Umhverfisráð
274. fundur
4. mars 2016
kl.
09:00
-
10:45
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Haukur Arnar Gunnarsson
Formaður
Helga Íris Ingólfsdóttir
Varaformaður
Karl Ingi Atlason
Aðalmaður
Helgi Einarsson
Varamaður
Marinó Þorsteinsson
varamaður
Starfsmenn
Börkur Þór Ottósson
Sviðstjóri
Fundargerð ritaði:
Börkur Þór Ottósson
sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá
1.
Umsókn um framkvæmdarleyfi vegna lagningu ljósleiðaralagna um Dalvík sumarið 2016.
Með innsendu erindi dags. 8. febrúar 2016 óskar Gunnar Björn Þórhallsson fyrir hönd Tengis hf eftir framkvæmdarleyfi vegna lagningar ljósleiðaralagna um Dalvík sumarið 2016.
Ráðið gerir ekki athugasemdir við erindið og felur sviðsstjóra að veita umbeðið framkvæmdarleyfi.
2.
Kynning á fyrirhuguðum byggingaráformum að Hofsárkoti
Til kynningar byggingaráform að Hofsárkoti, Svarfaðardal.
Ráðið tekur vel í áformin.
3.
Fundargerðir 2016
Til kynningar erindi og fundargerðir frá HNE.
Ráðið gerir ekki athugasemdir.
4.
Gjaldskrá vegna markaðar á Fiskidaginn mikla
Til afgreiðslu gjaldskrá vegna markaðar á Fiskidaginn mikla 2016.
Ráðið leggur til við byggðarráð að framlögð uppfærsla á gjaldskrá Fiskidagsins mikla verði samþykkt.
5.
Til umsagnar tillögu til þingsályktunar um uppbyggingu áningarstaða Vegagerðarinnar við þjóðvegi, 150. mál.
Til kynningar erindi frá Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar á tillögu til þingsályktunar um uppbyggingu áningarstaða Vegagerðarinnar við þjóðvegi.Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 8. mars nk.
Ráðið gerir ekki athugasemdir við framlagðar tillögur.
6.
Til kynningar ný samþykkt um skilti og auglýsingar í Dalvíkurbyggð
Til kynningar ný samþykkt um skilti og auglýsingar í Dalvíkurbyggð
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við framlögð drög að samþykkt um skilti og auglýsingar í Dalvíkurbyggð og vísar samþykktinni til afgreiðslu í byggðarráði.
7.
Áskoranir af íbúafundi í Svarfaðardal og Skíðadal
Til umræðu áskorun frá íbúafundi í Svarfaðardal og Skíðadal
Lagt fram til kynningar.
8.
Heimreiðamokstur
Til umræðu tillaga Karls Inga Atlasonar vegna viðmiðunarreglna um heimreiðamokstur í Dalvíkurbyggð.
Umhverfisráð leggur til við byggðarráð að framlagðar breytingar Karls Inga á viðmiðunarreglum snjómoksturs verði breytt á þá leið að þátttaka sveitarfélagsins í heimreiðamokstri verði eftirfarandi:
Þátttaka sveitarfélagsins er ein klukkustund. Helmingamokstur er fyrstu tvo klukkutímana en eftir það er kostnaður greiddur af eiganda.
Þetta þýddi það að ef það tæki hálftíma að moka heimreið þá greiddi sveitarfélagið 15 mín og eigandi 15 mín.
Þátttaka sveitarfélagsins er ein klukkustund. Helmingamokstur er fyrstu tvo klukkutímana en eftir það er kostnaður greiddur af eiganda.
Þetta þýddi það að ef það tæki hálftíma að moka heimreið þá greiddi sveitarfélagið 15 mín og eigandi 15 mín.
9.
Endurskoðun á viðmiðunarreglum snjómoksturs
Til umræðu breytingar á viðmiðunarreglum snjómoksturs í tengslum við nýtt samkomulag við Vegagerðina um framkvæmd vetrarþjónustu á helmingamokstri vega í Dalvíkurbyggð.
Afgreiðslu frestað þar til niðurstaða sveitarsstjórnar í máli nr. 201603024 liggur fyrir.