Fara í efni

Umhverfisráð

284. fundur
15. nóvember 2016 kl. 18:00 - 19:15
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Haukur Arnar Gunnarsson Formaður
Helga Íris Ingólfsdóttir Varaformaður
Karl Ingi Atlason Aðalmaður
Guðrún Anna Óskarsdóttir Aðalmaður
Kristín Dögg Jónsdóttir Aðalmaður
Starfsmenn
Börkur Þór Ottósson Sviðstjóri
Fundargerð ritaði:
Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá
1.
Friðland Svarfdæla Verndar- og stjórnunaráætlun 2017-2026
Málsnúmer 201611002
Til kynningar drög að verndar- og stjórnunaráætlun fyrir Friðland Svarfdæla frá Umhverfisstofnun dags. 03. nóvember 2016.
Afgreiðslu frestað til næsta fundar.
2.
Drög að nýrri reglugerð um heimagistingu o.fl.
Málsnúmer 201611043
Lögð fram til kynningar drög að reglugerd um gisti- og veitingastaði.
Ráðið gerir ekki athugasemdir við framlögð drög að reglugerd um gisti- og veitingastaði.
3.
Ritun fundargerða
Málsnúmer 201611053
Til umræðu ritun fundagerða.
Lagt fram til kynningar.
4.
Umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 201611060
Til afgreiðslu umsókn um byggingarleyfi dags. 19. september 2016 frá Bjórböðunum ehf fyrir bjórböð að Hinriksmýri á Árskógssandi.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir og felur sviðsstjóra að veita umbeðið leyfi.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
5.
Stöðumat janúar - september 2016
Málsnúmer 201610045
Til kynningar stöðumat umhverfis- og tæknisviðs fyrir janúar-september 2016
Ráðið gerir ekki athugasemdir við framlagt stöðumat.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
6.
Skýrsla stjórnar 2015- 2016 ásamt fylgigögnum.
Málsnúmer 201611066
Til kynningar skýrsla stjórnar Ferðafélags Svarfdæla 2015-2016 ásamt ársreikningi 2015.
Ráðið þakkar greinagóða skýrslu og fagnar góðu starfi félagsins á liðnu ári.
7.
Fundargerðir 2016
Málsnúmer 201602073
Til kynningar fundargerð HNE frá 15. september ásamt fjárhagsáætlun 2017.
Lagt fram til kynningar.
8.
Seiðaeldi við Árskógssand.
Málsnúmer 201608099
Með erindi dags. 6. nóvember 2016 óskar Guðmundur Valur Stefánsson fyrir hönd Laxós ehf eftir lóð fyrir seiðaeldiasstöð við ósa Þorvaldsdalsár á Árskógssandi.
Umhverfisráði Dalvíkurbyggðar tekur jákvætt í umsóknina, en getur ekki veitt umbeðna lóð fyrr en skipulag svæðisins liggur fyrir.
Ráðið leggur áherslu á að í upphafi skipulagsferlisins sé haft samráð við aðliggjandi nágranna.
Samþykkt með fimm atkvæðum.