Fara í efni

Umhverfisráð

273. fundur
12. febrúar 2016 kl. 09:00 - 10:45
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Haukur Gunnarsson Formaður
Helga Íris Ingólfsdóttir Varaformaður
Karl Ingi Atlason Aðalmaður
Guðrún Anna Óskarsdóttir Aðalmaður
Kristín Dögg Jónsdóttir Aðalmaður
Starfsmenn
Börkur Þór Ottósson Sviðstjóri
Fundargerð ritaði:
Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá
1.
Samningur við Vegargerðina. Framkvæmd vetrarþjónustu á helmingamokstursvegum í Dalvíkurbyggð.
Málsnúmer 201301032
Til umræðu vetrarþjónusta og aðrar framkvæmdir á vegum Vegagerðarinnar í Dalvíkurbyggð 2016.
Ráðið þakkar þeim Pálma og Vali fyrir greinargóða yfirferð á stöðu mála. Pálmi kom með uppfært samkomulag um helmingamokstur og vetrarþjónustu Vegagerðarinnar til undirritunar.
Sviðsstjóra falið að stilla upp samanburði á nokkrum útfærslum á heimreiðamokstri fyrir næsta fund.
2.
Leiðir til innheimtu á útlögðum kostnaði við vöktun brunaviðvörunarkerfa.
Málsnúmer 201602014
Til umræðu tillaga slökkviliðsstjóra á leiðum til innheimtu á útlögðum kostnaði við vöktun brunaviðvörunarkerfa.
Umhverfisráð þakkar Vilhelmi Antoni fyrir greinargóðar skýringar og leggur til við byggðarráð að framlögð gjaldtaka verði innleidd vegna vöktunar á brunaviðvörunarkerfum stofnana.
3.
Framlenging ákvæðis um B-gatnagerðargjald
Málsnúmer 201512091
Tekinn fyrir rafpóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsettur þann 23. desember 2015, þar sem athygli sveitarfélaga er vakin á því að Alþingi hefur samþykkt frumvarp innanríkisráðherra um framlengingu B-gatnagerðargjalds. Þessi lagabreyting skiptir eingöngu máli fyrir þau sveitarfélög sem ekki hafa enn lokið framkvæmdum við lagningu bundins slitlags á eldri götur.
Lagt fram til kynningar
4.
Fundargerðir 2015
Málsnúmer 201501129
Til kynningar fundagerð Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra frá 15. desember og 3. janúar síðastliðnum.
Umhverfisráð Dalvíkurbyggðar gerir ekki athugasemdir við framlagðar fundargerðir HNE.
5.
Óheimilar auglýsingar meðfram vegum og annars staðar utan þéttbýlis
Málsnúmer 201506003
Til kynningar eftirfylgni við áður sent erindi frá Umhverfisstofnun vegna skilta utan þéttbýlis.
Ráðið felur sviðsstjóra að senda erindi á þá aðila sem eru með auglýsingarskilti með þjóðvegum innan sveitarfélagsins. Einnig óskar ráðið eftir tillögum sviðsstjóra að reglum um auglýsingarskilti í sveitarfélaginu á næsta fund.
6.
Umsókn um byggingar og framkvæmdaleyfi fyrir hönd eigenda 0201 að Hafnarbraut 10, Dalvík.
Málsnúmer 201602065
Með innsendu erindi, dags. 5. febrúar 2016, óskar Kristján E. Hjartarsson, fyrir hönd eigenda efri hæðar að Hafnarbraut 10 Dalvík, eftir byggingar -og framkvæmdarleyfi samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Umhverfisráð samþykkir innsenda umsókn með fyrivara um samþykki meðeigenda í húsinu og einnig skal framkvæmdin grendarkynnt nærliggjandi húsum áður en formlegt leyfi er veitt.