Umhverfisráð
328. fundur
8. október 2019
kl.
13:15
-
17:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Haukur Gunnarsson
formaður
Monika Margrét Stefánsdóttir
varaformaður
Eva Björg Guðmundsdóttir
aðalmaður
Lilja Bjarnadóttir
aðalmaður
Helga Íris Ingólfsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Börkur Þór Ottósson
sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Börkur Þór Ottósson
sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun 2020; Breyting á götu í Hamarslandi
Tekið fyrir erindi frá Sigurði H. Pálssyni og Svanfríði Jónsdóttur, dagsett 28. júlí 2019, þar sem þau óska eftir að Dalvíkurbyggð taki inn á fjárhagsáætlun sína fyrir árið 2020 að gera lagfæringar á götu í frístundabyggðinni í landi Hamars, nánar tiltekið fyrir framan hús þeirra á lóð B5.
Umhverfisráð leggur til að verkefnið verði fjármagnað af 10300 á fjárhagsáætlun 2020.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
2.
Umsjónarnefnd fyrir friðland í Svarfaðardal - Nýr fulltrúi
Tekið fyrir erindi frá umhverfisstofnun dags. 30. ágúst 2019 þar sem óskað er eftir tilnefningu í umsjónarnefnd friðlands Svarfdæla fyrir hönd Dalvíkurbyggðar.
Umhverfisráð leggur til að Steinþór Björnsson deildarstjóri eigna- og framkvæmdadeildar verði fulltrúi Dalvíkurbyggðar í umsjónarnefnd friðlandsins.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
3.
Gjaldskrár umhverfis- og tæknisviðs 2020
Til umræðu hækkanir á gjaldskrám umhverfis- og tæknisviðs 2020
Ráðið leggur til að gjaldskrár umnhverfis- og tæknisviðs hækki sem nemur 2,5 %.
Samþykkt samhjóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhjóða með fimm atkvæðum.
4.
Starfs- og fjárhagsáætlun umhverfis og tæknisviðs 2020
Til umræðu starfs- og fjárhagsáætlun umhverfis- og tæknisviðs 2020
Drög að starfs- og fjárhagsáætlun umhverfis- og tæknisviðs lögð fram til kynningar og umræðu.
5.
Framkvæmdir umhverfis- og tæknisviðs 2020
Farið var yfir tillögur að framkvæmdum ársins 2020.
Umhverfisráð samþykkir og leggur til framlagðar framkvæmda og fjárfestingatillögur sem fela meðal annars í sér aukið fjármagn til endurnýjunar og viðhalds á gangstéttum og allra leiksvæða í sveitarfélaginu.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
6.
Áskorun vegna rusls sem mengar hafið.
Tekið fyrir erindi frá Íslenska sjávarklasanum, dagsett 26. september 2019, áskorun á sveitarfélög að taka fyrir fok úr ruslatunnum heimilissorps með því að bjóða bæjarbúum upp á einfaldar lausnir til að loka sorptunnum.
Umhverfisráð frestar afgreiðslu til næsta fundar og felur sviðsstjóra að afla nánari upplýsinga um þær lausnir sem í boði eru ásamt kostnaði.