Umhverfisráð
246. fundur
11. desember 2013
kl.
16:15
-
19:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Björgvin Hjörleifsson
Formaður
Haukur Arnar Gunnarsson
Varaformaður
Kristín Dögg Jónsdóttir
Aðalmaður
Baldur Snorrason
Aðalmaður
Þórhalla Karlsdóttir
Varamaður
Börkur Þór Ottósson
Sviðstjóri
Ingvar Kristinsson
Embættismaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Börkur Þór Ottósson
sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá
1.
Bifreiðastöður við Grundargötu
Lögð fram tillaga að bifreiðastöður verði bannaðar að norðan við Grundargötu.
Undir þessum lið mætti Felix Jósafatsson Varðsstjóri.Hugmyndir um stofnun bílastæðasjóðs samkvæmt umferðalögum 108 gr verði tekið til frekari skoðunar.Umhverfisráð leggur til að bifreiðastöður verði bannaðar frá Grundargötu 15 að gatnamótum Grundargötu/Hafnarbraut ( að norðan). Einnig er lagt til að bifreiðastöður verði bannaðar við Hafnarbraut frá sömu gatnamótum norður að lóðarmörkum hafnarbrautar 25 að sunnan. Frá gatnamótum Grundargötu og Skíðabraut/Hafnarbraut að vestan að lóðarmörkum Skíðabrautar 2 að norðan. Umhverfisráð felur sviðsstjóraað fylgja málinu eftir. Umhverfisráð þakkar Varðsstjóra góða kynningu.
2.
Gæðastjórnunarkerfi byggingafulltrúa
Til kynningar
Fundarmenn hafa kynnt sér málið og fela sviðsstjóra að halda ráðinu upplýstu um framvindu mála.
3.
Sjóvarnir við hesthús við Aðalgötu á Hauganesi
Innkomið erindi frá Bjarna Jóhanni Valdimarssyni þar sem óskað er eftir aðkomu sveitarfélagsins að sjóvörnum á Hauganesi.
Umhverfisráð hefur kynnt sér málið og frestar erindinu þar til lóðarmörk eru frágengin á svæðinu.
4.
Ósk um malartekju úr áreyrum Svarfaðardalsár
Friðrik Þórarinsson óskar eftir leyfi til malartöku í landi Grundar 2-3.000 m3.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina og felur sviðsstjóra að veita umbeðið leyfi.
5.
Fyrirhuguð breyting á 2000 tonna sjókvíaeldi Krossaness ehf., í Eyjafirði, úr þorski í lax, - beiðni um umsögn
Lagt fram til kynningar.
Það sem frestur til umsagnar var liðin hefur sviðsstjóri sent umsögn og gerir umhverfísráð ekki athugasemdir við erindið.
6.
Lokadrög að samþykkt um Svæðisskipulag nóv. 2013
Til yfirferðar og samþykktar lokadrög að svæðisskipulagi 2012-2024
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við afgreiðslu svæðisskipulagsnefndar.
7.
Gjaldskrá byggingarfulltrúa
Byggingarfulltrúi kynnti fyrir ráðinu breytingar á gjaldskrá byggingarfulltrúa.
Umhverfisráð samþykkir þær breytingar sem lagðar hafa verið fram á gjaldskrá byggingarfulltrúa.
8.
Til umsagnar: Umsókn Athugenda ehf um skeldýrarækt í Eyjafirði
Umsókn Athugenda ehf um skeldýrarækt í Eyjafirði.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina, en vill þó benda á að mikilvægt er að gengið sé frá ræktarsvæðum eftir notkun.
9.
Upplýsingar um um fjárhagsstöðu Golfklúbbsins Hamars og ósk um fjárhagsaðstoð
Beiðni frá golfklúbbnum Hamri um fjárhagsaðstoð vegna bakkavarna.
Umhverfisráð felur sviðsstjóra að aðstoða golfklúbbinn og kanna möguleika á fjármögnun og framkvæmd á bakkavörnum. Ráðið leggur áherslu á að ekki hafa verið lagðir fjármunir til bakkavarna á fjárhagsáætlun 2014.
10.
Útboð á snjómokstri í Dalvíkurbyggð 2014-2016
Til kynningar opnun tilboða í snjómokstur 2014-2016
Umhverfisráð felur sviðsstjóra að vinna frekar úr tilboðunum samkvæmt umræðum á fundinum. Þar sem tilboð einstakra aðila þóttu óeðlilega lík veltir ráðið fyrir sér hvort um samráð hafi verið að ræða. Sviðsstjóra er falið að leita ráða hjá Samkeppnisstofnun.
11.
Til umsagnar: meðhöndlun úrgangs 215. mál
Lagt fram til kynningar.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við kynntar breytingar.
12.
Nýtt starf umhverfisfulltrúa/-stjóra á umhverfis- og tæknisviði.
Valur Þór Hilmarsson verðandi umhverfisstjóri Dalvíkurbyggðar mætir á fundinn.
Umhverfisráð býður Val Þór velkomin til starfa.