Umhverfisráð
251. fundur
4. júní 2014
kl.
16:15
-
19:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Björgvin Hjörleifsson
Formaður
Anna Guðný Karlsdóttir
Aðalmaður
Kristín Dögg Jónsdóttir
Aðalmaður
Baldur Snorrason
Aðalmaður
Ólafur Ingi Steinarsson
Varamaður
Börkur Þór Ottósson
Sviðstjóri
Guðmundur St. Jónsson
1. varamaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Börkur Þór Ottósson
sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá
1.
Ársreikningur HNE 2013
Lagt fram til kynningar
Umhverfisráð hefur kynnt sér ársreikninginn og gerir ekki athugasemdir.
2.
Deiliskipulag, Klængshóll í Skíðadal, Dalvíkurbyggð
Tillaga að deiliskipulagi fyrir Klængshól í Skíðadal, Dalvíkurbyggð, sem auglýst hefur verið skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, var samþykkt í sveitarstjórn þann 18. febrúar 2014. Tillagan hefur verið yfirfarin af Skipulagsstofnun. Athugasemdir koma fram í bréfi Skipulagsstofnunar dags. 19. mars 2014 og brugðist hefur verið við þeim. Uppfærð tillaga er dags. 13. maí 2014. Eftirtaldar breytingar hafa verið gerðar frá auglýstri tillögu:-Bætt hefur verið við greinargerð tilvísun í snjóflóðaskýrslu.-Bætt hefur verið við greinargerð kafla um fráveitu og skólp.-Tekin hefur verið út úr greinargerð umfjöllun um stöðvarhús í kafla um rennslisvirkjun.-Bætt hefur verið við greinargerð í kafla um rennslisvirkjun að samráð verði haft við Minjastofnun Íslands við nánari útfærslu.-Byggingarreitir baðhúss og fjárhúss hafa verið minnkaðir vegna minja á svæðinu.-Á uppdrætti og í greinargerð er byggingarreitur sem áður var skilgreindur fyrir þyrluskýli nú skilgreindur fyrir skemmu.-Á uppdrætti hafa lendingarsvæði þyrla, sem voru sýnd til skýringar, verið tekin út.-Sýndur hluti aðalskipulags hefur verið uppfærður með áorðnum breytingum.Breytingarnar gefa ekki tilefni til endurauglýsingar.
Umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að breytt tillaga verði samþykkt og sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs verði falið að annast gildistöku hennar.
3.
Flóðahætta við Grund
Til kynningar styrkur sem fékkst frá ofanflóðasjóði til flóðavarna við Nikurtjörn.
Umhverfisráð fagna styrknum.
Verkið er þegar hafið, og er efni til verksins komið á staðinn.
Verkið er þegar hafið, og er efni til verksins komið á staðinn.
4.
Friðland Svarfdæla, aðgengi, upplýsingar, öryggi.
Til kynningar styrkur úr framkvæmdasjóði ferðamannastaða til aðgengis, upplýsinga og öryggismála í friðlandinu.
Umhverfisráð fagna styrknum.
5.
Fundargerðir HNE 2014
Til kynningar
Umhverfisráð hefur kynnt sér fundargerðirnar og gerir ekki athugasemdir.
6.
Fyrirhuguð breyting á 2000 tonna sjókvíaeldi Krossaness ehf., í Eyjafirði, úr þorski í lax, - beiðni um umsögn
Til kynningar ákvörðun Skipulagsstofnunar.
Umhverfisráð hefur kynnt sér ákvörðunina.
7.
Ósk um svör við hvers vegna reikningur fæst ekki greiddur
Til kynningar.
Umhverfisráð hefur kynnt sér fyrirliggjandi gögn og getur ekki ályktað í málinu, en vill benda á að girðingar heyra undir landbúnaðarráð.
8.
Styrkvegir í Dalvíkurbyggð 2014
Til kynningar þau verkefni sem sótt var um styrk í úr styrkvegasjóði.
Umhverfisráð hefur kynnt sér umsóknirnar og líst vel á þau verkefni sem sótt hefur verið um.
Ráðið vill benda á að sækja þarf um styrk vegna vinnu við deiliskipulag fólkvangsins í Böggvisstaðarfjalli á næsta ári.
Ráðið vill benda á að sækja þarf um styrk vegna vinnu við deiliskipulag fólkvangsins í Böggvisstaðarfjalli á næsta ári.
9.
Styrkbeiðni og beiðni um sýningarhald
Með rafpósti dags. 19/05.2014 óskar leikhópurinn Lotta eftir leyfi til sýningarhalds í Kirkjubrekkunni á Dalvík þann 9. ágúst.
Umhverfisráð veitir leyfi til sýningarhalds í kirkjubrekkunni að höfðu samráði við fiskidagsnefnd.
Umsókn um styrk er vísað til menningarráðs.
Umsókn um styrk er vísað til menningarráðs.
10.
Æfinga-aksturssvæði
Til umræðu hugmyndir að akstursæfingasvæði í Dalvíkurbyggð.
Umhverfisráð getur ekki tekið afstöðu til málsins, en óskar eftir að fá bréfritara og umráðamenn þeirra á næsta fund ráðsins.
11.
Umsókn um stöðuleyfi
Með bréfi dags. 26.maí 2014 óskar Helgi Ásgrímsson kt. 100444-2759 eftir stöðuleyfi til 12 mánaða fyrir hjólhýsi að Skáldalæk ytri
Umhverfisráð veitir umbeðið leyfi til tólf mánaða, og vekur athygli á að séu önnur leyfisskild mannvirki á svæðinu þarf einnig að sækja um stöðuleyfi fyrir þau.
12.
Umsókn um byggingarleyfi
Innkomið erindi dags. 29. maí frá Guðjóni Þórir Sigfússyni fyrir hönd eiganda Stærri-Árskóg landnr. 152178 þar sem óskað er eftir byggingarleyfi fyrir aðstöðuhús.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina og veitir framkvæmdar og byggingarleyfi.
13.
Umsókn um byggingarleyfi að Ægisgötu 13, Árskógsströnd.
Innkomið erindi dag. 02. júní frá Kristjáni Hjartarssyni kt. 100956-3309 fyrir hönd eigenda Ægisgötu 13, Árskógsströnd landnr. 152197 þar sem óskað er eftir byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við íbúðarhús.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina og felur sviðsstjóra að veita framkvæmdar og byggingarleyfi þegar fullnægjandi gögn berast.
14.
Umsókn um byggingarleyfi að Bringu lóðarhluta C í landi Gullbringu.
Með bréfi dags. 20.06.2013 óskar Stefán Örn Stefánsson kt. 140147-4519 fyrir hönd eiganda Bringu Ólafar Eldjárn kt. 030747-2249 eftir framkvæmdar og byggingarleyfi fyrir sumarhús að Bringu í landi Gullbringu Svarfaðardal
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina og felur sviðsstjóra að veita framkvæmdar og byggingarleyfi.
15.
Umsókn um byggingarleyfi
Með bréfi dags. 03.júní 2014 óskar Ólafur Ólafsson kt. 240567-5559 fyrir hönd Bruggsmiðjunar eftir framkvæmdar og byggingarleyfi samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina og felur sviðsstjóra að veita framkvæmdar og byggingarleyfi þegar fullnægjandi gögn berast.
16.
Tjörn umsókn um framkvæmdar og byggingarleyfi
Innkomið erindi dag. 02. júní frá Kristjáni Hjartarssyni kt. 100956-3309 fyrir hönd eigenda Tjarnar þar sem óskað er eftir byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við íbúðarhús.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina og felur sviðsstjóra að veita framkvæmdar og byggingarleyfi þegar fullnægjandi gögn berast.
17.
Sakka umsókn um byggingarleyfi
Innkomið erindi dag. 02. júní frá Kristjáni Hjartarssyni kt. 100956-3309 fyrir hönd eigenda Sökku landnr. 151969 þar sem óskað er eftir byggingarleyfi fyrir aðstöðuhús.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina og felur sviðsstjóra að veita framkvæmdar og byggingarleyfi þegar fullnægjandi gögn berast.
18.
Framkvæmdaráætlun 2014
Til umræðu breytingar á framkvæmdaráætlun 2014
Breytingar gerðar á framkvæmdaráætlun samkvæmt umræðum á fundinum.