Umhverfisráð
224. fundur
21. mars 2012
kl.
16:15
-
19:00
fundarherbergi á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Fundargerð ritaði:
Þorsteinn K. Björnsson
sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá
1.
Umferðarmál í Dalvíkurbyggð
Felix Jósafatsson varðstjóri lögreglu kom á fundinn. Á fundinum var Felix spurður um þau mál er varða umferðaöryggi í Dalvíkurbygg.
Brýnt er að tryggja að hraðatakmörk innanbæjar séu virt og koma upp fleiri hraðahindrunum og biðskyldumerkjum upp í samráði við lögreglu.</DIV&gt;Felix vék af fundi.</DIV&gt;Umhverfisráð felur sviðstjóra að óska eftir því við Vegagerðar ríkisins að fulltrúar hennar komi til fundar við ráðið við fyrsta tækifæri.</DIV&gt;
2.
Umsókn um byggingarleyfi fyrir geymslu að Víkurbakka, Árskógsströnd.
Fyrir fundinum lá bréf sem dagsett er 16. mars 2012 frá Hauki Haraldssyni, byggingartæknifræðingi. Í bréfinu er óskað leyfis að byggja geymsluhús samkvæmt meðfylgjandi byggingarnerfndarteikningum sem unnar eru af honum. Fram kemur að hann er eigandi lands og bygginga á jörðinni.
&Umrætt geymsluhús er fjarri öllum byggingum, nema hans eigin svo það er mat umhverfisráðs að ekki er þörf á að byggingaráformin fari í grendarkynningu.</DIV&gt;Umhverfisráð samþykkir&nbsp; byggingarnerndarteikninguna og er byggingar- og framkvæmdaleyfi veitt.</DIV&gt;</DIV&gt;
3.
Beiðni um umsögn vegna umsóknar um rekstarleyfi - Sportferðir að Ytri-Vík, Árskógsströnd.
Með bréfi sem dagsett er 28. febrúar 2012, óskar sýslumaðurinn á Akureyri umsagnar um rekstrarleyfi, samkvæmt gististaðaflokk II, en um er að ræða sumarhús að Ytri-Vík, Dalvíkurbyggð, undir nafninu Frístundahúsin Ytri-Vík/Sportferðir ehf/Sport Tours.
&Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við að framangreint leyfi verði veitt að uppfylltum ákvæðum reglugerða.</DIV&gt;</DIV&gt;
4.
Trúnaðarmál