Umhverfisráð
345. fundur
4. desember 2020
kl.
08:15
-
11:30
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Haukur Gunnarsson
formaður
Monika Margrét Stefánsdóttir
varaformaður
Eva Björg Guðmundsdóttir
aðalmaður
Lilja Bjarnadóttir
aðalmaður
Helga Íris Ingólfsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Börkur Þór Ottósson
sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Börkur Þór Ottósson
sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá
1.
Snjómokstur 2020
Til umræðu og endurskoðunar viðmiðunarreglur um snjómokstur í Dalvíkurbyggð.Undir þessum lið koma Steinþór Björnssons, deildarstjóri Eigna- og framkvædmadeildar, til að kynna tillögur að breytingum kl. 08:26Steinþór vék af fundi kl. 09:44
Umhverfisráð leggur áherslu á að gætt sé aðhalds í snjómokstri. Ekki skal hefja eða halda áfram snjómokstri nema skynsamlegt þyki með tilliti til veðurútlits.
Umhverfisráð frestar afgreiðslu endurskoðunar á viðmiðunarreglum til næsta fundar.
Umhverfisráð frestar afgreiðslu endurskoðunar á viðmiðunarreglum til næsta fundar.
2.
Öryggismál við Sjávargötu og Norðurgarð
Á 343. fundi umhverfisráðs þann 6. nóvember 2020 var ákveðið að fá sviðsstjóra veitu- og hafnasviðs á fund umhverfisráðs.Undir þessum lið kom Þorsteinn K. Björnsson, sviðsstjóri veitu- og hafnasviðs, kl. 10:03Þorsteinn vék af fundi kl. 10:20
Þar sem vinnutilhögun við landanir hefur breyst telur ráðið ekki þörf á breytingum á umferða og öryggismálum við Dalvíkurhöfn að svo stöddu.
3.
Lækkun hámarkshraða á Svarfaðardalsvegi úr 90 í 70 km/kls.
Með innsendu erindi dags. 05. nóvember 2020 óska þeir Ármann Gunnarsson og Felix Jósafatsson að umhverfisráð hlutist til um að umferðarhraði á Svarfaðardalsvegi verði lækkaður úr 90 km/klst í 70 km/klst.
Umhverfisráð vísar erindinu til endurskoðunar á umferðaröryggisáætlun Dalvíkurbyggðar.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
4.
Umsókn um byggingarleyfi
Til kynningar umsókn um byggingarleyfi við Hringtún 17, Dalvík
Lagt fram til kynningar.
5.
Umsókn um byggingarleyfi
Til kynningar umsókn um byggingarleyfi við Hringtún 19, Dalvík
Lagt fram til kynningar.
6.
Lýsing fyrir gerð landsskipulagsstefnu
Lögð fram til kynningar ósk frá Skipulagsstofnun dags. 13. nóvember 2020 þar sem óskað er eftir umsögn um tillögu að viðauka við Landsskipulagsstefnu 2015-2026 ásamt umhverfismati.
Lagt fram til kynningar.
7.
Fundargerðir Almannavarnarnefndar Nl. eystra 2018-2022
Lögð fram til kynningar fundargerð Haustfundar Almannavarnarnefndar Norðurlands eystra sem var haldinn í fjarfundi þann 12. nóvember 2020.
Lagt fram til kynningar
8.
Tilkynning um fyrirhugaða niðurfellingu Syðra-Hvarfsvegar nr. 8072 af vegaskrá
Tekið fyrir bréf frá Vegagerðinni sem barst þann 18. nóvember sl., tilkynning um fyrirhugaða niðurfellingu Syðra-Hvarfsvegar nr. 8072-01 af vegaskrá.
Umhverfisráði mótmælir að Syðra-Hvarfsvegur nr. 8072-01 verði tekin af vegaskrá.
Með því að taka veginn af skrá er hoggið að jaðarbyggðum í sveitarfélaginu sem er andstætt vilja sveitarstjórnar.
Með því að taka veginn af skrá er hoggið að jaðarbyggðum í sveitarfélaginu sem er andstætt vilja sveitarstjórnar.
9.
Til umsagnar frumvarp til laga um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum (markmið, áhættumat, sektir o.fl.), 311. mál.
Lögð fram til kynningar ósk um umsögn frá Umhverfis- og samgönguráðuneytinu dags. 25. nóvember 2020 vegna frumvarps til laga um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum.
Lagt fram til kynningar
10.
Svæðisskipulagsnefnd 2020
Lögð fram til kynningar fundargerð frá 6. fundi Svæðisskiðulagsnefndar frá 23. nóvember ásamt fjárhagsáætlun 2021.
Lagt fram til kynningar
11.
Umsókn um svæði til aksturs vélsleða
Á 329. fundi sveitarstjórnar var ákveðið að vísa umsókn um skautasvell og æfingarsvæði fyrir vélsleða aftur til umhverfisráðs þar sem margvíslegar breytingar hafa orðið á umsókninni frá fyrri afgreiðslu ráðsins
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina og leggur til að umbeðið leyfi verði veitt til reynslu í eitt ár.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.