Fara í efni

Umhverfisráð

342. fundur
2. október 2020 kl. 08:15 - 10:30
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Haukur Gunnarsson formaður
Monika Margrét Stefánsdóttir varaformaður
Eva Björg Guðmundsdóttir aðalmaður
Lilja Bjarnadóttir aðalmaður
Helga Íris Ingólfsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá
1.
Starfs- og fjárhagsáætlun umhverfis- og tæknisviðs 2021
Málsnúmer 202009111
Lögð fram til umræðu og afgreiðslu starfs- og fjárhagsáætlun Umhverfis- og tæknisviðs 2021Undir þessum lið kom Steinþór Björnsson deildarstjóri eigna- og framkvæmdadeildar inn á fundinn kl. 08:20Steinþór vék af fundi kl. 09:40
Umhverfisráð hefur farið yfir öll gögn og felur sviðsstjóra að leggja fram áætlun ráðsins.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
5.
Fyrirspurn vegna möguleika á stækkun lóðar við Skíðabraut 11, Dalvík
Málsnúmer 201904128
Með innsendu erindi dags. 30. apríl 2019 óskar Paulina Milewska eftir stækkun lóðar við Skíðabraut 11, Dalvík samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Umhverfisráð getur ekki tekið afstöðu til umsóknarinnar þar sem gögn vantar.
Sviðsstjóra falið að aðstoða umsækjanda við öflun fullnægjandi gagna.
6.
Umsókn um stöðuleyfi fyrir matarvagn
Málsnúmer 202008068
Með innsendu erindi dags. 16. september 2020 óskar Stefán Bjarmar Stefánsson eftir stöðuleyfi fyrir matarvagn á grunninum neðan við Karlsrauðatorg 5.Með umsókninni fylgdi samþykki nágranna við Karlsrauðatorg 5.Undir þessum lið vék af fundi Haukur Arnar Gunnarsson kl. 10:26Haukur Arnar kom aftur inn á fundinn kl. 10:31
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina og felur sviðsstjóra að veita umbeðið stöðuleyfi til eins árs.
Samþykkt samhljóða með fjórum atkvæðum.