Umhverfisráð
314. fundur
11. janúar 2019
kl.
08:15
-
11:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Haukur Gunnarsson
Formaður
Monika Margrét Stefánsdóttir
varaformaður
Eva Björg Guðmundsdóttir
aðalmaður
Helga Íris Ingólfsdóttir
aðalmaður
Friðrik Vilhelmsson
varamaður
Starfsmenn
Börkur Þór Ottósson
Sviðstjóri
Fundargerð ritaði:
Börkur Þór Ottósson
sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá
1.
Viljayfirlýsing sveitarfélags og fyrirtækja í sveitarfélaginu vegna hreinsunar 2019
Til kynningar hugmynd umhverfisstjóra að viljayfirlýsingu milli sveitarfélagsins og fyrirtækja um hreinsunarátak 2019.Valur Þór Hilmarsson umhverfisstjóri kom inn á fundinn undir þessum lið kl.08:18.
Umhverfisráði lýst vel á framlagt fyrirkomulag og felur umhverfisstjóra að heimsækja fyrirtæki í sveitarfélaginu og ganga frá samkomulagi þar sem það á við. Ráðið gefur umhverfisstjóra tímaramma fram að næsta fundi ráðsins í febrúar.
2.
Friðland Svarfdæla - Vegna fjárhagsáætlunar 2019
Til umræðu framkvæmdir í friðlandi Svarfdæla 2019.
Valur Þór fór yfir þær framkvæmdir sem gert er ráð fyrir að farið verði í næsta sumar.
1. Lagfæringar og endurnýjun á skiltum og merkingum.
2. Lagfæra göngustíga.
3. Merkingar við göngubrúnna við Hánefsstaðareit.
Valur Þór vék af fundi kl. 09:05
1. Lagfæringar og endurnýjun á skiltum og merkingum.
2. Lagfæra göngustíga.
3. Merkingar við göngubrúnna við Hánefsstaðareit.
Valur Þór vék af fundi kl. 09:05
3.
Deiliskipulag Hauganesi
Til kynningar samantekt á gögnum fyrir deiliskipulag Hauganess.Undir þessum lið kom inn á fundinn kl. 09:08 Ágúst Hafsteinsson skipulagsráðgjafi.
Ágúst Hafsteinsson vék af fundi kl. 10:18
Umhverfisráð leggur til að hafin verði vinna við deiliskipulagstillögu Hauganess samkvæmt eftirfarandi.
Reitur 752-Ib verði mörk deiliskipulagsins að norðan, reitur 753-Ib deiliskipulagsmörk að sunnan. Austurmörk svæðisins til sjávar og vesturmörk samkvæmt gildandi þéttbýlismörkum aðalskipulags.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Umhverfisráð leggur til að hafin verði vinna við deiliskipulagstillögu Hauganess samkvæmt eftirfarandi.
Reitur 752-Ib verði mörk deiliskipulagsins að norðan, reitur 753-Ib deiliskipulagsmörk að sunnan. Austurmörk svæðisins til sjávar og vesturmörk samkvæmt gildandi þéttbýlismörkum aðalskipulags.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
5.
Umferðaröryggisáætlun Dalvíkurbyggðar
Til umræðu staðsetning á fyrirhuguðu strætóskýli, gangbraut við Hafnarbraut 1 (gamla frystihúsið), gatnamót Skíðabrautar, Hafnarbrautar og Grundargötu og göngustígur frá Olís að Árgerði.
Umhverfisráð leggur til að fyrirhugað strætóskýli verði staðsett á móts við Kjörbúðina. Sviðsstjóra falið að ræða við lóðarhafa.
Fyrirhuguð staðsetning á gangbraut við Hafnarbraut verði sunnan gatnamóta Karlsrauðatorgs og Hafnarbrautar.
Ráðið bíður eftir endanlegri tillögu frá Vegagerðinni að breytingu gatnamóta Skíðabrautar,Grundargötu og Hafnarbrautar.
Fyrirhuguð staðsetning á gangbraut við Hafnarbraut verði sunnan gatnamóta Karlsrauðatorgs og Hafnarbrautar.
Ráðið bíður eftir endanlegri tillögu frá Vegagerðinni að breytingu gatnamóta Skíðabrautar,Grundargötu og Hafnarbrautar.
6.
Tillaga að breytingum á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2009-2021
Lagt fram erindi dags 17. desember 2018 frá sveitarfélaginu Skagafirði þar sem óskað er eftir umsögn vegna tillögu að breytingum á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2009-2021.
Umhverfisráð Dalvíkurbyggðar gerir ekki athugasemdir við framlagðar tillögur.
7.
Úthlutun byggingalóða - endurskoðun á reglum
Á 312. fundi umhverfisráðs þann 7. nóvember 2018 var eftirfarandi bókað" Umhverfisráð felur sviðsstjóra að leggja fram tillögu að breytingu á úthlutunarreglum sem varða frístundalóðir, atvinnu/iðnaðarlóðir og fjölbýlishúsalóðir."Sviðsstjóri leggur fram tillögu að breytingum á úthlutunarreglum
Afgreiðslu frestað til næsta fundar.
8.
Verklagsreglur vegna birtinga á skjölum út á vefinn
Lagðar fram til kynningar nýjar verklagsreglur vegna birtingar á fylgiskjölum með fundargerð á vef.
Lagt fram til kynningar
Umhverfisráð fagnar þessum nýju verklagsreglum.
Umhverfisráð fagnar þessum nýju verklagsreglum.
9.
Tilnefning fulltrúa í umsjónarnefnd Friðlands Svarfdæla
Á 891. fundi byggðarráðs var effirfarandi bókað" Tekið fyrir erindi frá Umhverfisstofnun, dagsett þann 10. desember 2018, þar sem óskað er tilnefningar frá Dalvíkurbyggð á einum fulltrúa í þriggja manna nefnd umsjónar með Friðlandi Svarfdæla. Forstjóri Umhverfisstofnunar skipar í nefndina og velur út tilnefningum. Einn fulltrúi er frá Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar og formaðurinn kemur frá Umhverfisstofnun. Tilnefningaraðili ber kostnað af setu fulltrúa sinna í nefndinni. Til umræðu ofangreint.Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að tilnefna Val Þór Hilmarsson, umhverfisstjóra, sem fulltrúa Dalvíkurbyggðar í umsjónarnefnd með Friðlandi Svarfdæla.
Lagt fram til kynningar