Fara í efni

Umhverfisráð

266. fundur
6. ágúst 2015 kl. 09:00 - 11:00
í Múla á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Haukur Arnar Gunnarsson Formaður
Helga Íris Ingólfsdóttir Varaformaður
Karl Ingi Atlason Aðalmaður
Guðrún Anna Óskarsdóttir Aðalmaður
Kristín Dögg Jónsdóttir Aðalmaður
Starfsmenn
Börkur Þór Ottósson Sviðstjóri
Fundargerð ritaði:
Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá
1.
Umsögn vegna rekstarleyfis
Málsnúmer 201505144
Til kynningar
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við umrætt leyfi.
2.
Ný lóð úr landi Skáldalækjar ytri
Málsnúmer 201508005
Til afgreiðslu umsókn um stofnun frístundalóðar úr landi Skáldalækjar - Ytri samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina og felur sviðsstjóra að stofna lóðina.
3.
Beiðni um umsögn - Fiskidagurinn mikli
Málsnúmer 201507051
Til kynningar umsögn byggingarfulltrúa vegna Fiskidagsins mikla 2015.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við umrætt leyfi.
4.
Umsókn um nýtt rekstrarleyfi - Kondóbar
Málsnúmer 201507002
Til kynningar umsögn byggingarfulltrúa vegna rekstraleyfis Kondóbars.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við umrætt leyfi.
5.
Innkomið erindi vegna æfingasvæðis fyrir mótorsport.
Málsnúmer 201408011
Til umræðu æfingasvæði fyrir mótorcross
Umhverfisráð felur sviðsstjóra og formanni ráðsins að funda með stjórn félagsins og í framhaldi af því að gera samning um svæðið og það deiliskipulagt.
6.
Umsókn um byggingarleyfi vegna niðurrifs á Hinriksmýri, Árskógsströnd
Málsnúmer 201508008
Til afgreiðslu umsókn um byggingarleyfi vegna niðurrifs á Hinriksmýri, Árskógsströnd.
Umhverfisráð tekur undir álit minjavarðar Norðurlands eystra, en þar segir meðal annars " Eftir að hafa kynnt sér sögu hússins og skoðað það á vetvangi, telur Minjastofnun Íslands að húsið sé mjög varðveisluvert. Minjastofnun mælist til þess að húsinu verði fundið hlutverk og endurnýjað í samræmi við byggingarsögu þess. Ef ekki reynist unnt að varðveita það á sínum stað, þá mætti flytja það á hentugri stað til endurbyggingar og nýtingar ".
Umhverfisráð hvetur umsækjanda til að leita allra leiða til að koma í veg fyrir að húsið verði rifið. Lagt er til að húsið verði auglýst til sölu/flutnings og eða endurbyggingar á staðnum. Á næsta fundi ráðsins óskar ráðið eftir greinagerð frá eiganda um stöðu málsins.
7.
Umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 201508007
Umsókn um byggingarleyfi vegna hesthúss á Skeiði.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við umbeðið leyfi og felur sviðsstjóra að afgreiða umsóknina.
8.
Umsókn um breytta notkun á bílgeymslu að Goðabraut 24, Dalvík.
Málsnúmer 201508009
Umsókn um breytta notkun á bílgeymslu að Goðabraut 24, Dalvík samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við umbeðið leyfi með fyrirvara um samþykki Heilbrigðiseftirlits Norðurlands.