Umhverfisráð
307. fundur
6. júlí 2018
kl.
08:15
-
12:45
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Haukur Arnar Gunnarsson
Formaður
Monika Margrét Stefánsdóttir
varaformaður
Eva Björg Guðmundsdóttir
aðalmaður
Lilja Bjarnadóttir
aðalmaður
Helga Íris Ingólfsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Börkur Þór Ottósson
Sviðstjóri
Fundargerð ritaði:
Börkur Þór Ottósson
sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá
1.
Gagnagátt 2018-2022, umhverfisráð
Undir þessum lið komu á fundinn varamennirnir Friðrik Vilhelmsson, Birta Dís Jónsdóttir, Júlíus Magnússon og Emil Júlíus Einarsson. Lagðar voru fram reglur umhverfissviðs sem og reglur er lúta að málefnum sviðsins. Farið var yfir starfsáætlun umhverfissviðs fyrir árið 2018.Undir þessum lið koma inn á fundinn Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri fjármál- og stjórnsýslusviðs kl. 08:15
Guðrún Pálína vék af fundi kl. 09:02
2.
Erindisbréf umhverfisráðs, fundartími ráðsins og tímamörk á móttöku innsendara erinda.
Til kynningar erindisbréf umhverfisráðs 2018-2022 ásamt tillögum um fundartíma ráðsins.
Ráðið leggur til að erindisbréfið verði endurskoðað samkvæmt umræðum á fundinum og lagt fram á næsta fundi ráðsins.
Ráðið leggur til að fundartími ráðsins verði óbreyttur frá fyrra kjörtímabili annar föstudagur í mánuð kl. 08:15
Ráðið minnir jafnframt á að innsend erindi skulu berast eigi síðar en 14:00 miðvikudaginn fyrir fund.
Varamennirnir Friðrik Vilhelmsson, Birta Dís Jónsdóttir, Júlíus Magnússon og Emil Júlíus Einarsson viku af fundi kl. 09:19.
Ráðið leggur til að fundartími ráðsins verði óbreyttur frá fyrra kjörtímabili annar föstudagur í mánuð kl. 08:15
Ráðið minnir jafnframt á að innsend erindi skulu berast eigi síðar en 14:00 miðvikudaginn fyrir fund.
Varamennirnir Friðrik Vilhelmsson, Birta Dís Jónsdóttir, Júlíus Magnússon og Emil Júlíus Einarsson viku af fundi kl. 09:19.
3.
Endurskoðun á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020
Til umræðu endurskoðun á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020.
Umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að hafin verði vinna við endurskoðun Aðalskipulags Dalvíkurbyggðar snemma árs 2019.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
4.
Hugmyndir að hvernig minnka má plastnotkun í Dalvíkurbyggð
Með innsendu erindi dags. 12. maí 2017 óskar Unnur E. Hafstað fyrir hönd arta.is eftir fundi með umhverfisráði Dalvíkurbyggðar til að fara yfir hvernig minnka megi plastnotkun í sveitarfélaginu.Undir þessum lið koma Unnur E. Hafstað og Snæborg Ragna Jónatansdóttir inn á fundinn kl. 09.30.
Ráðið þakkar þeim Unni E. Hafstað og Snæborgu Rögnu Jónatansdóttur fyrir gagnlegar umræður og ábendingar.
Unnur og Snæborg viku af fundi kl. 09.49
Unnur og Snæborg viku af fundi kl. 09.49
5.
Almennir byggingarskilmálar fyrir lóðir sem Dalvíkurbyggð úthlutar
Til kynningar almennir byggingarskilmálar fyrir lóðir sem Dalvíkurbyggð úthlutar.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við framlagða almenna byggingarskilmála.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
6.
Umsókn um stækkun á lóð við Kambhól, Dalvík
Með innsendu erindi dags. 28.júní 2018 óskar Jökull Bergmann fyrir hönd Klængshóls ehf. eftir stækkun á lóð við Kambhól, Dalvík samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Umhverfisráð samþykkir að veita umsækjanda stækkun á lóð sem nemur svæði B og svæði A að mörkum íbúða 6 og 7 við Kirkjuveg.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
7.
Umsókn um byggingarleyfi
Umsókn um takmarkað byggingarleyfi við Sjávarbraut 7, Dalvík.
Umhverfisráð samþykkir að fela sviðsstjóra að veita umsækjanda takmarkað byggingarleyfi.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
8.
Umsókn um byggingarleyfi vegna breytinga á eign 0201 að Goðabraut 3, Dalvík.
Á 306. fundi umhverfisráðs var eftirfarandi bókað: ,,Umhverfisráð frestar afgreiðslu til næsta fundar og felur sviðsstjóra að óska eftir teikningum sem sýna núverandi skuggavarp, einnig miðað við umbeðna hækkun hússins frá hönnuði. Tímabilið frá júní til 15. ágúst."Til kynninga umbeðin gögn frá umsækjanda.
Ráðið fór yfir innsend gögn sem sýna skuggavarp fyrirhugaðrar stækkunar á Goðabraut 3 ásamt þeim athugasemdum sem fram komu í grenndarkynningu.
Umhverfisráð hafnar erindinu með fimm atkvæðum og byggir skoðun sína á fyrirliggjandi athugasemdum eftir grenndarkynningu og skuggavarps teikningum.
Umhverfisráð hafnar erindinu með fimm atkvæðum og byggir skoðun sína á fyrirliggjandi athugasemdum eftir grenndarkynningu og skuggavarps teikningum.
9.
Umsókn um byggingarleyfi
Til afgreiðslu umsókn um byggingarleyfi frá Kötlu ehf. dags. fyrir parhús á lóðinni Öldugata 12, Árskógssandi.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina og felur sviðsstjóra að veita umbeðið byggingarleyfi að undangenginni umsögn slökkviliðsstjóra.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
10.
Ósk um lagfæringar á göngustíg
Tekið fyrir innsent erindi frá Hafþóri Gunnarssyni dags. 7. júní 2018 þar sem óskað er eftir að gengið verði frá göngustíg við Hringtún og frágang á opnu svæði.
Ráðið getur ekki orðið við umbeðnu erindi, en vísar erindinu til fjárhagsáætlunargerðar 2019.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
11.
Hreinsunarátak á iðnaðarlóðum í Dalvíkurbyggð.
Til umræðu áframhaldandi hreinunarátak á iðnaðarlóðum í Dalvíkurbyggð 2018.
Umhverfisráð felur sviðsstjóra að útbúa drög að bréfi til fyrirtækja í sveitarfélaginu sem lagt verður fyrir næsta fund ráðsins.
12.
Framkvæmdir og viðhald 2018 skv. starfs- og fjárhagsáætlun.
Til kynningar og umræðu framkvæmdir og viðhald 2018 ásamt starfs- og fjárhagsáætlun 2018.
Lagt fram til kynningar.
13.
Umsókn í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða, áningarstaður 2018
Til kynningar teikningar og gögn vegna áningastaðar við Hrísatjörn.
Lagt fram til kynningar.
14.
Erindi frá íbúasamtökum á Árskógssandi
Til umræðu innsent erindi frá íbúasamtökum á Árskógssandi.
Umhverfisráð þakkar íbúasamtökunum á Árskógssandi fyrir innsent erindi og vísar erindinu til fjárhagsáætlunargerðar 2019. Ráðið felur þó umhverfisstjóra að yfirfara og bæta hraðamerkingar á Árskógssandi og setja upp þrengingu við gatnamót Hafnarbrautar og Ægisgötu í samráði við Vegagerðina.
15.
Mánaðarlegar stöðuskýrslur fyrir fagráð og byggðaráð
Lagt fram til kynningar stöðuskýrslur umhverfis- og tæknisviðs.
Lagt fram til kynningar.