Fara í efni

Umhverfisráð

341. fundur
17. september 2020 kl. 08:15 - 12:45
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Haukur Gunnarsson formaður
Monika Margrét Stefánsdóttir varaformaður
Eva Björg Guðmundsdóttir aðalmaður
Lilja Bjarnadóttir aðalmaður
Helga Íris Ingólfsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá
2.
Deiliskipulag í landi Kóngsstaða
Málsnúmer 202007004
Með innsendu erindi dags. 08. ágúst 2020 óskar Anna Bragadóttir fyrir hönd landeigenda að Birkiflöt í Skíðadal eftir að samhliða deiliskipulagi fyrir svæðið verði einnig gerð breyting á aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar til samræmis.Reitur 629-F stækkaður til suðurs um 100 metra og tvær vegtengingar verði á svæðinu.
Umhverfisráð samþykkir að Dalvíkurbyggð fari í umbeðna breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbygggðar samhliða deiliskipulagsvinnunni.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
3.
Deiliskipulag Fólkvangs
Málsnúmer 201402123
Til kynningar leyfisbréf frá UST vegna hjólastíga í fólkvanginum.
Lagt fram til kynningar
4.
Umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 202005110
Til kynningar og umræðu fundargerð samráðsfundar með íbúum við Bjarkarbraut sem haldin var miðvikudaginn 9. september síðastliðinn.
Eftir grenndarkynningu og samráðsfund með íbúum tekur umhverfisráð undir áhyggjur íbúa varðandi hugsanleg neikvæð áhrif af fyrirhuguðum framkvæmdum og getur því ekki fallist á umsókn Mílu um byggingarleyfi.
Umhverfisráð felur sviðsstjóra að óska eftir því við Mílu að aðrar leiðir verði skoðaðar.
Samþykkt samljóða með fimm atkvæðum.
5.
Förgun úrgangs og malarnám í landi Hrísa
Málsnúmer 202005056
Til umræðu innsent erindi frá Hjörleifi Hjartarssyni dags. 03. september 2020 vegna Friðlands Svarfdæla þar sem hann óskar eftir að allri losun á úrgangi verði hætt í Hrísahöfða.
Umhverfisráð leggur til að bannað verði að losa allan úrgang í Hrísahöfða nema garðaúrgang og að sett verði upp skilti til leiðbeininga.
Samkvæmt upplýsingum ráðsins er verndaráætlun Friðlands Svarfdæla langt komin og gert ráð fyrir að hún verði tilbúin í vetur.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum
6.
Fyrirhugað seiðaeldi við Árskógssand.
Málsnúmer 201608099
Á 954. fundi byggðarráðs var eftirfarandi bókað.Tekið fyrir erindi frá Laxós ehf. dagsett 26. ágúst 2020, þar sem farið er yfir stöðu verkefnis vegna fyrirhugaðs seiðaeldis á Árskógssandi. Óskað er eftir nánari upplýsingum um tvennt: 1. Hvort leyfi muni fást til að lengja fyrirhugaða landfyllingu á Árskógssandi til austurs. 2. Hvort sveitarfélagið muni geta afhent það magn af vatni sem félagið þarf í framtíðinni. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til veitu- og hafnaráðs og umhverfisráðs, eftir því sem við á.
Umhverfisráð getur ekki tekið afstöðu til stækkunar landfyllingar út frá fyrirliggjandi gögnum og minnir á að framkvæmdin þurfi að fara í formlegt skipulagsferli þar sem sú afstaða mun liggja fyrir.
Ráðið óskar eftir frekari gögnum svo hægt sé að taka afstöðu til lengingar á landfyllingu.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
7.
Fjárhagsáætlun 2021; hjólreiðarstígur á Árskógsströnd
Málsnúmer 202009046
Á 954. fundi byggðarráðs var eftirfarandi bókað.Tekið fyrir erindi, dagsett þann 31. ágúst 2020, frá nemendum og starfsfólki Árskógarskóla, ósk um að útbúnir verði hjólastígar á Árskógsströnd þannig að nemendur geti hjólað í skólann og farið á milli byggðakjarna án þess að hjóla á þjóðveginum.Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til umhverfisráðs vegna vinnu við fjárhagsáætlun 2021.
Umhverfisráð leggur til að farið verði í malarborinn hjóla- og göngustíg frá Árkógarskóla að brúnni yfir Þorvaldsdalsá og að stígurinn frá brú að Árskógssandi verði lagfærður. Stígur frá Árskógarskóla að Hauganesi verði settur á 3 ára áætlun og stígur að sveitarfélagsmörkum að sunnan verði vísað til endurskoðunar aðalskipulags Dalvíkurbyggðar.
Ráðið felur sviðsstjóra að kostnaðarmeta verkið fyrir næsta fund ráðsins.
Viðhengi
Loftmynd.JPG
9.
Ársreikningur og fundargerðir stjórnar- og aðalfundar
Málsnúmer 202009047
Lagður fram til kynningar ársreikningur Flokkun Eyjafjörður ehf. ásamt fundargerð stjórnarfundar 28. ágúst 2020 og fundargerð aðalfundar 28. ágúst 2020.
Lagt fram til kynningar