Fara í efni

Umhverfisráð

317. fundur
27. mars 2019 kl. 18:00 - 19:45
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Haukur Gunnarsson Formaður
Monika Margrét Stefánsdóttir varaformaður
Eva Björg Guðmundsdóttir aðalmaður
Lilja Bjarnadóttir aðalmaður
Helga Íris Ingólfsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Börkur Þór Ottósson Sviðstjóri
Fundargerð ritaði:
Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá
2.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 201901038
Trúnaðarmál.
Bókað í trúnaðarmálabók.
3.
Fundargerðir Almannavarnarnefndar Eyjafjarðar 2018-2022
Málsnúmer 201811066
Lögð fram til kynninga fundargerð Almannavarnarnefndar Eyjafjarðar frá 20.mars 2019
Lagt fram til kynningar
4.
Samningur um Friðland Svarfdæla
Málsnúmer 201302077
Til kynningar og umræðu ný drög af umsjónarsamningi Friðlands Svarfdæla frá umhverfisstofnun.
Umhverfisráð gerir ekki efnislegar athugasemdir við framlögð gögn og leggur til að gengið verði frá samningnum.

Samþykkt með fimm atkvæðum.
5.
Frá eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga; fjárfestingar 2019
Málsnúmer 201903093
Tekið fyrir erindi til sveitarstjóra frá eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga, dagsett þann 18. mars 2019, er varðar almennt eftirlit með því að fjármál og fjármálastjórn sveitarfélaga sé í samræmi við lög og reglur. Fram kemur að nefndin hefur ákveðið að taka til umfjöllunar með hvaða hætti sveitarfélög standa að eftirliti og framkvæmd fjárfestinga á árinu 2019. Byggðarráð vísar erindinu til umfjöllunar umhverfisráðs.
Lagt fram til kynningar.