Umhverfisráð
Sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs er falið að kynna lýsinguna íbúum og öðrum hagsmunaaðilum í samræmi við ákvæði 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og leita umsagnar Skipulagsstofnunar og annarra umsagnaraðila. Jafnframt er sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs falið að kynna tillögu að breyttu aðalskipulagi sbr. 2. mgr. sömu greinar laganna.
Umhverfisráð leggur til að umsagnarfrestur verði tvær vikur, en að honum liðnum verði skipulagstillagan auglýst skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 nema ábendingar og athugasemdir íbúa, umsagnaraðila eða annarra hagsmunaaðila gefi tilefni til breytinga en þá verði hún tekin fyrir að nýju í umhverfisráði fyrir auglýsingu.
Sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs er falið að kynna lýsinguna íbúum og öðrum hagsmunaaðilum í samræmi við ákvæði 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og leita umsagnar Skipulagsstofnunar og annarra umsagnaraðila. Jafnframt er sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs falið að kynna tillögu að breyttu aðalskipulagi sbr. 2. mgr. sömu greinar laganna.
Með hliðsjón af forsögu málsins leggur Umhverfisráð til að umsagnarfrestur verði stuttur, tvær vikur, en að honum liðnum verði skipulagstillagan auglýst skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 nema ábendingar og athugasemdir íbúa, umsagnaraðila eða annarra hagsmunaaðila gefi tilefni til breytinga en þá verði hún tekin fyrir að nýju í umhverfisráði fyrir auglýsingu. Samtímis verður auglýstur framlengdur athugasemdafrestur á deiliskipulagstillögu.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />