Fara í efni

Umhverfisráð

236. fundur
6. mars 2013 kl. 08:00 - 10:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Helgi Einarsson Formaður
Björgvin Hjörleifsson Varaformaður
Haukur Arnar Gunnarsson Aðalmaður
Anna Guðný Karlsdóttir Aðalmaður
Daði Njörður Jónsson Aðalmaður
Þorsteinn K. Björnsson Sviðstjóri
Ingvar Kristinsson Starfsmaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Þorsteinn K. Björnsson sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá
1.
Börkur Þór Ottósson nýráðinn sviðstjóri umhverfis- og tæknisviðs Dalvíkurbyggðar.
Málsnúmer 201303103
Á fund ráðsins var mættur Börkur Þór, nýráðinn sviðstjóri umhverfis- og tæknisviðs.Umhverfisráð bauð Börk velkominn til starfa.
2.
Deiliskipulag íþróttasvæðis
Málsnúmer 201110056
Til umræðu er deiliskipulag íþróttasvæðis og er búið að færa inn þær breytingar sem til umræðu voru á síðasta fundi ráðsins.
<SPAN style="FONT-FAMILY: "Arial","sans-serif"; FONT-SIZE: 11pt; mso-fareast-font-family: "Times New Roman"; mso-ansi-language: EN-GB; mso-fareast-language: EN-US; mso-bidi-language: AR-SA" lang=EN-GB>Umhverfisráð samþykkir að boða til kynningarfundar þar sem íbúum og öðrum hagsmunaaðilum verður gefinn kostur á að gera athugasemdir við þessi drög að deiliskipulagi íþróttasvæðis.</SPAN>
3.
Varðandi fasteignina nr. 31 við Sandskeið á Dalvík
Málsnúmer 201212035
Framhaldsumræðs frá 236. fundi ráðsins. Fyrir fundinum liggur álit lögfræðings sveitarfélagsins, sem er á þann veg að ljúka skuli gerð lóðaleigusamnings eins og samþykkt hafði verið.
<SPAN style="FONT-FAMILY: "Arial","sans-serif"; FONT-SIZE: 11pt; mso-fareast-font-family: "Times New Roman"; mso-ansi-language: EN-GB; mso-fareast-language: EN-US; mso-bidi-language: AR-SA" lang=EN-GB>Umhverfisráð felur byggingarfulltrúa að ganga frá lóðablöðum lóða við við Sandskeið austan Flæðavegar. Austurmörk lóðarinnar nr. 31 við Sandskeið verða eins og bæjarstjórn samþykkti  21. október 1986.</SPAN>
4.
Umsókn um byggingarleyfi til að stækka kaffistofu og breyta útliti samkvæmt meðfylgjandi byggingarnefndarteikningu.
Málsnúmer 201303074
Með rafpósti, sem dagsettur er 4. mars 2013, óskar Anton Örn Brynjarsson, verkfræðingur, eftir leyfi til að breyta Hafnarbraut 1, Dalvík, samkvæmt meðfylgjandi byggingarnefndarteikningum.
Umhverfisráð samþykkir erindið og er framkvæmda- og byggingarleyfi veitt.
5.
Deiliskipulag í landi Gullbringu, Svarfaðardal.
Málsnúmer 201303083
Með bréfi sem dagsett er 18. febrúar 2013, leggur Stefán Örn Stefánsson, arkitekt, fram deiliskipulagstillögu sem tekur til frístundasvæðis í landi Gullbringu, Svarfaðardal. Fram kemur að óskað er eftir því að uppdrátturinn verði lagður fyrir umhverfisráð og hljóti þá meðferð sem rétt er til samþykktar og síðar staðfestingar og auglýsingar deiliskipulagsins. Jafnframt er óskað eftir því að aðalskipulag Dalvíkurbyggðar verði breytt til samræmis við framangreinda ósk.
<DIV align=center><TABLE style="WIDTH: 90%; mso-cellspacing: 0cm; mso-yfti-tbllook: 1184; mso-padding-alt: 2.25pt 2.25pt 2.25pt 2.25pt" class=MsoNormalTable border=0 cellSpacing=0 cellPadding=0 width="90%"><TBODY><TR style="mso-yfti-irow: 0; mso-yfti-firstrow: yes; mso-yfti-lastrow: yes"><TD style="BORDER-BOTTOM: #f0f0f0; BORDER-LEFT: #f0f0f0; PADDING-BOTTOM: 2.25pt; BACKGROUND-COLOR: transparent; PADDING-LEFT: 2.25pt; PADDING-RIGHT: 2.25pt; BORDER-TOP: #f0f0f0; BORDER-RIGHT: #f0f0f0; PADDING-TOP: 2.25pt"><P style="MARGIN: 0cm 0cm 0pt" class=MsoNormal><SPAN style="FONT-FAMILY: "Arial","sans-serif"; FONT-SIZE: 11pt; mso-ansi-language: DA" lang=DA>Umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að deiliskipulagið verði auglýst samkvæmt reglum þar um og að óskað verði eftir því við skipulagsstofnun að farið verði með breytingu á aðalskipulagi sem minni háttar breytingu.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" /><o:p></o:p></SPAN></P></TD></TR></TBODY></TABLE>
6.
Lóðarsláttur, gjaldskrá 2013.
Málsnúmer 201303086
Garðyrkjustjóri leggur til við umhverfisráð að gjaldskrá vegna garðsláttar verði breytt eins og fram kemur í starfsáætlun fyrir árið 2013. Um er að ræða um 12% hækkun á gjaldinu.
Umhverfisráð leggur það til við bæjarstjórn að framangreind gjaldskrá verði staðfest.