Fara í efni

Umhverfisráð

271. fundur
11. nóvember 2015 kl. 17:00 - 18:30
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Haukur Arnar Gunnarsson Formaður
Helga Íris Ingólfsdóttir Varaformaður
Karl Ingi Atlason Aðalmaður
Guðrún Anna Óskarsdóttir Aðalmaður
Kristín Dögg Jónsdóttir Aðalmaður
Starfsmenn
Börkur Þór Ottósson Sviðstjóri
Fundargerð ritaði:
Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun 2016; Herferð Dalvíkurbyggðar gegn ágengum plöntum.
Málsnúmer 201508092
Til umræðu drög að aðgerðaráætlun um eyðingu illgresis í Dalvíkurbyggð.
Umhverfisráð felur umhverfisstjóra í samráði við ráðsmenn að útfæra aðgerðaáætlunina betur samkvæmt umræðum á fundinum og óskar eftir endurskoðaðri tillögu fyrir næsta fund ráðsins í janúar. Ráðið leggur til að drög að aðgerðaráætluninni verði felld út úr starfsáætlun fyrir árið 2016.
2.
Ástand gróðurs og umferðaröryggi
Málsnúmer 201510040
Til kynningar bréf frá Samgöngustofu vegna gróðurs og umferðaröryggis.
Lagt fram til kynningar
3.
Endurnýjun á samstarfssamningi milli Dalvíkurbyggðar og Ferðafélags Svarfdæla.
Málsnúmer 201410305
Til afgreiðslu endurnýjaður samstarfssamningur milli Dalvíkurbyggðar og Ferðafélags Svarfdæla
Umhverfiráð leggur til við byggðarráð að fyrirliggjandi samningur verði samþykktur.
4.
Fjárhagsáætlun 2016; Samningur við Náttúrusetrið á Húsabakka
Málsnúmer 201509074
Til umræðu skýrsla um Náttúrusetrið á Húsabakka/Friðland Svarfdæla 2015.
Umhverfisráð þakkar fyrir greinargóða skýrslu umsjónarmanns Náttúrusetursins.
5.
Til umsagnar frumvarp til laga um breyt. á skipulagslögum (grenndarkynning), 225. mál.
Málsnúmer 201510071
Til umsagnar frumvarp til laga um breyt. á skipulagslögum (grenndarkynning), 225. mál.
Umhverfisráði líst vel á frumvarpið.
6.
Innkomið erindi vegna hraðahindrunar við Karlsrauðatorg.
Málsnúmer 201510076
Innkomið erindi dags. 14. október frá íbúa vegna hraðahindrunar við Karlsrauðatorg ofl.
Umhverfiráð þakkar ábendingarnar sem teknar verða til greina við gerð umferðaröryggisáætlunar Dalvíkurbyggðar.
7.
Fundargerðir 2015
Málsnúmer 201501129
Til kynningar fundargerð Heilbrigðiseftirlits Norðurlands frá 7. október 2015.
Lagt fram til kynningar.
8.
Umsókn um byggingarleyfi vegna niðurrifs á Hinriksmýri, Árskógsströnd
Málsnúmer 201508008
Til afgreiðslu umsókn um byggingarleyfi vegna niðurrifs á Hinriksmýri Árskógsströnd.
Umhverfiráð samþykkir, og felur sviðsstjóra að veita umbeðið leyfi.
Helga Íris Ingólfsdóttir óskar eftir að eftirfarandi sé bókað:
Það er leitt að sjá á eftir elsta húsi Árskógsstrandar. Mikilvægt er að sveitarfélagið móti sér stefnu í varðveislu gamalla húsa.
9.
Umsókn um byggingarleyfi vegna viðbyggingar
Málsnúmer 201511073
Til afgreiðslu umsókn Sveinbjörns T. Steingrímssonar vegna viðbyggingar við Brekkukot.
Umhverfisráð samþykkir, og felur sviðsstjóra að veita umbeðið leyfi.
10.
Umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 201510131
Með rafpósti dags. 28.10.2015 óskar Strendingur ehf. eftir byggingarleyfi fyrir farsímaloftnet á Brimnesborgum fyrir hönd Símans hf. samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Umhverfisráð samþykkir, og felur sviðsstjóra að veita umbeðið leyfi.
11.
Ábendingar til sveitarfélaga um fasteignaskatt o.fl. á mannvirki tengd ferðaþjónustu.
Málsnúmer 201508095
Tekið fyrir minnisblað frá lögfræði- og velferðarsviði Sambands íslenskra sveitarfélaga, dagsett þann 18. júní 2016, er varðar ábendingar til sveitarfélaga um fasteignaskatt o.fl. á mannvirki tengd ferðaþjónustu - 2. útgáfa.
Frestað til næsta fundar.
12.
Yfirlýsing um loftslagsmál
Málsnúmer 201510041
Til kynningar ósk um þátttöku í sameiginlegri yfirlýsingu um markmið í loftslagsmálum.
Umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar að skrifa undir sameiginlega yfirlýsingu um markmið í loftslagsmálum.
13.
Umsóknir um stofnun tveggja lóða og breytingar á lóðarstærðum annara tveggja.
Málsnúmer 201510129
Til afgreiðslu umsókn dags. 23. október frá Hafliða Gunnari Sigurðssyni um stofnun tveggja lóða úr landi Syðri-Haga ásamt breyttri skráningu á Götu og Götuseli.
Umhverfiráð samþykkir, og felur sviðsstjóra að veita umbeðið leyfi.
14.
Tilkynning um fyrirhugaða niðufellingu Langholtsvegar nr. 8078-11 af vegaskrá
Málsnúmer 201510139
Til kynningar tilkynning frá Vegagerðinni um fyrirhugaða niðurfellingu Langholtsvegar nr. 8078-11 af vegaskrá.
Lagt fram til kynningar
15.
Skipulagslýsing vegna breytinga á aðalskipulagi og nýtt deiliskipulag Dalvíkurhafnar
Málsnúmer 201511062
Til kynningar skipulagslýsing dags. 9. nóvember 2015 vegna aðalskipulagsbreytingar og deiliskipulags fyrir Dalvíkurhöfn og aðliggjandi svæði. Fyrirhugað er m.a. að stækka hafnarsvæðið með landfyllingum og nýjum sjóvarnargarði og endurskoða ákvæði um starfsemi innan skipulagssvæðisins. Athafnasvæði við Sandskeið mun einnig stækka með nýrri sjóvörn og landfyllingu.
Sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs er falið að leita umsagnar um hana hjá umsagnaraðilum og Skipulagsstofnun og að kynna hana almenningi í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
16.
Auðlindastefna Dalvíkurbyggðar
Málsnúmer 201511064
Á 273. fundi sveitarstjórnar þann 27. október 2015 samþykkti sveitarstjórn tillögu veitu- og hafnaráðs að sveitarstjórn feli umhverfisráði að huga að auðlindastefnu fyrir Dalvíkurbyggðar.
Umhverfisráð leggur til við byggðaráð að þverfaglegur vinnuhópur fjögurra fagráða verði settur á laggirnar. Lagt er til að vinnuhópurinn verði skipaður sem hér segir: Einn fulltrúi úr Umhverfisráði, einn fulltrúi úr Atvinnumála- og kynningaráði, einn fulltrúi úr Veitu- og hafnaráði, einn fulltrúi úr Landbúnaðaráði. Einnig starfi starfsmenn viðkomandi fagráða með vinnuhópnum; Sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs, sviðsstjóri veitu- og hafnasviðs, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, upplýsingafulltrúi og sveitarstjóri.
Umhverfisráð leggur til að skoðað verði hvort huga ætti að því að samtvinna vinnu við Auðlindastefnu við vinnu við Atvinnustefnu sem þegar er hafin.
Umhverfisráð bendir á að taka þarf ákvörðun um hvort greiða á kjörnum fulltrúum fyrir vinnuna og að ekki er gert ráð fyrir þeim kostnaði í fjárhagsáætlun 2015 og 2016.
17.
Deiliskipulag Dysnesi, Hörgársveit.
Málsnúmer 201511075
Til umsagnar tillaga að deiliskipulagi fyrir hafnar-, athafna- og iðnaðarsvæði á Dysnesi, Hörgársveit. Tillagan fellur undir lög um umhverfismat áætlana nr. 105/2006 og fylgir henni umhverfisskýrsla.Í deiliskipulaginu er gert ráð fyrir uppbyggingu athafna- og iðnaðarsvæðis auk hafnar og hafnsækinnar starfsemi. Aðkoma að svæðinu er frá Bakkavegi og liggur safngata fyrir miðju svæði niður að hafnarbakka. Gert er ráð fyrir um 16,5 ha landfyllingu með viðlegukanti fyrir stór skip og athafnasvæði hafnar með fjölbreyttum og sveigjanlegum nýtingarmöguleikum.
Umhverfisráð frestar afgreiðslu til næsta fundar ráðsins.