Fara í efni

Umhverfisráð

230. fundur
19. september 2012 kl. 16:15 - 19:15
fundarherbergi á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Helgi Einarsson Formaður
Björgvin Hjörleifsson Varaformaður
Haukur Arnar Gunnarsson Aðalmaður
Daði Njörður Jónsson Aðalmaður
Þorsteinn K. Björnsson Embættismaður
Ingvar Kristinsson Embættismaður
Þórhalla Karlsdóttir Varamaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Þorsteinn K. Björnsson sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá
1.
Niðurfelling af vegaskrá
Málsnúmer 201208034
Með bréfi frá 15. ágúst 2012 frá Vegagerð ríkisins kemur fram að með gildistöku vegalaga nr. 80/2007 var skilgreiningu þjóðvega breytt. Með tilvísun til ofangreindra laga er hluti Hauganesvegar samanber meðfylgjandi loftmynd. Gefinn er kostur til að koma með athugasemd við þessa ákvörðun fyrir 1. desember 2012.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemd við þessa ákvörðun.
2.
Skilti og merkingar í Dalvíkurbyggð
Málsnúmer 201209077
Skiltahópur Dalvíkurbyggðar biður um leyfi Umhverfisráðs til að reisa tvö upplýsingaskilti. Annað á að standa við gatnamót Skíðabrautar og Mímisvegs og hitt við Upsir. Meðfylgjandi eru teikningar af fyrirhuguðum skiltum.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemd við staðsetningu á fyrirhuguðum staðsetningu á framangreindum skiltum en bendir jafnframt á að nauðsynlegt er að hafa samráð við íbúa.
3.
Fjárhagsáætlun 2013
Málsnúmer 201209065
Ráðsmenn kynntu sér framlagða fjárhagsáætlun þeirra málaflokka sem eru á forræði ráðsins. Einnig þær tillögur sem sviðstjóri lagði fram um hækkanir á Hita- og vatnsveitu Dalvíkur.
Sviðstjóri fær umboð til þess að skila inn framlagri fjárhagsáætlun á rekstri þeirra málaflokka sem eru á forræði umhverfisráðs. Umhverfisráð samþykkir að gjaldskrá Hitaveitu Dalvíkur taki breytingum á byggingarvísitölu okt. 2011 til sept. 2012 sem er um 3,14%. Umhverfisráð samþykkir að gjaldskrá Vatnsveitu Dalvíkur taki breytingum á byggingarvísitölu okt. 2011 til sept. 2012 sem er um 3,14%.Sorphirðugjald verði fyrir árið 2013 kr. 31.400,- en á árinu 2012 er gjaldið kr. 27.400,-.