Fara í efni

Umhverfisráð

312. fundur
7. nóvember 2018 kl. 08:15 - 11:15
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Haukur Gunnarsson Formaður
Monika Margrét Stefánsdóttir varaformaður
Lilja Bjarnadóttir aðalmaður
Helga Íris Ingólfsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Börkur Þór Ottósson Sviðstjóri
Fundargerð ritaði:
Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá
1.
Umferðarhraði á þjóðvegum í þéttbýli Dalvíkurbyggðar
Málsnúmer 201809040
Undir þessum lið koma á fund umhverfisráðs Sævar Freyr Ingason varðstjóri kl. 08:15 til að ræða hugmyndir ráðsins að breyttum hámarkshraða á þjóðvegum í þéttbýli Dalvíkurbyggðar.Á 310. fundi umhvefisráðs þann 7. september var eftirfarandi bókað " Umhverfisráð Dalvíkurbyggðar lýsing áhyggjum af umferðarhraða á þjóðvegunum í gegnum þéttbýli í Dalvíkurbyggð og felur sviðsstjóra að koma eftirfarandi ósk á Vegagerðina: Umhverfirsráð Dalvíkurbyggðar óskar eftir að umferðarhraða á þjóðvegunum í þéttbýli Dalvíkurbyggðar verði breytt eftirfarandi. Árskógssandur: Umferðarhraði merktur 50 km/kls við Sólvelli (við þéttbýlismörk) og 35 km/kls rétt við hraðahindrunina hjá Öldugötu. Hauganes: Umferðarhraði merktur 35 km/kls við þéttbýlismörk. Dalvík: Umferðarhraði á Gunnarsbraut, Hafnarbraut og Skíðabraut verði lækkaður niður í 35 km/kls. Ráðið óskar eftir að fá aðila frá Vegagerðinni á næsta fund ráðsins í október."
Sævar Freyr vék af fundi kl. 09:04
Umhverfisráð Dalvíkurbyggðar óskar eftir að umferðarhraða á þjóðvegunum í þéttbýli Dalvíkurbyggðar verði breytt eftirfarandi. Árskógssandur: Umferðarhraði merktur 50 km/klst við Sólvelli (við þéttbýlismörk) og 30 km/klst rétt við hraðahindrunina hjá Öldugötu. Hauganes: Umferðarhraði merktur 30 km/klst við þéttbýlismörk. Dalvík: Umferðarhraði á þjóðveginum gegnum Dalvík merktur 30 km/klst frá hraðahindrun við Gunnarsbraut 2 að norðan og frá hraðahindrun norðan við Skíðabraut 21 að sunnan.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
2.
Úthlutun byggingalóða - endurskoðun á reglum
Málsnúmer 201807084
Til umræðu endurskoðun á gildandi úthlutunarreglum byggingarlóða í Dalvíkurbyggð.
Umhverfisráð felur sviðsstjóra að leggja fram tillögu að breytingu á úthlutunarreglum sem varða frístundalóðir, atvinnu/iðnaðarlóðir og fjölbýlishúsalóðir.
3.
Tilkynning um fyrirhugaða niðurfellingu Selárbakkavegar nr 8132-01, af vegaskrá
Málsnúmer 201810087
Lagt fram til kynningar erindi frá Vegagerðinni þar sem tilkynnt er fyrirhugð niðurfelling á Selárbakkavegi af vegaskrá.
4.
Tilkynning um fyrirhugaða niðurfellingu hluta Svarfaðardalsvegar, 805-03, af vegaskrá
Málsnúmer 201810088
Lagt fram til kynningar erindi frá Vegagerðinni þar sem tilkynnt er fyrirhugð niðurfelling á hluta Svarfaðardalsvegar (heimreið að Þorsteinsstöðum) af vegaskrá.
5.
Bréf Samgöngufélagsins
Málsnúmer 201810089
Lagt fram til kynningar
6.
Strætóstoppistöð miðsvæðis á Dalvík
Málsnúmer 201810093
Til umræðu innsent erindi dags. 22. október 2018 frá Ole Lindquist þar sem reifaðar eru nýjar hugmyndir að staðsetningu strætóstoppistöðvar á Dalvík.
Umræða um nýjar strætóstoppistöðvar er í gangi í tengslum við fjárhagsáætlunargerð 2019 og kom einnig upp á samráðsfundi með lögreglu fyrr á þessum fundi.
Staðsetning og fyrirkomulag í samvinnu við þá sem hafa aðkomu að málinu er enn í skoðun, en í tillögu umhverfisráðs fyrir fjárhagsáætlun 2019 er gert ráð fyrir kaupum og uppsetningu á strætóskýli.
Gert er ráð fyrir staðsetningu miðsvæðis á þjóðveginum gegnum Dalvík.
7.
Gjaldskrár Dalvíkurbyggðar 2019
Málsnúmer 201808068
Til umræðu og afgreiðslu tillaga umhverfisráðs að gjaldskrá sorphirðu 2019.
Umhverfisráð leggur til 3,32% hækkun samkvæmt byggingarvísitölu á sorphirðugjaldi ásamt breytingum á móttöku úrgangs á endurvinnslustöðinni við Sandskeið.
Gjaldskrá sorphirðu 2019 með áorðnum breytingum samþykkt.
Ráðið felur sviðsstjóra að leggja fram kynningargögn ásamt tillögum að klippikortum fyrir næsta fund ráðsins.

Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum