Umhverfisráð
231. fundur
17. október 2012
kl.
16:15
-
19:30
fundarherbergi á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Helgi Einarsson
Formaður
Björgvin Hjörleifsson
Varaformaður
Daði Njörður Jónsson
Aðalmaður
Þórhalla Karlsdóttir
Varamaður
Þorsteinn K. Björnsson
Sviðstjóri
Ingvar Kristinsson
Starfsmaður
Ólafur Ingi Steinarsson
Varamaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Þorsteinn K. Björnsson
sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá
1.
Varðar aðgengismál í Sveitarfélaginu
Á fund ráðsins vor mættir fulltrúar í aðgengishóp sem fylgdu eftir skýrslu sem kynnt var á fundir ráðsins í mars sl.Eyrún Rafnsdóttir kynnti fyrir ráðsmönnum Þingsályktum um framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks til ársins 2014. Fram kom í máli hennar að framkvæmdaáætlun um úrbætur þarf að liggja fyrir árslok 2013. Eyrún vék af fundi
Umhverfisráð felur byggingarfulltrúa að framkvæma úttekt á aðgengismálum með vísan til þeirrar skýrslu sem aðgengishópurinn skilaði frá sér í mars. sl.
2.
Heljuskáli, ósk um styrkveitingu 2012
Með bréfi, sem dagsett er í september 2012, er óskað eftir styrk til byggja skála á Heljadalsheiði. Áætlað að taka hann í notkun í lok ágúst 2013.
Umhverfisráð telur að styrkbeiðni sem þessi eigi heima hjá bæjarráði og vísa ráðið því framangreindu erindi þangað.
3.
Vatnstjón að Flæðavegi 2, 3. október 2012
Með bréfi, sem dagsett er 4. október 2012, hefur Antomina Kuznecova falið Júlíusi Snorrasyni að kanna bótarétt vegan vatns sem flæddi í húsið þann 3. október sl. Rétt þykir einnig að það komi fram að veitustjóri hefur einnig rætt við húsráðendur.
Veitustjóri upplýsti ráðið um gang málsins og mun kynna fyrir ráðinu verði breytingar á niðurstöðu þess.
4.
Drög að frumvarpi til náttúruverndarlaga
Með bréfi sem dagsett er 3 september 2012, óskar umhverfis- og auðlindaráðuneytið eftir aumsögn um frumvarp til náttúruverndarlaga.
Umsagnafrestur er liðinn.
5.
Umsókn um byggingarleyfi
Með bréfi sem dagsett er 19. september 2012, leggur Stefán Örn Stefánsson, arkitekt, f.h. Ólafar Eldjárn, fram byggingarnefndarteikningar af frístundahúsi. Gert er ráð fyrir því að frístundahúsið verði reist í landi Gullbringu.
Umhverfisráð frestar afgreiðslu og felur byggingarfulltrúa að ræða við umsækjanda.
6.
Skíðadalsvegur, framkvæmdaleyfi.
Haukur Jónsson, deildarstjóri hjá Vegagerð ríkisins sækir um leyfi til efnistöku úr landi Hofsár, Svarfaðardal. Um er að ræða um 40.000 m3 og mun frágangur á landi eftir efnistöku vera í samráði við landeiganda. Leyfi landeiganda liggur fyrir.
Umhverfisráð samþykkir erindið og er framkvæmdaleyfi veitt.