Fara í efni

Umhverfisráð

265. fundur
1. júlí 2015 kl. 08:15 - 11:45
í Múla á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Haukur Arnar Gunnarsson Formaður
Helga Íris Ingólfsdóttir Varaformaður
Karl Ingi Atlason Aðalmaður
Guðrún Anna Óskarsdóttir Aðalmaður
Kristín Dögg Jónsdóttir Aðalmaður
Starfsmenn
Börkur Þór Ottósson Sviðstjóri
Fundargerð ritaði:
Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá
1.
Innkomið erindi vegna æfingasvæðis fyrir mótorsport.
Málsnúmer 201408011
Til umræðu innsent erindi dags. 3. júní 2015 frá Mótorsportfélagi Dalvíkur.
Umhverfisráð felur sviðsstjóra að ræða við bréfritara og í framhaldi mun ráðið boða forsvarsmenn félagsins til fundar.
2.
Ósk um framkvæmdarleyfi vegna efnistöku á Árskógsströnd
Málsnúmer 201506150
Fyrir hönd framkvæmdardeildar Akureyrarbæjar óskar Jónas Vigfússon eftir leyfi til malartöku á Árskógsströnds samkvæmt meðfylgjandi gögnum
Umhverfisráð samþykkir umbeðið framkvæmdarleyfi og felur sviðsstjóra að ganga frá leyfisveitingunni.
3.
Umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 201506056
Til afgreiðslu umsókn um byggingarleyfi að Höfða lóð samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Umhverfisráð felur sviðsstjóra að veita umbeðið leyfi með fyrirvara um úttekt slökkviliðsstjóra.
4.
Pallur/verönd við Grundargötu 1 (Sigtún).
Málsnúmer 201505115
Til kynningar gögn vegna framkvæmda við Grundargötu 1 (Sigtún).
Ráðið gerir ekki athugasemdir við framkvæmdina.
5.
Umsókn um frístundalóð að Hamri
Málsnúmer 201506098
Með bréfi dags. 15. júní 2015 óska Ragheiður Valdimarsdóttir og Snæbjörn Ingi Ingólfsson eftir frístudarlóð í landi Hamars.
Umhverfisráð samþykkir umsókn um frístundarlóð nr. 17 að Hamri með fyrirvara um að umsækjendur uppfylli skilyrði sem fram koma í úthlutunarreglum um byggingarlóðir.
6.
Fjárhagsáætlun 2015; Strandblakvöllur
Málsnúmer 201409010
Innkomið erindi vegna staðsetningar og framkvæmdar á strandblakvelli við Íþróttamiðstöð Dalvíkurbyggðar.
Umhverfisráð samþykkir innsent erindi.
7.
Malbikun 2015
Málsnúmer 201505105
Til kynningar tillögur að gatnamótum Hólavegur, Goðabraut og Bjarkarbraut.
Umhverfisráð felur sviðsstjóra að kalla eftir áliti lögreglu og vinnuhóps um umferðaröryggisáætlun.
8.
Deiliskipulag Dalvíkurhafnar, endurskoðun
Málsnúmer 201401168
Drög að deiliskipulagi Dalvíkurhafnar og greinagerð kynnt á sameiginlegum fundu umhverfisráðs og veitu-og hafnarráðs.Á fundinn mætti Ágúst Hafsteinsson hönnuður.
Umhverfisráð fór á sameiginlegan fund með veitu-og hafnarráði 10:15 þar sem kynnt voru drög að deiliskipulagi Dalvíkurhafnar ásamt greinagerð.