Umhverfisráð
247. fundur
4. febrúar 2014
kl.
08:15
-
10:15
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Björgvin Hjörleifsson
Formaður
Haukur Arnar Gunnarsson
Varaformaður
Kristín Dögg Jónsdóttir
Aðalmaður
Þórhalla Karlsdóttir
Varamaður
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson
Varamaður
Börkur Þór Ottósson
Sviðstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Börkur Þór Ottósson
sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá
1.
Gjaldskrá slökkviliðs Dalvíkurbyggðar
Ný gjaldskrá slökkviliðs Dalvíkurbyggðar til kynningar/staðfestingar.Einnig kemur Vilhelm Anton Hallgrímsson slökkviliðsstjóri á fundinn og kynnir brunavarnaáætlun Dalvíkurbyggðar.
Umhverfisráð þakkar slökkviliðsstjóra fyrir góða yfirferð á brunavarnaráætlun og gjaldskrá slökkviliðs Dalvíkurbyggðar. Ráðið samþykkir gjaldskrána samhljóða.
2.
Fjárhagsáætlun 2014
Innkomið erindi frá Náttúrusetrinu á Húsabakka.
Þar sem málefni Náttúrusetursins á Húsabakka ses hafa verið flutt yfir til umhverfisráðs var ákveðið að kalla fulltrúa stjórnar Náttúrusetursins á Húsabakka ses og fulltrúa úr stjórn friðlandsins á næsta fund umhverfisráðs þar sem farið verður yfir innsent erindi.
Afgreiðslu frestað til næsta fundar.
Afgreiðslu frestað til næsta fundar.
3.
Leiðbeiningar til sveitastjórna um viðauka við fjárhagsáætlun.
Til kynningar leiðbeiningar um viðauka við fjárhagsáætlun, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs Guðrún Pálína Jóhannsdóttir kynnir málið.
Umhverfisráð þakkar Guðrúnu Pálínu fyrir góða kynningu og leggur áherslu á að sviðsstjóri leggi fyrir ráðið stöðu starfs og fjárhagsáætlunar þegar stöðmat liggur fyrir.
4.
Bifreiðastöður við Grundargötu
Lagt fram til kynningar bréf sem sent verður á hlutaðeigandi aðila.
Umhverfisráð fagna að málið sé komið í farveg. Innsendar athugasemdir verða teknar fyrir þegar athugasemdafrestur er liðinn.
5.
Endurskoðun á reglum fyrir snjómokstur
Til endurskoðunar reglur um snjómokstur í Dalvíkurbyggð.
Umhverfisráð óskar eftir tillögum að breytingum frá umhverfisstjóra á næsta fund ráðsins.
6.
Umsókn um stofnun lóðar úr landi Efsta-Kots landnr. 151355
Þorsteinn Skaptason kt. 171244-4989 fyrir hönd landeigenda Efsta-Kots óskar eftir leyfi til að stofna lóð út úr jörðinni samkvæmt innsendu lóðarblaði.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemd við umsóknina og felur byggingarfulltrúa að ganga frá stofnun lóðarinnar.
7.
Ósk um breytingu á styrktarsamningi
Innkomið erindi frá björgunarsveit Dalvíkur dags 20. janúar 2014.
Umhverfisráð leggur til að umhverfisstjóri komi að undirbúningi og vinnu við áramótabrennu í samvinnu við Björgunarsveitina Dalvík þar til gildandi samningur rennur út.
Undir þessum lið vék Haukur Gunnarsson af fundi.
Undir þessum lið vék Haukur Gunnarsson af fundi.
8.
Boð um þátttöku í samráðsvettvangi vegna mótunar landsskipulagsstefnu 2015-2026
Til kynningar
Ráðið hefur kynnt sér innkomið erindi.
9.
Gjaldskrá vegna sorphirðu; dýrahræ
Tillaga að breytingu á gjaldskrá sorphirðu ( dýrahræ).
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við þær breytingar sem gerðar hafa verið á gjaldskránni. Ráðið leggur til að á næstu tveimur árum verði stefnt að því að gjaldið standi undir 80% af kostnaði.
10.
Innrétting á risi og bygging þakkvista
Fyrir hönd eigenda Böggvisstaða sækir Kristján Eldjár Hjartarsson um byggingarleyfi fyrir breytingum samkvæmt meðfylgjaldi gögnum.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við innsend gögn og veitir framkvæmda- og byggingarleyfi með fyrirvara um að sérteikningum og öðrum gögnum verði skilað inn.
11.
Ráðhús Dalvíkurbyggðar Reyndarteikningar
Til kynningar reyndarteikningar af ráðhúsi Dalvíkurbyggðar
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við framlögð gögn.
12.
Stærri-Árskógur breytingar á íbúðarhúsi mhl 02
Guðmundur Geir Jónsson kt. 150172-3069 óskar eftir leyfi til breytinga á íbúðarhúsinu að Stærri-Árskógi samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við innkomið erindi og veitir framkvæmda- og byggingarleyfi.
13.
Breytingar á Hafnarbraut 11 fastanúmer 230-5328
Fyrir hönd GBess ehf kt. 660608-0440 óskar Guðmundur Sigurðsson eftir leyfi til að breyta eignarhlutanum samkvæmt innsendum gögnum.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við innsend gögn og veitir framkvæmda- og byggingarleyfi á fnr.230-5328 með fyrirvara um að sérteikningar verði lagðar inn.
14.
Svæðisskipulag 2012-2024
Til kynningar undirirituð og staðfest gögn frá Skipulagsstofnun
Umhverfisráð hefur kynnt sér skipulagið og leggur til að sviðsstjóri U og T verði fulltrúi Dalvíkurbyggðar í svæðisskipulagsnefnd.
15.
Sjálboðaliðastarf 2014
Lagt fram til kynningar
Umhverfisráð vísar erindinu til umhverfisstjóra til frekari skoðunar.
16.
Breyting á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020, Gullbringa, frístundabyggð í landi Tjarnar
Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020, Gullbringa, frístundabyggð í landi Tjarnar, dags. 27.11.2013, var auglýst 07.12.2013. Athugasemdafrestur var til og með 17.01.2014. Engar athugasemdir bárust.
Umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði samþykkt og sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs falið að senda hana til Skipulagsstofnunar til staðfestingar.
17.
Gullbringa, deiliskipulag fyrir frístundabyggð í landi Tjarnar í Svarfaðardal
Tillaga að deiliskipulagi fyrir Gullbringu, frístundabyggð í landi Tjarnar, dags. 12.12.2012, var auglýst 07.12.2014.2013. Athugasemdafrestur var til og með 17.01.2014. Engar athugasemdir bárust.
Umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði samþykkt og sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs falið að annast gildistöku hennar.
18.
Breyting á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020, Klængshóll
Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020, Klængshóll, dags. 14.10.2013, var auglýst 07.12.2013. Athugasemdafrestur var til og með 17.01.2014. Engar athugasemdir bárust.
Umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði samþykkt og sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs falið að senda hana til Skipulagsstofnunar til staðfestingar.
19.
Deiliskipulag, Klængshóll í Skíðadal, Dalvíkurbyggð
Tillaga að deiliskipulagi fyrir Klængshól í Skíðadal, Dalvíkurbyggð, dags. 14.10.2013, var auglýst 07.12.2013. Athugasemdafrestur var til og með 17.01.2014. Engar athugasemdir bárust.
Umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði samþykkt og sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs falið að annast gildistöku hennar.