Umhverfisráð
275. fundur
15. apríl 2016
kl.
09:00
-
12:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Haukur Arnar Gunnarsson
Formaður
Helga Íris Ingólfsdóttir
Varaformaður
Karl Ingi Atlason
Aðalmaður
Guðrún Anna Óskarsdóttir
Aðalmaður
Kristín Dögg Jónsdóttir
Aðalmaður
Starfsmenn
Börkur Þór Ottósson
Sviðstjóri
Fundargerð ritaði:
Börkur Þór Ottósson
sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá
1.
Tillögur umhverfisstjóra að verkefnum sumarið 2016
Til umræðu tillögur umhverfisstjóra að verkefnum sumarsins.
Umhverfisráði líst vel á tillögur umhverfisstjóra með áorðnum breytingum ráðsins.
2.
Framkvæmdir á vegum Umhverfis- og tæknisviðs sumarið 2016
Til umræðu framkvæmdir sumarsins 2016 á vegum umhverfis- og tæknisviðs
Liðnum frestað til næsta fundar.
3.
Umferðarmerkingar
Til umræðu umferðamerkingar í Dalvíkurbyggð
Liðnum frestað til næsta fundar.
4.
Fundargerðir 2016
Til kynningar fundargerðir HNE frá 9. mars og 6. apríl ásamt ársreikningi 2015.
Umhverfiráð Dalvíkurbyggðar gerir ekki athugasemdir við framlagðar fundargerðir og ársreikning. Ráðið hlakkar til að fylgjast með framvindu lyktarmengunarvarna vegna heitloftsþurrkunar sjávarafurða á starfssvæði HNE.
5.
Nýtt rekstrarleyfi - Karlsá
Til kynningar umsögn byggingarfulltrúa vegna endurnýjunar á rektrarleyfi að Karlsá, Dalvíkurbyggð.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við umsögn byggingarfulltrúa.
6.
Nýtt rekstrarleyfi - Klængshóll
Til kynningar umsögn byggingarfulltrúa vegna nýs rektarleyfis að Klængshóli, Dalvíkurbyggð.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við umsögn byggingarfulltrúa með fyrirvara um jákvæða umsögn slökkviliðsstjóra.
7.
Umsókn um leyfi til uppsettningar á auglýsingaskilti
Með rafpósti dags. 11. apríl 2016 óskar Aðalsteinn Hjelm, fyrir hönd Ektafisks ehf, eftir leyfi til uppsetningar á skilti samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Ráðið veitir umbeðið leyfi með þeim fyrirvara að sviðsstjóri ræði við umsækjanda um breytingar á skiltunum samkvæmt umræðum á fundinum.
8.
Lýsing í kirkjubrekkunni
Með erindi dags. 3. mars 2016 óskar Gísli Rúnar Gylfason eftir leyfi til uppsetningar á ljóskösturum við kirkjubrekkuna.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir og felur sviðsstjóra að veita umbeðið leyfi.
9.
Snjómokstur í Dalvíkurbyggð
Til umræðu bókun ungmennráðs frá 10. fundi ráðsins þann 7. apríl 2016.
Umhverfisráð þakkar ungmennaráði verðugar ábendingar og felur sviðsstjóra að ræða þær við umhverfisstjóra. Ráðið bendir einnig á að þessi mál eru til skoðunar í þeirri vinnu sem er í gangi við gerð umferðaöryggisáætlunar fyrir Dalvíkurbyggð.
10.
Frá íbúum Hauganess, vegna opinnar skolplagnar og fleira
Með rafpósti sem sendur var 8. mars 2016 barst erindi frá Elvari Reykjalín 'Fyrir hönd íbúa á Hauganesi hef ég verið beðinn um að koma á framfæri eftirfarandi:1. Opin skolplögn fyrir þorpið austan grjótgarðs getur ekki talist viðunandi og er búin að sitja á hakanum í mörg ár.Það er orðið algengt að ferðafólk labbi um fjöruna og klappirnar og hafa margir lýst undrun sinni á skolpmálunum á staðnum.Óskum við eftir því að lögnin verði framlengd vel niður fyrir stórstraums fjöruborð strax og vorar.2. Kofakumbaldar við Aðalgötu 1 eru mikil lýti á þessu annars snyrtilega þorpi og óskum við eftir að þeir verði fjarðlægðir hið fyrsta ef þeir hafa ekki stöðuleyfi. 4. Jarðbor út á bökkum við grjótnám sem er lítið meira en ryðhrúga blasir við öllum sem koma í þorpið og stingur mjög í augu og óskum við eftir að hann verði fjarlægður hið fyrsta og moldarhaugar við grjótnám verði jafnaðir út.Okkur þætti vænt um að fá svar sem fyrst varðandi viðbrögð við þessum óskum.'Undir málinu er eftir farandi minnisblað sem dagsett er 10. mars 2016.'Undirritaður ásamt sviðsstjóra veitu- og hafna fór og heimsótti Elvar Reykjalín bréfritara og fórum við yfir þau málefni sem hann sendi inn. Þorsteinn upplýsti að á áætlun væru kr. 2.500.000 til fráveitu á Hauganesi á þessu ári. Einnig upplýsti hann að haft hafi verið samband við annan eiganda Dalverks sem hefur með tækið við námuna norðan við þorpið að gera. Þeim verður gert að fjarlægja tækið af landi sveitarfélagsins. Undirritaður mun beita sér fyrir að eiganda Aðalgötu 1 verði gefin kostur á aðstoð við að fjarlægja þau mannvirki sem byggð hafa verið í óleyfi á lóðinni.'Börkur Þór Ottósson
Umhverfisráð þakkar innsendar ábendingar og felur sviðsstjóra að ræða við eiganda Aðalgötu 1 og eiganda jarðbors á bökkum við grjótnámu.
11.
Umsókn um leyfi til breytinga innanhúss að Hafnarbraut 24, Dalvík.
Til afgreiðslu umsókn um byggingarleyfi vegna innanhúsbreytinga að Hafnarbraut 24, Dalvík.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir og felur sviðsstjóra að veita umbeðið leyfi.
12.
Nýr golfvöllur; Ósk vegna vinnu við deiluskipulag
Með bréfi dags. 9. mars 2016 óskar Marsibil Sigurðardóttir, fyrir hönd golfklúbbsins Hamars, eftir því að gert verði ráð fyrir 9 holu golfvelli í deiliskipulagi svæðisins. Ásamt því að þar verði skipulagt heildstætt útivistarsvæði sem muni þjóna öllum íbúum Dalvíkurbyggðar.
Þar sem forsendur fjármögnunar á gerð deiliskipulags Fólkvangsins í Böggvisstasðarfjalli eru brostnar 2016 getur ráðið ekki orðið við umbeðinni ósk að sinni. Ráðið leggur til við byggðarráð að hugur íbúa til þessa verkefnis verði kannaður frekar áður en lagt er í dýra skipulagsvinnu.
13.
Umókn um lóð
Með erindi dags. 14. apríl 2016 óskar Anton Örn Brynjarsson AVH fyrir hönd Samherja Ísland ehf eftir 5.000-6.000 m2 lóð fyrir fiskvinnsluhús milli Sæbrautar og væntanlegs austugarðs.
Umhverfisráð Dalvíkurbyggðar samþykkir usóknina og vísar til gerðar nýs deiliskipulags Dalvíkurhafnar.
14.
Deiliskipulag Dalvíkurhafnar, endurskoðun
Lögð fram drög að deiliskipulagi Dalvíkurhafnar og aðliggjandi svæða, uppdráttur og greinagerð ásamt umhverfisskýrslu.
Umhverfiráð leggur til að eftirfarandi breytingar verði gerðar á deiliskipulagstillögunni og greinagerðinni.
1. Fyrirhuguð lóð við Sæbraut og norðurgarð verði stækkuð.
2. Ákvæði um flutning á nyrðri verbúð verði felldur út.
3. Aksturleið norðan fyrirhugaðrar lóðar Samherja verði sett inn.
4. Lóð fyrir verbúð við suðurgarð verði felld út og sameinuð svæði (skipulagi frestað).
1. Fyrirhuguð lóð við Sæbraut og norðurgarð verði stækkuð.
2. Ákvæði um flutning á nyrðri verbúð verði felldur út.
3. Aksturleið norðan fyrirhugaðrar lóðar Samherja verði sett inn.
4. Lóð fyrir verbúð við suðurgarð verði felld út og sameinuð svæði (skipulagi frestað).