Umhverfisráð
263. fundur
8. maí 2015
kl.
09:00
-
11:15
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Haukur Arnar Gunnarsson
Formaður
Helga Íris Ingólfsdóttir
Varaformaður
Guðrún Anna Óskarsdóttir
Aðalmaður
Kristín Dögg Jónsdóttir
Aðalmaður
Friðrik Vilhelmsson
Varamaður
Starfsmenn
Börkur Þór Ottósson
Sviðstjóri
Fundargerð ritaði:
Börkur Þór Ottósson
sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá
1.
Hugmyndir að umhverfisverkefnum sumarið 2015
Umhverfisstjóri kynnir hugmyndir að umhverfisverkefnum fyrir sumarið.
Umhverfisráð þakkar umhverfisstjóra fyrir áhugaverðar hugmyndir að verkefnum sumarsins og líst vel á hugmyndir að gerð áætlana fyrir umhverfisverkefni í framtíðinni.
2.
Úttekt slökkviliða haust 2014, Dalvík
Til kynningar úttekt Mannvirkjastofnunar á slökkviliði Dalvíkur.
Umhverfisráð leggur til að sviðsstjóri og formaður umhverfisráðs fundi með slökkviliðsstjóra og fari nánar yfir úttektina.
3.
Fundur um málefni þjóðlendna
Tekið fyrir erindi frá Forsætisráðuneytinu, bréf dagsett þann 25. mars 2015, þar sem fram kemur að ráðuneytið hyggst halda fund fimmtudaginn 21. maí 2015 kl.14.00 á Akureyri. Efni fundarins eru málefni þjóðlenda og er nú haldinn í þriðja sinn.
Lagt fram til kynningar.
4.
Upplýsingar til Sveitarfélaga frá Hringrás Endurvinnslu
Bréf frá Hringrás lagt fram til kynningar.
5.
Umsókn um stöðuleyfi fyrir fellihýsi
Með innsendi erindi dags. 28. apríl 2015 óskar Leifur Kr. Harðarsson eftir endurnýjun á stöðuleyfi fyrir hjólhýsi samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina og felur sviðsstjóra að veita umbeðið leyfi.
6.
Umsókn um stöðuleyfi
Með innsendu erindi dags. 6. maí 2015 óska Sigurður Jónsson og Zophonías Antonsson eftir endurnýjun á stöðuleyfi fyrir hjólhýsi á lóð landnr. 151842 í landi Hrísa.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina og felur sviðsstjóra að veita umbeðið leyfi.
7.
Umsókn um leyfi til spreninga að Sauðanesi
Með rafpósti dags. 14. apríl 2015 óskar Óskar Árnason fyrir hönd Steypustöðvarinar Dalvík ehf eftir leyfi til borana og sprenginga á Sauðanesi samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Umhverfisráð tekur jákvætt í erindið og felur sviðasstjóra að veita umbeðið leyfi. Ráðið felur sviðsstjóra einnig að fara yfir námumál sveitarfélagsins í heild sinni með tilliti til hverfisverndar ofl.
8.
Umsókn um malartöku í Svarfaðardalsá 2015.
Með erindi dags. 7. maí 2015 óskar Gunnlaugur Sigurðsson fyrir hönd Klaufa ehf eftir leyfi til malartöku í Svarfaðardalsá.
Með fyrirvara um jákvæðar umsagnir frá Fiskistofu gerir umhverfisráð ekki athugasemdir við umsóknina og felur sviðsstjóra að afgreiða umbeðið leyfi.
9.
Umsókn um byggingarleyfi vegna breytinga á bílgeymslu
Með bréfi dags. 4. maí 2015 óskar Hörður Sigfússon eftir leyfi til endurbóta á bílgeymslu.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina og felur sviðsstjóra að veita umbeðið leyfi.
10.
Malbik milli Hafnargötu 2 og 4, Hauganesi.
Á 733. fundi byggðarráðs þann 30. apríl 2015 var ósk um viðauka vegna malbikunarframkvæmda á Hauganesi vísa til umfjöllunar í umhverfisráði.
Umhverfisráð bendir á að umrætt svæði er skilgreint sem hafnarsvæði í Aðalskipulag Dalvíkurbyggðar 2008-2020 og falla því framkvæmdir á þessu svæði undir veitu- og hafnaráð.
Umsókninni er því vísað til veitu- og hafnaráðs.
Umsókninni er því vísað til veitu- og hafnaráðs.
11.
Umsókn um byggingarleyfi fyrir hönd eigenda Aðalgötu 2.
Með innsendu erindi dags. 4. maí 2015 óskar Kristján Eldjárn Hjartarsson eftir byggingarleyfi fyrir garðskála ofl við Aðalgötu 2, Hauganesi fyrir hönd eiganda samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemd við umsóknina og felur sviðsstjóra að grendarkynna framkvæmdina fyrir næstu nágrönnum.
12.
Umsókn um byggingarleyfi
Með innsendu erindi óskar Friðrik Þórarinsson Grund, Svarfaðardal eftir byggingarleyfi fyrir fjós samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina og felur sviðsstjóra að veita umbeðið leyfi með fyrirvara um að allar sérteikninga verði lagðar inn til embættisins.
13.
Umsókn um stöðuleyfi fyrir hjólhýsi í landi Hofsár, landnr. 151933
Með erindi dags. 10. september 2014 óska Sigríður Inga Ingimarsdóttir og Valgeir Vilmundarsson eftir stöðuleyfi í landi Hofsár. Með umsókn fylgir samþykki landeigenda.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina og felur sviðsstjóra að veita umbeðið leyfi.
15.
Ársreikningur og skýrsla stjórnar 2014
Til kynningar ársreikningur og skýrsla stjórnar Björgunarsveitarinnar Dalvík fyrir 2014.
Lagt fram til kynningar.
16.
Stöðumat umhverfis- og tæknisviðs jan-mars 2015
Til kynningar stöðumat umhverfis- og tæknisviðs fyrir tímabilið jan-mars 2015.
Lagt fram til kynningar.