Umhverfisráð
288. fundur
10. mars 2017
kl.
08:15
-
10:30
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Haukur Arnar Gunnarsson
Formaður
Karl Ingi Atlason
Aðalmaður
Friðrik Vilhelmsson
varaformaður
Marinó Þorsteinsson
varamaður
Ásdís Svanborg Jónasdóttir
Varamaður
Starfsmenn
Börkur Þór Ottósson
Sviðstjóri
Fundargerð ritaði:
Börkur Þór Ottósson
sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs
Guðrún Anna Óskarsdóttir boðaði forföll og í hennar stað mætti Ásdís Svanborg Jónasdóttir. Kristín Dögg Jónsdóttir boðaði einnig forföll og í hennar stað mætti Marinó Þorsteinsson.
Dagskrá
1.
Þjónustukannanir
Margrét Víkingsdóttir mun kynna niðustöðu þjónustukönnunar umhverfis- og tæknisviðs.
Margrét Víkingsdóttir kom inn á fundin kl. 08:16
Margrét vék af fundi kl. 08:30
2.
Meðferð úrgangs í námu neðan við Hringsholt
Til umræðu bréf dags. 16. desember frá HNE vegna meðferðar á úrgangi í námu neðan við Hringsholt ásamt tillögum að úrbótum frá húseigendafélaginu dags. 17. febrúar 2017.Einnig er á dagskrá samvinna HNE og Dalvíkurbyggðar.
Alfred Schiöth frá HNE og Valur Þór Hilmarsson umhverfisstjóri mættu undir þessum lið kl. 09:00
Ráðið þakkar þeim Alfred og Vali fyrir gagnlega umræðu og leggur til að fulltrúar frá húseigendafélags Hringsholts ásamt fulltrúum frá HNE verði boðaðir á fund sem fyrst vegna þessa máls.
Alfred og Valur viku af fundi kl.09:57
3.
Mánaðarlegar stöðuskýrslur fyrir fagráð og byggðaráð
Til kynningar mánaðarlega stöðuskýrsla.
Lagt fram til kynningar.
4.
Umsókn um byggingarleyfi vegna viðbyggingar við fjós mhl 20
Með innsendu erindi dags. 7. mars 2017 óskar Gunnsteinn Þorgilsson eftir byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við fjós mhl 20 að Sökku Svarfaðardal samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Umhverfisráð felur sviðsstjóra að veita umbeðið leyfi þegar öll gögn vegna málsins hafa borist.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
5.
Umsókn um byggingarleyfi
Með innsendu erindi dags. 7. mars 2017 óskar Þorleifur Kristinn Karlsson eftir byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við fjós mhl 15 að Hóli samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Umhverfisráð felur sviðsstjóra að veita umbeðið leyfi þegar öll gögn vegna málsins hafa borist.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
6.
Umsókn um byggingarleyfi fyrir mhl 02 baðhús
Með innsendu erindi dags. 8. mars 2017 óskar Kristján E Hjartarsson eftir byggingarleyfi fyrir sturtuhús mhl 02 samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Umhverfisráð felur sviðsstjóra að veita umbeðið leyfi þegar öll gögn vegna málsins hafa borist.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
7.
Leyfi til að losa kjarna á grjótnámu í Sauðanesi.
Með innsendu erindi dags. 7. mars 2017 óskar Þorsteinn K. Björnsson fyrir hönd Hafnarsjóðs Dalvíkurbyggðar eftir leyfi til efnistöku í grjótnámu við Sauðanes samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Umhverfisráð felur sviðsstjóra að veita umbeðið framkvæmdarleyfi til Hafnarsjóðs Dalvíkurbyggðar.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
8.
Varðar aðkomu sveitarfélgsins að Friðlandi Svarfdæla og Friðlandi fuglanna
Til umræðu innsent erindi Hjörleifs Hjartarssonar frá 8. febrúar 2017 vegna aðkomu sveitarfélgsins að Friðlandi Svarfdæla og Friðlandi fuglanna ásamt ársskýrslu 2016.
Þar sem samningur Dalvíkurbyggðar við Umhverfisstofnun um Friðland Svarfdæla er í endurskoðun ásamt verndaráætlun fyrir svæðið eru ekki forsendur til að gera umsjónarsamning um Friðland Svarfdæla. Ráðið vill einnig benda á að samkomulagið við Náttúrusetrið á Húsabakka rann út 31.maí 2016 en var ekki sagt upp eins og fram kemur í innsendu erindi.
Ráðið leggur áherslu á að gengið sé eftir því við Umhverfisstofnun að lokið sé við gerð samningsins svo hægt sé að tryggja áframhaldandi uppbyggingu Friðlands Svarfdæla.
Ráðið leggur áherslu á að gengið sé eftir því við Umhverfisstofnun að lokið sé við gerð samningsins svo hægt sé að tryggja áframhaldandi uppbyggingu Friðlands Svarfdæla.
9.
Varðar rafhleðslustöð og tengingu á henni
Til umræðu innsent erindi frá Ísorku móttekið 15. febrúar 2017 vegna uppsetningar og tengingar á rafhleðslustöð sem sveitarfélaginu barst að gjöf frá Orkusölunni ehf.
Umhverfisráð Dalvíkurbyggðar þakkar Orkusölunni fyrir sitt framlag. Ráðið leggur til að gert verði ráð fyrir að stöðinn verði sett upp á bílastæði vestan við Ráðhús Dalvíkurbyggðar. Ráðið bendir á að ekki var gert ráð fyrir fjármagni til uppsetningar á stöðinni í fjárhagsáætlun 2017.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
10.
Múlagöng - sameiginlegt bréf frá Slökkviliðum Fjallabyggðar og Dalvíkurbyggðar
Til kynningar viðbragðaáætlun frá Vegagerðinni dags. 21. febrúar 2017.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við framlagða viðbragðsáætlun Vegagerðarinnar vegna Múlaganga.
11.
Framkvæmdarleyfi vegna borunar eftir heitu vatni í landi Syðri Haga, Víkurbakka og Ytri Víkur.
Til afgreiðslu umsókn Norðurorku dags.18.02.2017 um framkvæmdarleyfi í landi Syðri-Haga.
Umhverfisráð felur sviðsstjóra að veita umbeðið framkvæmdarleyfi.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
12.
Lýsing á þjóðvegum í þéttbýli
Til kynningar erindi frá Vegagerðinni dag. 23.febrúar 2017 vegna breytinga á fyrirkomulagi götulýsingar í þéttbýli.
Sviðsstjóri upplýsir að engir misbrestir séu á greiðslum frá Vegagerðinni til handa sveitarfélagsins.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
13.
Breyting á Aðalskipulagi Fjallabyggðar 2008-2028
Með innsendu erindi dags. 6. mars 2017 óskar Fjallabyggð eftir umsögn vegna breytingar á Aðalskipulagi Fjallabyggðar 2008-2028
Umhverfisráð Dalvíkurbyggðar gerir ekki athugasemdir við breytinguna.
14.
Svæðisskipulag 2012-2024
Til kynningar fundargerð Svæðiskipulagsnefndar Eyjafjarðar
Lagt fram til kynningar
15.
Skipulag í landi Snerru, Svarfaðardal
Umsagnir vegna skipulagslýsingar lagðar fram til kynningar. Deiliskipulag í landi Snerru,Svarfaðardal, Dalvíkurbyggð.Lögð fram drög að deiliskipulagi í landi Snerru í Svarfaðardal ásamt greinagerð.
Umhverfisráð felur sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs að auglýsa tillöguna skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
16.
Deiliskipulag við Kirkjuveg, Dalvík
Deiliskipulag við Kirkjuveg á DalvíkDeiliskipulagstillagan var auglýst í skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þann 19. janúar 2017 með athugasemdafresti til 2. mars 2017. Engin athugasemd barst á auglýsingatíma. Umsagnir lagðar fram til kynningar.
Umhverfisráð samþykkir tillöguna ásamt húsakönnun og felur sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs að senda Skipulagsstofnun gögnin til yfirferðar ásamt samantekt um málsmeðferð. Geri Skipulagsstofnun ekki athugasemdir við samþykkta tillögu skal sviðsstjóri auglýsa gildistöku deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.