Fara í efni

Umhverfisráð

287. fundur
3. febrúar 2017 kl. 08:15 - 11:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Haukur Gunnarsson Formaður
Karl Ingi Atlason Aðalmaður
Guðrún Anna Óskarsdóttir Aðalmaður
Kristín Dögg Jónsdóttir Aðalmaður
Friðrik Vilhelmsson varaformaður
Starfsmenn
Börkur Þór Ottósson Sviðstjóri
Fundargerð ritaði:
Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá
1.
Umferðaröryggisáætlun Dalvíkurbyggðar
Málsnúmer 201501114
Til umræðu vinna við umferðaöryggisáætlun ásamt stöðu umhverfismála almennt.
Valur Þór Hilmarsson Umhverfisstjóri kom inn á fundinn undir þessum lið kl. 08:15.

Valur Þór fór yfir stöðu verkefnisins. Í stað Helgu Írisar Ingólfsdóttur kom Friðrik Vilhelmsson inn í nefndina.
Ráðið leggur til að fenginn verði ráðgjafi til aðstoðar nefndinni til að klára áætlunina fyrir sumarið 2017.
Ákveðið að nefndin komi saman í febrúar.

Nefndina skipa eftirfarandi.
Friðrik Vilhelmsson
Guðrún Anna Óskarsdóttir
Valur Þór Hilmarsson
og Börkur Þór Ottósson

Valur Þór vék af fundi kl. 08:35
2.
Atvinnu- og auðlindastefna
Málsnúmer 201601026
Margrét Víkingsdóttir kynnir vinnu við Atvinnu- og auðlindastefnu Dalvíkurbyggðar
Margrét Víkingsdóttir upplýsingafulltrúi kom inn á fundinn undir þessum lið kl. 08:36

Ráðið þakkar Margréti fyrir yfirferð á drögunum og leggur til hvað varðar stefnu í umhverfis og skipulagsmálum í sveitarfélaginu sé höfð til hliðsjónar greinagerð með aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020.
Ráðsmenn áskilja sér rétt til að senda inn ábendingar í framhaldi af þessari kynningu.

Margrét Víkingsdóttir vék af fundi kl. 08:53
3.
Fyrirhugað seiðaeldi við Árskógssand.
Málsnúmer 201608099
Til umræðu umsagnir vegna lýsingar á aðalskipulagsbreytingu á Árskógssandi ásamt minnispunktum frá íbúafundi sem haldinn var í félagsheimilinu Árskógi 26. janúar síðastliðinn og ábendingum sem komu í kjölfarið á honum.
Árni Ólason skipulagsráðgjafi kom inn á fundinn undir þessum lið kl. 09:00.

Umhverfisráð fór yfir þær umsagnir sem borist hafa ásamt þeim ábendingum og athugasemdum sem íbúar hafa sent inn. Rætt var hvort aðrar staðsetningar fyrir seiðaeldisstöð á Árskógssandi kæmu til greina ásamt aðkomuleiðum að fyrirhugaðri staðsetningu.
Þar sem umsögn frá Umhverfis- og Skipulagsstofnun liggur ekki fyrir, er frekari umfjöllun um málið ekki tímabær.

Árni Ólafsson vék af fundi kl. 10:29.
4.
Skráning menningarminja; fornleifa, húsa og mannvirkja - skil á gögnum
Málsnúmer 201701052
Umhverfisráð felur sviðsstjóra að koma umbeðnum skráningarskýrslum til Minjastofnunar Íslands.
5.
Skipulag í landi Snerru, Svarfaðardal
Málsnúmer 201701034
Til kynningar lýsing dags 15. jan 2017 á fyrirhugaðri deiliskipulagstillögu í landi Snerru, Dalvíkurbyggð, sem byggir á aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020.
Sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs er falið að leita umsagnar um lýsinguna hjá umsagnaraðilum og Skipulagsstofnun og að kynna hana almenningi í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
6.
Tillaga að tímabundinni niðurfellingu eða afslætti á gatnagerðargjöldum í Dalvíkurbyggð
Málsnúmer 201701040
Á 809. fundi byggðarráðs var eftirfarandi tillögu vísað til umsagnar umhverfisráðs."Í 6. gr. Samþykktar um gatnagerðargjald í þéttbýli sveitarfélagsins Dalvíkurbyggðar segir um sérstaka lækkunarheimild eða niðurfellingu gatnagerðargjalda, sbr. 6. gr. laga nr. 153/2006, að hana megi viðhafa við: ,,Sérstakar ástæður, t.d. þétting byggðar, atvinnuuppbygging, lítil ásókn í lóðir eða eftirspurn eftir leiguhúsnæði.? Í samræmi við þetta samþykkir byggðaráð að beita tímabundið ákvæði 6. gr. 1. mgr. að fella niður gatnagerðargjöld af byggingum einstaklinga og fyrirtækja á lóðum við þegar tilbúnar götur. Þetta ákvæði gildir frá samþykkt þess í sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar og út árið 2020 og miðast þá við að framkvæmdir hefjist innan þessara tímamarka."
Í samræmi við þetta samþykkir umhverfisráð að beita tímabundið ákvæði 6. gr. 1. mgr. að fella niður gatnagerðargjöld af byggingum einstaklinga og fyrirtækja á lóðum við þegar tilbúnar götur.


Þetta ákvæði gildir frá samþykkt þess í sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar og út árið 2020 og miðast þá við að framkvæmdir hefjist innan þessara tímamarka."
Samþykkt með fimm atkvæðum.