Umhverfisráð
259. fundur
9. janúar 2015
kl.
09:00
-
11:30
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Haukur Arnar Gunnarsson
Formaður
Helga Íris Ingólfsdóttir
Varaformaður
Karl Ingi Atlason
Aðalmaður
Guðrún Anna Óskarsdóttir
Aðalmaður
Kristín Dögg Jónsdóttir
Aðalmaður
Börkur Þór Ottósson
Sviðstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Börkur Þór Ottósson
sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá
1.
Endurskoðun á deiliskipulags Hólahverfis
Til kynningar tillögur að breytingu á deiliskipulagi Hólahverfis, Dalvík.
Umhverfisráð leggur til að tillagan verði kynnt íbúum í raðhúsum nr 23-29 við Skógarhóla.
2.
Siðareglur fyrir kjörna fulltrúa; endurskoðun í upphafi kjörtímabils.
Til kynningar endurskoðaðar siðareglur kjörinna fulltrúa.
Ráðið hefur kynnt sér endurskoðaðar siðareglur.
3.
Ósk um stækkun lóðar
Innkomið erindi frá Friðrik Friðrikssyni dags. 02.01.2015 þar sem óskað er eftir stækkun á lóð samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Umhverfisráð hafnar umbeðinni stækkun.
4.
Tillaga að Landsskipulagsstefnu 2015-2026 til kynningar
Til kynningar
Ráðið hefur kynnt sér gögnin og telur ekki ástæðu til að senda inn umsögn.
5.
Gæðastjórnunarkerfi byggingarfulltrúa Dalvíkurbyggðar
Til kynningar gæðastjórnunarkerfi byggingarfulltrúa Dalvíkurbyggðar.
Ráðið hefur kynnt sér efnið og gerir ekki athugasemdir.
6.
Aðalskipulag Hörgársveitar 2012-2024 til umsagnar
Til umsagnar aðalskipulag Hörgársveitar 2012-2024
Ráðið felur sviðsstjóra að koma á framfæri eftirfarandi umsögn:
Þorvaldsdalur, innan marka Dalvíkurbyggðar, er hverfisverndaður í heild. Ákvæði snúa að verndun sérstakra landslagsgerða, jarðmyndana og búsetuminja; stórbrotins landslags og fjölbreyttra náttúruminja. Verndunin gæti fengið aukið vægi ef hún næði einnig til suðurhluta dalsins og þá til hverfisverndarsvæða nr. 2 og 36 þ.e. tveggja selja og hlaðinnar skilaréttar.
Þorvaldsdalur, innan marka Dalvíkurbyggðar, er hverfisverndaður í heild. Ákvæði snúa að verndun sérstakra landslagsgerða, jarðmyndana og búsetuminja; stórbrotins landslags og fjölbreyttra náttúruminja. Verndunin gæti fengið aukið vægi ef hún næði einnig til suðurhluta dalsins og þá til hverfisverndarsvæða nr. 2 og 36 þ.e. tveggja selja og hlaðinnar skilaréttar.
7.
Endurskoðun á reglum fyrir snjómokstur
Til umræðu breytingar á áður samþykktum viðmiðunarreglum um snjómokstur í Dalvíkurbyggð.
Greidd voru atkvæði um tillögu að framlögðum breytingum og greiddu 4 á móti og einn með, Haukur Arnar Gunnarsson.
8.
Umsókn um byggingarleyfi
Með rafpósti dags. 30.12.2014 óskar Anton Örn Brynjarsson AVH fyrir hönd eiganda Sólvangs um samþykki fyrir byggingaráformum vélageymslu samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við innsend gögn og felur sviðsstjóra að veita umbeðið samþykki.
9.
Beiðni um styrk vegna samstarfsverkefnisins, Bændur græða landið og annarra verkefna í Dalvíkurbyggð á árinu 2014
Beiðni um styrk frá Landgræðslu ríkisins samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Umhverfisráð samþykkir að veita umbeðinn styrk og felur sviðsstjóra að greiða styrk að upphæð kr. 10.000 vegna samstarfsverkefnisins, Bændur græða landið og annarra verkefna í Dalvíkurbyggð.
10.
Samningur um Friðland Svarfdæla
Til kynningar skýrsla um Friðland Svarfdæla 2014.
Umhverfisráð hefur kynnt sér skýrsluna.
11.
Úttekt slökkviliða haust 2014, Dalvík
Til kynning úttekt Mannvirkjastofnunar á slökkviliði Dalvíkur haustið 2014. Vilhelm Anton Hallgrímsson slökkviliðsstjóri kemur á fundinn og kynnir úttektina.
Umhverfisráð þakkar Vilhelm Antoni fyrir yfirferðina.
12.
Umsögn um reglugerð um starfsemi slökkviliða
Til kynningar
Umhverfisráð hefur kynnt sér drögin.
13.
Styrkbeiðni
Til umræðu styrkbeiðni vegna eldvarnarátaks
Ráðið felur sviðsstjóra að afla nánari upplýsinga um styrkbeiðnina fyrir næsta fund.
14.
Réttindi reykkafara Dalvíkrubyggð
Til kynningar.
Umhverfisráð þakkar Vilhelm Antoni fyrir yfirferðina.