Umhverfisráð
267. fundur
4. september 2015
kl.
09:00
-
11:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Haukur Arnar Gunnarsson
Formaður
Helga Íris Ingólfsdóttir
Varaformaður
Guðrún Anna Óskarsdóttir
Aðalmaður
Kristín Dögg Jónsdóttir
Aðalmaður
Friðrik Vilhelmsson
Varamaður
Starfsmenn
Börkur Þór Ottósson
Sviðstjóri
Fundargerð ritaði:
Börkur Þór Ottósson
sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá
1.
Umferðaröryggisáætlun Dalvíkurbyggðar
Til umræðu umferðaöryggisáætlun ásamt stöðu umhverfismála almennt.Valur Þór Hilmarsson situr fundinn undir þessum lið.
Ráðið leggur ásherslu á að vinnu þessarar nefndar verði komið í farveg. Haukur Arnar óskaði eftir að víkja úr nefndinni og í hans stað var skipuð Guðrún Anna Óskarsdóttir. Umhverfisstjóra falið að boða til fundar seinnipart september.
Ráðið lýsir yfir vonbrigðum með að ekki skyldu allar hraðahindranir farið upp sem gert var ráð fyrir að settar væru upp í vor. Ráðið felur umferðaröryggisáætlunarnefnd að sjá til þess að þær verði settar upp tímanlega næsta vor.
Ráðið lýsir yfir vonbrigðum með að ekki skyldu allar hraðahindranir farið upp sem gert var ráð fyrir að settar væru upp í vor. Ráðið felur umferðaröryggisáætlunarnefnd að sjá til þess að þær verði settar upp tímanlega næsta vor.
2.
Ábendingar og kvartanir vegna þjónustu
Til umræðu ábending frá íbúa vegna umhirðu opinna svæða á Dalvík.
Umhverfisráð felur umhverfisstjóra að ræða nánar við bréfritarar.
3.
Fundarboð: Verndar- og stjórnaráætlun Friðlands Svarfdæla
Sviðsstjóri upplýsir ráðið um fundinn þar sem hann mætti fyrir hönd sveitarfélagsins.
Ráðið fagnar því að þessi vinna sé farin í gang.
4.
Umsögn vegna rekstrarleyfis til sölu á gistingu
Til kynningar umsögn vegna umsóknar Unnar E. Hafstað Ármannsdóttur, kt. 220275-5669, Böggvisstaðir, 621 Dalvík, um nýtt rekstrarleyfi til sölu heimagistingar að Böggvisstöðum, 621 Dalvík.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við umsögnina.
5.
Ábendingar til sveitarfélaga um fasteignaskatt o.fl. á mannvirki tengd ferðaþjónustu.
Til umræðu ábending frá Sambandi Íslenskra sveitarfélaga til sveitarfélaga um fasteignaskatt o.fl. á mannvirki tengdferðaþjónustu.
Frestað.
6.
Stöðumat jan-júní 2015
Til kynningar stöðumat jan-júlí 2015.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við framlagt stöðumat jan-júlí 2015.
7.
Ósk um þáttöku Vegargerðarinnar í lengingu á sjóvarnargarði í Dalvíkíkurbyggð
Til afgreiðslu ósk Vegagerðarinna um framkvæmdarleyfi vegna sjóvarna á Árskógsströnd samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Umhverfiráð felur sviðsstjóra að veita umbeðið leyfi.
8.
Umsókn um lóð
Til afgreiðslu umsókn um lóð við Ránarbraut, Dalvík.
Umhverfiráð tekur vel í umsóknina og vísar henni til vinnu við deiliskipulags svæðisins.
9.
Réttindi reykkafara í Dalvíkurbyggð 2015
Bréf frá Mannvirkjastofnun vegna réttinda reykkafara í Dalvíkurbyggð.
Lagt fram til kynningar.
10.
Drög að samningi við Mótorsportfélag Dalvíkur um svæði fyrir félagið.
Til kynningar drög að samningi við Mótorsportfélag Dalvíkur um svæði fyrir félagið á Hrísamóum.
Ráðið felur sviðsstjóra að kynna Mótorsporfélagi Dalvíkur umræddan samning og önnur gögn ásamt því að segja upp gildandi samningi frá 2010.
11.
Umsókn um byggingarleyfi fyrir hönd eiganda Skáldlækjar-ytri
Fyrir hönd eiganda Skáldlækjar ytri óskar Kristján E Hjartarsson eftir byggingarleyfi samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Ráðið felur sviðsstjóra að veita umbeðið leyfi.
12.
Umsókn um byggingarleyfi fyrir hönd eigenda Karlsrauðatorgs 18, Dalvík
Fyrir hönd eiganda Karlsrauðatorgs 18, Dalvík óskar Kristján E. Hjartarsson eftir byggingarleyfi samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Ráðið felur sviðsstjóra að veita umbeðið leyfi með fyrirvara um samþykki næstu nágranna í Karlsrauðatorgi 16 og 20.
13.
Framkvæmdarleyfi vegna jarðvegsframkvæmda við bílastæði norðan Dalvíkurkirkju,
Kristján E. Hjartarsson óskar fyrir hönd Dalvíkurkirkju eftir framkvæmdarleyfi vegna jarðvegsframkvæmda við bílastæði norðan kirkjunnar.
Ráðið felur sviðsstjóra að veita umbeðið leyfi og ganga frá nýjum lóðarleigusamningum fyrir þessar tvær lóðir.