Umhverfisráð
242. fundur
11. september 2013
kl.
16:15
19:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Björgvin Hjörleifsson
Varaformaður
Anna Guðný Karlsdóttir
Aðalmaður
Baldur Snorrason
Aðalmaður
Börkur Þór Ottósson
Sviðstjóri
Ólafur Ingi Steinarsson
1. varamaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Börkur Þór Ottósson
sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá
1.
Skýrsla Garðyrkjustjóra lögð fram og kynnt.
Á fundinn mætir Jón Arnar Sverrisson og fer yfir skýrslu garðyrkjustjóra 2013.
Umhverfisráð þakkar garðyrkjustjóra fyrir greinargóða yfirferð á málefnum vinnuskólans. Ráðið leggur til að þar sem úthlutað hefur verið úr plötusjóði hitaveitu Dalvíkur í 10 ár verði tekið saman umfang ræktunarinnar á þessum árum. Það sem þetta er síðasti fundur Jóns Arnars vill umhverfisráð þakka honum gott samstarf á undanförnum árum.
2.
Umsókn um byggingarleyfi
Fyrir hönd eiganda óskar Kristján Eldjárn Hjartarsson eftir byggingarleyfi fyrir sólskála við Sunnubraut 2, Dalvík.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þó með þeim fyrirvara að kröfum um eldvarnir sé uppfyllt.
3.
Ábending um framkvæmdir fyrir árið 2014
Sigurgeir Birgisson sendir inn ábendingar til umhverfisráðs um að nota grunn af gamla skíðaskálanum (hólnum)sem áningarstað fyrir víðsjá ofl.
Umhverfisráði lýst vel á hugmyndir Sigurgeirs varðandi víðsjá og áningarstað og felur byggingarfulltrúa að gera kosnaðaráætlun fyrir framkvæmdunum til framlagningar á fjárhagsáætlun 2014.
4.
Íbúðir fyrir aldraða við Dalbæ.
Lagt fram til kynningar
Umhverfisráði lýst vel á hugmyndina um íbúðir fyrir aldraða, en leggur áherslu á að ekki verði gengið um of á það útvistarsvæði sem er í lágini. Ráðið felur byggingarfulltrúa að óska eftir fjármagni til deiliskipulagningar svæðisins og í framhaldi af því setja vinnu við deiliskipulag í gang. Ráðið leggur áherslu á að fyrirhugaðar framkvæmdir verði unnar í góðri sátt við aðliggjandi íbúðaeigendur.
5.
Tröppur við ferjubryggju á Árskógssandi
Innkomið erindi frá Antoni Má Steinarssyni vegna göngustígs frá hafnarsvæði að bílastæðum á Árskógsandi.
Umhverfisráð tekur vel í erindið og felur byggingarfulltrúa að leita samstarfs við vegagerðina um framkvæmdina.
6.
Beiðni um úrbætur
Innkomið erindi frá Hafþóri Gunnarssyni eiganda Hringtúns 21 á Dalvík vegna fullnaðar frágangs gatnagerðar.
Umhverfisráð leggur til að tillaga byggingarfulltrúa um kantstein og gangstétt verði framkvæmd í haust.
7.
Gullbringa breyting á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2010-2020
Tekin var fyrir tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020, dagsett 26.07.2013, þar sem fara þarf með breytinguna skv. 1. mg 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
8.
Deiliskipulag í landi Gullbringu, Svarfaðardal.
Deiliskipulag í landi Gullbringu, lagt fram til staðfestingar.
9.
Listaverkið Aldan
Innkomið erindi frá garðykjustjóra Dalvíkurbyggðar um nýja staðsetningu fyrir listaverkið Ölduna á horninu norðan við " Bárubúð ".
Umhverfisráð gerir ekki athugasemd við staðsetningu með fyrirvara um samþykki lögreglu.
10.
Fjárhagsáætluln 2014; viðhald á Húsabakka
Óskir um endurbætur og viðhald á Húsabakka 2014.
Umhverfisráð felur umsjónarmanni fasteigna að forgangsraða þeim verkefnum sem fjárveitingar fást til.Ráðið vill vekja athygli á því að sveitarfélagið leggi ekki fjármuni til að uppfylla kröfur sem falla að rekstri leigutaka ( eins og fram kemur í leigusamningi).
11.
Fjárhagsáætlun 2014
Innkomið erindi frá húseigendum Hólvegar 19, Dalvík vegna fjárhagsáætlunar 2014.
Umhverfisráð tekur vel í erindið varðandi gangstétt og gangbraut og setur verkefnið á framkvæmdarlista 2014. Að öðru leyti þakkar ráðið góðar ábendingar.
12.
Umræða Umhverfisnefndar vegna fjárhagsáætlunar 2014
Til umræðu framkvæmdalisti fyrir 2014 og eins starfsáætlun fyrir 2014.
Ráðið lagði drög að framkvæmdalista fyrir árið 2014 og starfsáætlun 2014 undirbúin til fullnaðarafgreiðslu í næstu viku.Rætt sandfokið við Martröð og lögð áhersla á að hraða vinnslu að varanlegri lausn.