Fara í efni

Umhverfisráð

282. fundur
20. september 2016 kl. 20:00 - 23:15
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Haukur Arnar Gunnarsson Formaður
Helga Íris Ingólfsdóttir Varaformaður
Karl Ingi Atlason Aðalmaður
Guðrún Anna Óskarsdóttir Aðalmaður
Kristín Dögg Jónsdóttir Aðalmaður
Starfsmenn
Börkur Þór Ottósson Sviðstjóri
Fundargerð ritaði:
Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá
1.
Opið svæði milli Svarfaðarbrautar og Goðabrautar ( gæsluvöllur ).
Málsnúmer 201604142
Lögð fram kostnaðaráætlun vegna fyrirhugaðara breytinga á opnu svæði milli Svarfaðarbrautar og Goðabrautar.
Ráðið gerir ekki athugasemdir við framlögð gögn og vísar verkefninu til 11410-4396.
Ráðið leggur áherslu á að breytingar á svæðinu verði framkvæmdar í samráði við nærliggjandi lóðarhafa.
Samþykkt með fimm atkvæðum
2.
Gjaldskrár umhverfis- og tæknisviðs 2017
Málsnúmer 201609081
Lögð fram tillaga að gjaldskrám 2017.
Umhverfisráð leggur til framlagðar breytingar á gjaldskrám og felur sviðsstjóra að færa inn texta vegna tengingar við vísitölu samkvæmt umræðum á fundinum.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
3.
Starfs- og fjárhagsáætlun umhverfis og tæknisviðs 2017
Málsnúmer 201609080
Áframhaldandi vinna við gerð starfs- og fjárhagsáætlunar 2017.
Umhverfisráð samþykkir framlagðar tillögur með þeim breytingum sem ráðið hefur gert.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
4.
Trausti Þorsteinsson; vegna fjárhagsáætlunargerðar 2017. Vegur að Framnesi
Málsnúmer 201608088
Tekið fyrir erindi frá Trausta Þorsteinssyni, dagsett þann 25. ágúst 2016, þar sem vakin er athygli á ástandi vegar að Framnesi sem og að huga þurfi að koma í veg fyrir landbrot á svæðinu.Á 791. fundi byggðarráðs var erindinu vísa til umhverfisráðs og óskað eftir niðurstöðu og tillögu að afgreiðslu.Á 281. fundi umhverfisráðs var erindinu frestað.
Guðrún Anna Óskarsdóttir vék af fundi vegna vanhæfis kl. 22:55<br />Karl Ingi Atlason situr hjá
Umhverfisráð samþykkir að gerðar verði lagfæringar á veginum að Framnesi og felur sviðsstjóra að ræða við umsækjanda.
Samþykkið er gert með fyrirvara um að legu veganna á svæðinu verði ekki breytt í tengslum við umferðaöryggisáætlun.
Samþykkt með þremur atkvæðum
Guðrún Anna Óskarsdóttir kom aftur inn á fundinn kl. 23:12
5.
Skýrsla starfshóps sambandsins um stefnumótun í úrgangsmálum
Málsnúmer 201608109
Til kynningar Skýrsla starfshóps sambandsins um stefnumótun í úrgangsmálum
Lagt fram til kynningar.