Umhverfisráð
262. fundur
10. apríl 2015
kl.
09:00
-
11:15
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Haukur Arnar Gunnarsson
Formaður
Helga Íris Ingólfsdóttir
Varaformaður
Karl Ingi Atlason
Aðalmaður
Guðrún Anna Óskarsdóttir
Aðalmaður
Kristín Dögg Jónsdóttir
Aðalmaður
Starfsmenn
Börkur Þór Ottósson
Sviðstjóri
Fundargerð ritaði:
Börkur Þór Ottósson
sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá
1.
Ályktun um björgunarstörf
Til kynningar svar SL við ályktun Dalvíkurbyggðar um björgunarmál.
Umhverfisráð þakkar svarbréfið vegna ályktunar um björgunarmál í Dalvíkurbyggð.
2.
Leiðbeiningar um gerð siðareglana og hlutverk siðanefndar
Siðanefnd Samband íslenskra sveitarfélaga sem starfar skv. 29. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 hefur útbúið meðfylgjandi fræðslurit um hvað sveitarstjórnir þurfa að hafa í huga við gerð og endurskoðun siðareglna. Ritið ber heitið 'Leiðbeiningar um gerð siðareglna og hlutverk siðanefndar'.Reynt var að setja leiðbeiningarnar upp á einfaldan og skýran hátt og notast við dæmi til að vekja fólk til umhugsunar. Vonast siðanefndin til þess að leiðbeiningarnar veki upp jákvæða umræðu um siðamál og að hún nýtist kjörnum fulltrúum í sinni vinnu.
Lagt fram til kynningar.
3.
Tékklisti og ferlar vegna verkefna
Til umfjöllunar drög að tékklista og vinnureglum innanhúss er varða verkefni sem þarfnast aðkomu fleiri en eins sviðs. Á vinnufundi, sem haldinn var 13. janúar, var unninn tékklisti fyrir slík verkefni en að þeirri vinnu komu sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs, sviðsstjóri veitu- og hafnasviðs, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og upplýsingafulltrúi.
Umhverfisráð fagnar framtakinu.
4.
Til umsagnar, tillaga til þingsályktunar um að draga úr plastpokanotkun, 166. mál.
Óskað er eftir umsögn umhverfisráð á tillögu til þingsályktur um að draga úr plastpokanotkun, 166. mál.
Umhverfisráð Dalvíkurbyggðar gerir ekki athugasemdir við þingsályktunina.
5.
Fundargerðir 2015
Til kynningar fundagerðir Heilbrigðiseftirlits Norðurlands frá 14. janúar,4. febrúar og 4. mars ásamt ársreikningi 2014.
Ráðið hefur kynnt sér fundagerðir og ársreikning 2014 og gerir ekki athugasemdir.
6.
Leyfi til uppsetningar á yfirtendrunargámi
Með innsendu erindi dags. 18. mars 2015 óskar Vilhelm Anton Hallgrímsson slökkviðisstjóri eftir leyfi til uppsettningar á yfirtendrunargámi samkvæmt meðfylgjandi gögnum.Umsögn Friðlandsnefndar fylgir umsókn.
Umhverfisráð leggur til að staðsetning yfirtendrunargámsins verði í malarnámuni í Hálshorni og felur sviðsstjóra að leita umsagnar Friðlandsnefndar varðandi þá staðsetningu.
Umrætt leyfi veitt í malarnámu með fyrirvara um jákvæð viðbrögð Friðlandsnefndar.
Umrætt leyfi veitt í malarnámu með fyrirvara um jákvæð viðbrögð Friðlandsnefndar.
7.
Umsögn sambandsins - tillaga að landsskipulagsstefnu
Tekinn fyrir rafpóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsettur þann 30. janúar 2015, þar sem kynnt er umsögn Sambandsins til Skipulagsstofnunar um tillögu að landsskipulagsstefnu 2015-2026.
Lagt fram til kynningar.
8.
Umsókn um malartöku 2015
Með innsendu erindi dags. 25. mars óska þau Gunnhildur Gylfadóttir og Hjálmar Herbertsson ábúendur að Steindyrum eftir leyfi til malartekju samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Með fyrirvara um jákvæðar umsagnir frá Veiðimálastofu gerir umhverfisráð ekki athugasemdir við umsóknina og felur sviðsstjóra að afgreiða umbeðið leyfi.
9.
Umsókn um leyfi til malartöku 2015
Með innsendu erindi dags. 24. mars óskar Þór Ingvason, Bakka, eftir leyfi til malartekju samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Með fyrirvara um jákvæðar umsagnir frá Veiðimálastofu gerir umhverfisráð ekki athugasemdir við umsóknina og felur sviðsstjóra að afgreiða umbeðið leyfi.
10.
Umsókn um malartekju í landi Grundar, Svarfaðardal
Með innsendu erindi dags. 24. mars óskar Friðrik þórarinsson, Grund, eftir leyfi til malartekju samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Með fyrirvara um jákvæðar umsagnir frá Veiðimálastofu gerir umhverfisráð ekki athugasemdir við umsóknina og felur sviðsstjóra að afgreiða umbeðið leyfi.
11.
Bakkavarni við Svarfaðardalsá.
Með innsendu erindi dags. 24. mars óskar undirritaður eftir framkvæmdarleyfi fyrir hönd landeigenda samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Með fyrirvara um jákvæðar umsagnir frá Veiðimálastofu gerir umhverfisráð ekki athugasemdir við umsóknina og felur sviðsstjóra að afgreiða umbeðið leyfi.
12.
Deiliskipulag sumarhúsasvæðis í landi Hamars.
Til kynningar bréf frá Skipulagsstofnun dag. 24. mars 2015 vegna deiliskipulags í landi Hamars.
Umhverfisráð hefur kynnt sér bréfið og undrar sig á þeim athugasemdum sem fram koma í bréfinu þar sem ýtarleg skráning fornminja er til fyrir sveitarfélagið. Sviðsstjóra falið að fylgja málinu eftir.
13.
Stjórnunar- og verndaráætlun Friðlands Svarfdæla
Til kynningar
Umhverfisráð Dalvíkurbyggðar fagnar vinnu vegna verndar- og stjórnunaráætlunar fyrir Friðland Svarfdæla.
14.
Umsögn vegna nýs rekstrarleyfis á Karlsá
Til kynningar umsögn vegna rekstarleyfis að Karlsá.
Lagt fram til kynningar.
15.
Umsókn um leyfi í Brekkuseli
Til kynningar umsagnir vegna rekstrarleyfis í Brekkuseli
Lagt fram til kynningar.
16.
Innkomið erind vegna staðsettningu vegar og hraða umferð.
Til umræðu erindi dagsett 4. desember 2014 frá eigendum Másstaða.
Umhverfisráð þakkar innsent erindi.
Í vinnslu er umferðaröryggisáætlun fyrir sveitarfélagið og felur ráðið umhverfisstjóra að útfæra hraðalækkandi úrbætur við Másstaði. Einnig er sviðsstjóra falið að ræða við Vegagerðina um hugsanlega úrbætur á þessu svæði.
Í vinnslu er umferðaröryggisáætlun fyrir sveitarfélagið og felur ráðið umhverfisstjóra að útfæra hraðalækkandi úrbætur við Másstaði. Einnig er sviðsstjóra falið að ræða við Vegagerðina um hugsanlega úrbætur á þessu svæði.
17.
Umsókn um byggingarleyfi
Með bréfi dags. 07.apríl 2015 óskar Kristján Eldjárn Hjartarsson fyrir hönd eigenda að Skíðabraut 6, Dalvík eftir byggingarleyfi samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Umhverfisráð samþykkir innsend gögn með fyrirvara um að umsækjandi skili inn vottun á gæðastjórnunarkerfi og eins að sérteikningar af viðbyggingu verði lagðar inn.
Ráðið felur sviðsstjóra að grendarkynna fyrirhugaðar framkvæmdir fyrir næstu nágrönnum.
Ráðið felur sviðsstjóra að grendarkynna fyrirhugaðar framkvæmdir fyrir næstu nágrönnum.
18.
Ósk um leyfi til breytinga á Grundargötu 3, Dalvík.
Með innsendum rafpósti dag. 6. apríl 2015 óskar Anton Ingvason eftir leyfi til breytinga á Grundargötu 3, Dalvík, samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við innsenda umsókn og felur sviðsstjóra að veita umbeðið leyfi.
19.
Deiliskipulag Árskógssandi
Til umræðu deiliskipulag á Árskógsströnd
Ráðið hefur kynnt sér fyrirliggjandi gögn og gerir ekki athugasemdir.