Umhverfisráð
318. fundur
5. apríl 2019
kl.
08:15
-
11:30
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Haukur Gunnarsson
Formaður
Eva Björg Guðmundsdóttir
aðalmaður
Lilja Bjarnadóttir
aðalmaður
Helga Íris Ingólfsdóttir
aðalmaður
Friðrik Vilhelmsson
varamaður
Starfsmenn
Börkur Þór Ottósson
Sviðstjóri
Fundargerð ritaði:
Börkur Þór Ottósson
sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá
1.
Framkvæmdir 2019
Til umræðu framkvæmdir sumarsins og staða verkefna. Undir þessum lið kom inn á fundinn kl. 08:17 Valur Þór Hilmarsson umhverfisstjóri.
Umhverfisráð þakkar umhverfisstjóra fyrir yfirferðina.
2.
Ósk um land til úthlutunar fyrir skógrækt til kolefnisjöfnunar.
Með innsendu erindi dags. 4. febrúar 2019 óskar Gunnar Sigursteinsson fyrir hönd Vélvirkja ehf eftir landi til skógræktar. Hugmyndinn er að fyrirtækið geti kolefnisjafnað starfsemi sína með skógrækt.
Valur vék af fundi kl. 09:23
Umhverfisráð þakkar Gunnari mjög áhugavert erindi.
Ráðið vísar erindinu til endurskoðunar aðalskipulags Dalvíkurbyggðar þar sem lögð verður áhersla á loftslagsmál og útfærslu á svæðum til skógræktar í Dalvíkurbyggð.
Umhverfisráð þakkar Gunnari mjög áhugavert erindi.
Ráðið vísar erindinu til endurskoðunar aðalskipulags Dalvíkurbyggðar þar sem lögð verður áhersla á loftslagsmál og útfærslu á svæðum til skógræktar í Dalvíkurbyggð.
3.
Framkvæmdi á Hauganesi 2019
Með innsendu erind dags. 22. febrúar 2019 óska þeir Árni Halldórsson og Elvar Reykjalín eftir viðræðum vegna nauðsynlegra framkvæmda á Hauganesi samkvæmt meðfylgjandi erindi.
Umhverfisráð vísar umbeðnum framkvæmdum til gerðar deiliskipulags svæðisins og til gerðar fjárhagsáætlunar 2020.
Ráðið felur einnig sviðsstjóra að ræða við bréfritara um framhaldið.
Ráðið felur einnig sviðsstjóra að ræða við bréfritara um framhaldið.
4.
Áfangastaðaáætlanir
Á 895 fundi byggðarráðs var erindnu vísað til umræðu í umhverfisráði og eftirfarandi bókað"Tekið fyrir erindi frá Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, dagsett þann 25. janúar 2019, þar sem fram kemur að ráðuneytið fer þess á leit að áfangastaðaáætlun Norðurlands fái viðeigandi umfjöllun í bæjarráði/sveitarstjórn og verði vísað til viðeigandi stofnunar / sviðs í sveitarfélaginu. Grunnhugsun að baki áfangastaðaáætlana fyrir landshluta er samstarf og samþætting vegna annarra áætlana á einstaka svæðum."
Umhverfisráð Dalvíkurbyggðar undrast hversu lítið er fjallað um sveitarfélagið Dalvíkurbyggð og þá mörgu áhugaverðu staði sem það hefur uppá að bjóða.
5.
Undirskriftalisti - Áskorun á Vegagerðina og Dalvíkurbyggð
Lagður fram undirskriftarlisti/áskorun frá íbúum Svarfaðar og Skíðadals fyrir bættum samgöngum í dölunum.
Umhverfisráð tekur heils hugar undir áskorun frá íbúum Svarfaðar og Skíðadals.
6.
Umsókn um lóð við Hringtún 17 og 19, Dalvík
Á 311. fundi sveitarstjórnar var eftirfarandi bókað"Sveitarstjórn samþykkir að fresta afgreiðslu á tillögu umhverfisráðs um breytingu á deiliskipulagi vegna Hringtúns. Sveitarstjórn vísar því til umhverfisráðs að fara vel yfir og kortleggja öll svæði á Dalvík við þegar tilbúnar götur þar sem hægt væri að koma fyrir minni eignum, fjölbýli, par-og raðhúsum. Tillögurnar yrðu lagðar fyrir byggðaráð og niðurstöður færu í framhaldinu í almenna kynningu.Rökstuðningur:Það er stefna sveitarstjórnar að fjölga íbúum í Dalvíkurbyggð. Í lið 24 verður til afgreiðslu ný húsnæðisáætlun Dalvíkurbyggðar 2019-2027.Þar kemur fram að áætluð fjölgun í sveitarfélaginu um 25 íbúa kallar á um 10 nýjar íbúðir og er þörfin áætluð þannig:3 fjölbýli6 par-og raðhús1 einbýliEftirspurn í nýbyggingum undanfarin ár hefur verið mest í minni eignir og eins og er er engin skipulögð lóð laus fyrir parhús eða raðhús á Dalvík.Þetta hamlar framþróun á byggingarmarkaði og því áríðandi að leitað sé lausna."Lög fram til kynningar og umræðu samantekt frá teiknistofu arkitekta um mögulegar lóðir við þegar byggðar götur
Umhverfisráð leggur til að haldin verði opin íbúafundur í Bergi fimmtudaginn 11. apríl kl. 17:15.
Þar verða kynntar þær hugmyndir sem unnið hefur verið með um þéttingu byggðar við þegar tilbúnar götur á Dalvík.
Einnig verður kallað eftir hugmyndum íbúa um hvar mögulegt væri að koma fyrir minni eignum,fjölbýli,par- og raðhúsum innan núverandi byggðar
Þar verða kynntar þær hugmyndir sem unnið hefur verið með um þéttingu byggðar við þegar tilbúnar götur á Dalvík.
Einnig verður kallað eftir hugmyndum íbúa um hvar mögulegt væri að koma fyrir minni eignum,fjölbýli,par- og raðhúsum innan núverandi byggðar
7.
Styrktarsjóður EBÍ 2019
Til umræðu erindi frá styrktarsjóði EBÍ fyrir 2019
Lagt fram til kynningar
8.
Lýsing fyrir gerð landsskipulagsstefnu
Lögð fram til kynningar lýsing fyrir gerð landsskipulagsstefnu um loftslag, landslag og lýðheilsu.
Lagt fram til kynningar
9.
Umsókn um byggingarleyfi
Með innsendu erindi dags. 14. mars 2019 óskar Zophonías Ingi Jónmundsson eftir byggingarleyfi fyrir einbýlishús að Hrafnsstöðum 2 samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdnir og felur sviðsstjóra að veita umbeðið byggingarleyfi.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
10.
Umsókn um byggingarleyfi
Með innsendu erindi dags. 02. apríl 2018 óska Leiguíbúðir Dalvíkurbyggðar Hses eftir byggingarleyfi við Lokastíg 3-17, Dalvík samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdnir og felur sviðsstjóra að veita umbeðið byggingarleyfi.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
Samþykkt með fimm atkvæðum.