Fara í efni

Umhverfisráð

244. fundur
16. október 2013 kl. 16:15 - 18:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Björgvin Hjörleifsson Formaður
Haukur Arnar Gunnarsson Varaformaður
Anna Guðný Karlsdóttir Aðalmaður
Kristín Dögg Jónsdóttir Aðalmaður
Börkur Þór Ottósson Sviðstjóri
Ingvar Kristinsson Embættismaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá
1.
Klængshóll, beiðni um umsögn vegna umsóknar um breytingu á rekstrarleyfi
Málsnúmer 201309131
Sýslumaðurinn á Akureyrir óskar eftir umsögn vegna breytinga á rekstraleyfi að Klængshóli í Skíðadal
Umhverfisráð frestar afgreiðslu umsagnar þar til fullnægjandi gögn berast.
2.
Umsókn á tæknisviði - utanhúsklæðning
Málsnúmer 201309140
Fyrir hönd eigenda að Karlsrauðatorgi 19 á Dalvík óska Anna Þórey Hallgrímsdóttir kt. 251055-5569 eftir leyfi til að klæða húseignina að utan.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemd og felur byggingarfulltrúa að veita umbeðið leyfi.
3.
Gjaldskrár umhverfisráðs 2014
Málsnúmer 201309151
Gjaldskrár lagðar fram til staðfestingar umhverfisráðs.
Umhverfisráð samþykkir áorðnar breytingar.
4.
Ársfundur Umhverfisstofnunar og náttúruverndarnefnda sveitarfélaga 2013
Málsnúmer 201309133
Lagt fram til kynningar
Umhverfisráð hefur kynnt sér málið og hvetur Dalvíkurbyggð til að taka þátt í umhverfis-og náttúruverndar málum í framtíðinni. Ráðið vill minna á að gera þarf ráð fyrir fjármunum til þessara mála.

5.
Friðland Svarfdæla
Málsnúmer 201308007
Umbeðinn forgangsröðunarlisti frá Hjörleifi Hjartarssyni vegna erindis 201308007 fra 241. fundi umhverfisráðs þann 4. september 2013.
Umhverfisráð vísar til byggðarráð að ganga frá samstarfssamningi við Umhverfisstofnun um friðlandið og að fjármunum verði veitt til verkefna í friðlandinu.
6.
Umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 201310006
Fyrir hönd eigenda Ægisgötu 6, Dalvík óskar Fanney Hauksdóttir eftir byggingarleyfi fyrir smáhýsi á lóðinni.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemd við umsóknina og felur byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi.Guðný Karlsdóttir vék af fundi undir þessum lið.
7.
Umsókn vegna utanhús framkvæmda
Málsnúmer 201310017
Fyrir hönd eiganda Stórhólsvegar 3 óskar Eb ehf eftir leyfi til utanhúsklæðningar ofl.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemd við umsóknina og felur byggingarfulltrúa að veita leyfið.Björgvin Hjörleifsson vék af fundi undir þessum lið.
8.
Breytingar á gjaldskrá heilbrigðiseftirlits
Málsnúmer 201310018
Breytt gjaldskrá heilbrigðiseftirlits norðurlands eystra lög fram til kynningar.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemd við breytta gjaldskrá.
9.
Svæðisskipulag Eyjafjarðar, endalega afgreiðsla sveitarstjórnar til Skipulagsstofnunar
Málsnúmer 201310028
Endanleg útfærsla á svæðisskipulagi Eyjafjarðar lagt fram til staðfestingar.
<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" /><o:p>
Þrjár athugasemdir bárust við fyrirliggjandi tillögu að Svæðisskipulagi Eyjafjarðar og voru þær teknar til afgreiðslu á 34. fundi svæðisskipulagsnefndar, sem haldinn var 9. september sl. Fyrir fundi umhverfisráðs liggur fundargerð nefndarinnar og tillaga hennar að svari og viðbrögðum við fyrrgreindum athugasemdum. Um er að ræða breytingar á skipulagsgögnum sem taldar eru upp í þrem töluliðum í fundargerðinni en öðrum athugasemdum er svarað samkvæmt afgreiðslu í athugasemdaskjali sem er fylgiskjal með fundargerðinni. <o:p></o:p>

Umhverfisráð  leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki framkomna tillögu að svæðisskipulagi Eyjafjarðar og veiti heimild til þess að senda það til Skipulagsstofnunar til staðfestingar.<o:p></o:p>

</o:p>

10.
Umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 201310050
Innkomið erindi Ævars Bóassonar kt. 260587-3159 þar sem óskað er eftir byggingarleyfi á lóð úr landi Stærri-Árskógs.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemd við framlögð gögn, en byggingarleyfi verður veitt þegar fullnægjandi gögn berast.
11.
Útboð á snjómokstri í Dalvíkurbyggð 2014-2016
Málsnúmer 201310054
Útboðsgögn vegna snjómoksturs lög fram til kynningar.
Umhverfisráð kom með nokkrar ábendingar um leiðréttingar á útboðsgögnum, en að öðru leyti fagnar ráðið framlögðum gögnum.Björgvin Hjörleifsson og Guðný Karlsdóttir viku af fundi undir þessum lið.
12.
Innrétting á risi og bygging þakkvista
Málsnúmer 201310078
Fyrir hönd Unna E. Hafstað Ármannsdóttur kt. 220275-5669 óskar Kristján Eldjárn Hjartarsson kt. 100956-3309 eftir framkvæmdaleyfi að Böggvisstöðum samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við framkvæmdina, en getur ekki veitt framkvæmdarleyfi fyrr en ítarlegri gögn berast.