð
Málsnúmer 202102005
Farið yfir stöðu málaflokka umhverfisráðs janúar - júlí 2021.
Lagt fram til kynningar.
13.
Endurskoðun á snjómokstursreglum 2021
Málsnúmer 202107066
Farið yfir viðmiðunarreglur snjómoksturs.
Umhverfisráð felur starfsmönnum Framkvæmdasviðs að skilgreina og kostnaðarmeta mögulegar útfærslur á snjómokstri í dreifbýli sveitarfélagsins fyrir næsta fund ráðsins.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
14.
Endurskoðun samþykkta og gjaldskráa umhverfisráðs
Málsnúmer 202108081
Farið yfir þær gjaldskrár og samþykktir sem heyra undir ráðið.
Umhverfisráð leggur til að farið verði betur yfir samþykktir og gjaldskrár og tekið upp aftur á næsta fundi.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
15.
Fjárhagsáætlun 2022
Málsnúmer 202108009
Umhverfisráð fór yfir frumdrög að framkvæmdum ársins 2022.
16.
Afgreiðslufundur byggingafulltrúa - 5
Málsnúmer 2108009F
Lögð fram til kynningar fundargerð frá fimmta afgreiðslufundi byggingafulltrúa sem haldinn var 31. ágúst 2021.