Fara í efni

Umhverfisráð

292. fundur
1. ágúst 2017 kl. 08:15 - 11:30
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Haukur Arnar Gunnarsson
Karl Ingi Atlason Aðalmaður
Guðrún Anna Óskarsdóttir Aðalmaður
Kristín Dögg Jónsdóttir Aðalmaður
Friðrik Vilhelmsson varaformaður
Starfsmenn
Börkur Þór Ottósson Sviðstjóri
Fundargerð ritaði:
Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá
1.
Ársreikningur og skýrsla stjórnar Björgunarsveitarinnar Dalvík fyrir árið 2016.
Málsnúmer 201707033
Til kynningar ársreikningur og skýrsla stjórnar Björgunarsveitarinnar Dalvík fyrir 2016.Haukur Arnar vék af fundi undir þessum lið kl. 08:16
Ráðið gerir ekki athugasemdir við innsend gögn og fagnar því góða starfi sem fram fer hjá sveitinni.
Haukur Arnar kom aftur inn á fundinn kl. 08:25
2.
Mánaðarlegar stöðuskýrslur fyrir fagráð og byggðaráð
Málsnúmer 201604102
Til kynningar stöðumat 1. jan- 1.júní 2017
Lagt fram til kynningar.
3.
Viðbragðsáætlun fyrir Múlagöng
Málsnúmer 201707012
Til kynninga ný viðbragðsáætlun fyrir Múlagöng.
Umhverfisráð Dalvíkurbyggðar fagnar framlagðri viðbragðsáætlun fyrir Múlagöng.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
4.
Fundargerð friðlandsnefndar 2017
Málsnúmer 201706149
Til kynningar fundargerð umsjónanefndar Friðlands Svarfdæla frá 1. júní 2017.
Umhverfisráð felur sviðsstjóra að kanna næstu skref er varða lóðarstækkun við Sandskeið 31 samanber lið. 5 í fundargerð Friðlandnefnarinnar.
Lagt fram til kynningar
5.
Verkefnalisti fyrir friðland Svarfdæla 2017.
Málsnúmer 201706153
Til umræðu verkefnalisti vegna framkvæmda við Friðland Svarfdæla 2017.
Umhverfisráð fagnar þeim framkvæmdum sem þegar hafa farið fram og eru í farvatninu.
Lagt fram til kynningar.
6.
Uppsetning á skilti við Sveitarfélagsmörk
Málsnúmer 201707047
Með innsendu erindi dags. 12. júlí 2017 óskar Snorri Finnlaugsson fyrir hönd Hörgársveitar eftir leyfi til uppsetningar á sveitarfélagsskilti á bakhlið sveitarfélagsmerkis Dalvíkurbyggðar.
Umhverfisráð Dalvíkurbyggðar felur sviðsstjóra að útfæra nýtt skilti í samráði við Hörgársveit samkvæmt umræðum á fundinum. Tekið skal fram að þær breytingar sem gerðar verða alfarið á kostnað Hörgársveitar.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
7.
Umsókn um uppsetningu á skilti.
Málsnúmer 201707052
Með innsendu erindi dags. 29. júlí 2017 óskar Bjarni Óskarsson eftir leyfi til uppsetningar á skilti við Skíðadalsveg samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Þar sem umrædd staðsetning er í Friðlandi Svarfdæla leggur ráðið til að valin verði staðsetning austan við Skíðadalsveg.
Umhverfisráð samþykkir að veita leyfi á þeirri staðsetningu með fyrirvara um samþykki Vegagerðarinnar á staðsetningu.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
8.
Uppsetning á heitum pottum í Sandvík, Hauganesi til reynslu.
Málsnúmer 201707034
Með innsendu erindi dags. 10. júlí 2017 óskar Elvar Reykjalín eftir leyfi til uppsetningar á heitum pottum í Sandvík, Hauganesi til reynslu.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir að veita umbeðið leyfi til reynslu í tvö ár, en bendir á að áður en leyfi verður veitt þarf að afla tilskilinna leyfa frá Heilbrigðiseftirlits Norðurlands og Umhverfisstofnunar.
Ráðið bendir á að þær framkvæmdir sem umrætt leyfi tekur til skulu vera með öllu afturkræfar.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
9.
Umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 201707049
Með innsendu erindi dags.28. júlí 2017 óskar Jón Geir Árnason eftir byggingarleyfi að Aðalbraut 14 samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir og felur sviðsstjóra að veita umbeðið leyfi.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
10.
Umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 201707048
Með innsendu erindi dags. 28. júlí 2017 óskar Ingólfur Árni Eldjárn eftir byggingarleyfi í landi Gullbringu samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir og felur sviðsstjóra að veita umbeðið leyfi.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
11.
Umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 201707050
Með innsendu erindi dags. 13. júlí 2017 óskar Ólafur Tage fyrir hönd lóðarhafa eftir byggingarleyfi við Hringtún 25 samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Umhverfisráð óskar eftir að umbeðin byggingaráform verði grenndarkynnt eftirfarandi nágrönnum
Hringtún 1,2,5 21,30 og 38.
Miðtún 1 og 3.
Steintún 2 og 4.
Í framhaldi af því er sviðsstjóra falið að veita umbeðið leyfi ef athugasemdir gefa ekki tilefni til breytinga.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
12.
Styrkvegir 2017
Málsnúmer 201609071
Umsókn um framkvæmdarleyfi vegna lagfæringar á vegið inn að Sveinstaðaafrétt.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir og felur sviðsstjóra að veita umbeðið leyfi.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
13.
Umferðarmerkingar_2017
Málsnúmer 201705116
Til umræðu umferðamerkingar og umferðaröryggi í Dalvíkurbyggð. Á fundin mættu Erna Bára Hreinsdóttir og Heimir Gunnarsson frá Vegagerðinni,Felix Jósafatsson varðsstjóri hjá lögreglunni í Dalvíkurbyggð og Valur Þór Hilmarsson umhverfisstjóri kl. 09:30.
Ráðið þakkar fyrir gagnlegar umræður um þau verkefni sem fyrir liggja í umferðaröryggi á þjóðvegum í þéttbýli.
Sviðsstjóra falið að afla tilboða frá ráðgjöfum um lokafrágang á umferðaröryggisáætlun.
Erna Bára Hreinsdóttir,Heimir Gunnarsson,Felix Jósafatsson og Valur Þór Hilmarsson viku af fundi kl. 11:30.