Fara í efni

Umhverfisráð

356. fundur
21. júní 2021 kl. 08:15 - 09:15
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Haukur Gunnarsson Formaður
Monika Margrét Stefánsdóttir varaformaður
Eva Björg Guðmundsdóttir aðalmaður
Lilja Bjarnadóttir aðalmaður
Emil Júlíus Einarsson aðalmaður
Starfsmenn
Helga Íris Ingólfsdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði:
Helga Íris Ingólfsdóttir skipulags- og tæknifulltrúi
Dagskrá
1.
Deiliskipulag Hauganesi
Málsnúmer 201901044
Fyrir fundinum lá tillaga að deiliskipulagi fyrir Hauganes sem unnið var af Ágústi Hafsteinssyni.
Ráðið fór yfir deiliskipulagstillöguna og lagði til lítilsháttar breytingar.
Umhverfisráð samþykkir framlögð drög að deiliskipulagi fyrir Hauganes og leggur til að deiliskipulagstillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
2.
Umsókn um lóð - Gunnarsbraut 8
Málsnúmer 202106086
Með erindi dagsettu 18. júní 2021 óskar Gunnlaugur Svansson fyrir hönd GS frakt ehf. eftir lóðinni við Gunnarsbraut 8.
Umhverfisráð samþykkir að úthluta GS frakt ehf. lóðinni að Gunnarsbraut 8.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
3.
Umburðarbréf vegna breytinga á jarðarlögum
Málsnúmer 202105149
Tekið fyrir bréf frá Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu þar sem athygli er vakin á breytingum á jarðalögum sem miða að því að styrkja sveitarfélög við að takast á við breytingar á landnotkun og gæta að hagsmunum landbúnaðar við gerð skipulags.
Lagt fram til kynningar.